Vikan


Vikan - 15.01.1970, Qupperneq 35

Vikan - 15.01.1970, Qupperneq 35
 Hrútsmerkið (21. marz — 20. april): Tími þinn verður ódrjúgur, hann fer mikið í biðir og tafir. Þú færð gesti, en þeir hafa skamma við- dvöl. Þú sleppur við útgjöld sem þú hefur kviðið fyrir. Þú kynnist skemmtilegum manni. 0 Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú hefur nokkrar áhyggjur af gestum sem væntan- legir eru, en þeir fresta komu sinni um sinn. Þú kynnist hlutum sem reynist síðar meir mikils virði að hafa þekkingu á. Heillalitur er blár. Nautsmerkið (21. aprd — 21. ma(): Þér gefst góður tími til hvíldar og nýtur hans vel. Líkur eru á ferðalagi þar sem rómantík og fjör skipa æðsta sess. Þú tekur framförum á einhverju sviði. Föstudagur er heilladagur. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Frítími þinn fer mikið í að snúast fyrir aðra. Góð vika til að ganga frá ýmiskonar samningum sem varða atvinnu þína. Leggðu áherzlu á að fá öll lof- orð staðfest. Miðvikudagur heppilegur til verzlunar. Wm hjl Tvíburamerkið (22. moí — 21. júnl): Þú tekur ákvarðanir sem valda þáttaskilum í lífi þínu. Þú hefur töluverðar fjárhagsáhyggjur og verð- ur að ganga að óhagstæðum kjörum. Eldri maður kemur mikið við sögu þina. Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú tekur merka ákvörðun sem á eftir að hafa mik- il áhrif á afkomu þína. Kunningjar þinir reynast einkar samvinnufúsir, þegar til á að taka. Allt sem þú gerir einkennist af nákvæmni og hagsýni. M Rte Wt Krabbamerkið (22. júnl — 23. júlf): Þú vinnur mjög kappsamlega að áhugamáli þínu. Þú kemur auga á nýjar fjáröflunarleiðir, en ættir að fá einhvern félaga þinn með þér til frekari ráða- gerða. Vertu varkár. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú átt erfitt með að losna við gamlan hlut, hann virðist tolla merkilega við þig. í>að er mikils virði að samband þitt við nágrannana sé gott. Þið þurfið að vinna mikið saman á næstunni. Ljónsmerkið (24. júll — 23. ágúst): Þú notar allar frístundir til heimsókna og smærri ferðalaga. Þú fyrtist við kunningjakonu þína, en láttu ekki reiðina valda ykkur frekari erfiðleikum. Gleymdu ósættinni sem fyrst. Vatnsberamerkið C21. janúar — 19. febrúar): Þú kynnist persónu sem þér fellur afar vel við, vegna skoðana hennar. Metnaðardraumur þinn er að rætast, en hafðu taumhald á tilfinningum þín- um. Þú færð óljósar fréttir sem rugla þig í ríminu. Meyjarmerkið (24. ógúst — 23. september): Nágranni þinn opnar fyrir þér nýja möguleika. Þú verður spurður álits á vissum málefnum, en vafa- samt er hvort þú átt að segja eins og þér finnst. Þú skemmtir þér vel með fjölskyldunni. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Störf þín hafa tekizt með prýði. Þú gerir eitthvað eða segir sem þér finnst hafa komið upp um þig. Það gerir það að verkum að þú nýtur þin ekki sem skyldi, þér finnst allir horfa á þig. ALLT ASAMA GOLFI TIL AÐ SPARA YÐUR T(MA OG FYRIRHÖFN Tíminn er yður dýrmætur. Þróunin er i þá átt «8 mynda stórar heildir. Það á líka við i verzlun, ekki sízt þegar um er að ræða hluti eins og húsgögn, innréttingar, heimilistæki, hillusamstæður, eldhús og barnarúm. Með öðrum orðum: Allt til heimilisins. Allt á einu gólfi, úrvalsvörur eingöngu. Merkin tala sinu máli: Pira-hillusamstæður, Neff-rafmagns- tæki, Dúna-sófasett og dýnur, hlaðrúm og stólar frá Krómhúsgögn. Og þannig mætti lengi telja. Þér veljið í stofuna, í eldhúsið, í barnaherbergin og húsbóndahergergið. Allt á einu bretti — allt á sama gólfi. /--------------- HÚS OG SKIP ÁRMÚLA 5 SlMI 84415 OG 84416 V________________y

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.