Vikan - 15.01.1970, Qupperneq 17
Þótt Thomas Edward Lawr-
ence, eða Arabíu-Lárens, eins og
algengt er að kalla hann hér-
lendis, geti naumast kallast
könnuður í sama skilningi og
Livingstone, Stanley eða Nord-
enskiöld, þá er engu að síður vel
réttlætanlegt að flokka hann
með þeim. Eins og þeir skar hann
sig hastarlega og með sérkenni-
legu móti úr þeim hinum mikla
gráa flokki, sem kveðið var um
í árdaga
Lítilla sanda,
lítilla sæva,
lítil eru geð guma
Af þessum fjórum er Lawr-
ence tvímælalaust ótrúlegastur á
flesta lund, dularfyllstur, goð-
sagnakenndastur. Hann var orð-
inn þjóðsagnaefni þegar í lifanda
lífi og er það enn, og þær þjóð-
sögur eru svo mótsagnakenndar
og botnlausar að ekki er nema
eðlilegt að sá grunur læðist að
þeim sem heyrir þær að hetja
þeirra sé fremur ásaættar en
manna, eirðarlaus leitandi andi
sem bregzt jafnt í ormsham sem
arnar og smýgur hamra eftir
galdramiði.
Thomas Edward Lawrence er
fæddur í Vels líkt og Stanley, en
að honum stóðu ættir frá Lei-
cestershire og írlandi. Faðir hans
var heldur léttlyndur herramað-
ur sem hugsaði öllu meira um
hross og veiðiskap en börnin sín,
svo að Thomas Edward og bræð-
ur hans fjórir höfðu ekki ævin-
lega úr miklu að moða. Hann
komst þó í háskólann í Oxford og
lærði þar nútímasögu. Jafnframt
beindist athygli hans að forn-
fræði og í framhaldi af því lagði
hann leið sína til Sýrlands að
kanna byggingaminjar frá kross-
förunum. Hann ferðaðist um
landið fótgangandi og lærði á
því labbi arabísku af fólkinu,
sem hann umgekkst. Síðar bætti
hann þá kunnáttu upp með ýmsu
móti, meðal annars er hann vann
um hríð með hafnarverkamönn-
um í Port Saíd og lifði þá með
þeim sem einn þeirra. Á árun-
um fyrir fyrri heimsstyrjöldina
stundaði hann fornfræðirann-
sóknir víðs vegar í Austurlönd-
um nær, en lengst á Hittítaborg-
3. tbi. VIKAN 17