Vikan - 15.01.1970, Blaðsíða 7
átt slíku að venjast, prentun á
blaðapappír hérlendis hefur um
árabil verið algjör hörmung þar
til fyrir hálfu ári, að VIKAN
snarsnerist, eða gjörbreyttist.
Þetta er í og með veðmál, svo
við treystum svari.
Virðingarfyllst,
Áhugal j ósmyndari.
Við þökkum þetta ánægjulega
bréf. Engar breytingar hafa orð-
ið á prentun Vikunnar tækni-
lega séð, svo að okkur hlýtur
bara að vera að fara fram. Og
batnandi manni er bezt að lifa,
ekki sízt á nýbyrjuðu ári.
Sjónvarpsþulir
Kæri Póstur!
í sumar sem leið birtuð þið
viðtöl við sjónvarpsþulina þrjá,
og hafði ég nokkuð gaman af. Nú
eru komnar tvær í viðbót; hvern-
ig væri að heimsækja þær og
spjalla örlítið við þær? í?g er
viss um að það yrði vel þegið.
Vertu svo ævinlega blessaður.
Siggi.
Jú, við höfum svo sem hugleitt
þetta og erum að því enn, því
bæði þær Sólveig og Bryndís eru
hinar huggulegustu stúlkur og
við hefðum sjálfir gaman af því
að heimsækja þær — en nú er
bara eftir að bera þetta undir
þær sjálfar.
Vikan vinstrisinnuð
Kæri Póstur!
VIKAN er eina blaðið sem ég
kaupi og er það vegna þess að
hún er eina blaðið sem ekki er
bundið við einhvern sérstakan
stjórnmálafiokk. Jú, og svo er
hitt og þetta skemmtilegt í blað-
inu. En upp á síðkastið hefur
mér fundizt þið full vinstrisinn-
aðir og hefur þetta gengið svo
langt að komið er út i algjört
Bandaríkjahatur — Væri ekki
skynsamlegra að játa fyrir lands-
lýð öllum að þið fylgið þessari
vissu stefnu(leysi) í stað þess að
vera að fara í kringum þetta eins
og köttur í kringum heitan
graut?
Ó. H.
Við getum nú ekki fallizt á það
sjónarmið, að við séum vinstri-
sinnaðir og enn síður að við höt-
um Bandaríkjamenn. En þú
munt eiga við þáttinn „Síðan
síðast", þar sem við tökum fyrir
það sem efst er á baugi í heim-
inum og sitthvað fleira. Við höf-
um reynt að fara meðalveginn í
þessum efnum, en langgleggstar
og mestar fréttir berast frá
Bandaríkjunum, svo það er ekki
nema von að þær sitji í fyrir-
rúmi. Já, og svo er margt af þvi
svo ljótt að það á ekkert frekar
skilið en fordæmingu.
Smásögur og
framhaldssögur
Virðulegi Póstur!
Nú get ég hreinlega ekki orða
bundizt lengur. Þessar smásögur
ykkar eru alveg hörmung. Það
er rétt einu sinni við og við að
þær eru lesandi. Tómt kjaftæði
allt saman, ef mér leyfist að taka
svona sterkt til orða. En það
megið þið eiga að framhaldssög-
urnar hafa verið nokkuð góðar
— síðan Angelique hvarf af sjón-
arsviðinu. Póstur minn! Reyndu
að beita alvizku þinni til að
breyta þessu til batnaðar.
Kristján Ó., Selfossi.
Það má með sanni segja að erf-
itt er að gera svo öllum líki, en
við tökum allar kvartanir til
greina og lofum að reyna að gera
þér, Kristján minn, til hæfis í
framtíðinni.
EFTA-forsíðan ...
Kæri Póstur!
Eg var að lesa 1. tölublaðið
1970. Þar las ég m. a. um heit-
strengingu um áramót, og þar
sem áramótin eru nýliðin, ætla
ég að strengja þess heit að skrifa
þér nokkur bréf á þessu ári, en
það er þitt að ráða hvort þú birt-
ir þau eður ei. Hver ræður ekki
í sínu ríki?
Hvað skyldi íslendingum vera
efst í huga um þessi áramót? Ef-
laust hugsa flestir um það hvað
skeður á nýbyrjuðu ári. Nú, aðr-
ir hugsa um EFTA. En það er nú
með þetta EFTA, að hvar sem
maður fer, kemst maður ekki
hjá því að heyra eitthvað minnzt
á EFTA. Dagblöðin geta þeir vart
gefið út nema að hafa einhverja
klausu eða stórfrétt um EFTA.
Er það nema von að sumir séu
orðnir hringlandi vitlausir og
vart við þá talandi. Forsíðan á
1. tölublaðinu er alveg stórkost-
leg. Það er auðséð að mýsnar eru
ekkert hrifnar af EFTA-björg-
uninni. !Ég skora á ykkur að
koma með fleiri skopmyndir af
ríkisstjórninni, svipaða þessari
og þeirri sem birtist um áramót-
in ‘68—‘69, þegar okkar nafn-
kunna ríkisstjórn sigldi krónu-
brotinu fræga. Mér finnst of lít-
ið af svona myndum og það er
hægt að hlæja oftar en um ára-
mót. Við skulum vona að árið
1970 verði ár friðar og mannúð-
arstarfsemi aukist til muna þar
til jafnrétti næst hvar sem er í
heiminum. Við skulum hugsa vel
um ríkisstjórnina okkar (baktala
hana aðeins í laumi), svo hún
geti hugsað í ró og næði sitt ell-
efta ár sem hún situr, þar til hún
stendur upp og gerir eitthvað.
Og að lokum skulum við vona
að ísland gangi í EFTA á ell-
EFTA ári stjórnarinnar.
Þinn S. B.
Strákurinn, sem ég er meS,
gaf mér minnsta kveikjara sem
ég hef séð — svo lítinn að ég fæ
varla nógu litla steina í hann.
Annar strákur gaf mér kveikjara,
sem hann keypti 'í siglingu
— honum er fleygt þegar
hann er tómur. Ekki man ég,
hvorn ég lét róa fyrr,
kveikjarann eða strákinn.
Ég er alltaf að kaupa
eldspýtur, en þær misfarast
með ýmsum hætti.
En eld þarf ég að hafa.
Hver vill
gefa mér
RONSON?
TILVALINN TIL TÆKIFÆRISGJAFAR
I. Buðmundsson & Co. hi.
Comet gas kveikjari
Einkaumboð:
Milady gas kveikjari
Til gefenda RONSON kveikjara: Afyllingin tekur
5 sekúndur, og endist svo mánuSum skiptir. Og
kveikjarinn — hann getur enzt að eilífu. ■ ■ 1 ' '
Adonis gas kveikjari
Empress gas kveikjari
S. thi. VIKAN 7