Vikan - 15.01.1970, Side 39
<H>
NÝTT FRÁ RAFHA
NÝ ELDAVÉL GERÐ 6614. MEÐ 4 HELLUM, ÞAR AF 1 MEÐ
STIGLAUSRI STILLINGU OG 2 HRAÐSUÐUHELLUR, STÓRUM
STEIKAR- OG BÖKUNAROFNI. Yfir- o gundirhiti fyrir steikingu
og bökun stýrt með hitastilli. Sérstakt glóðarsteikar element
(grill), stór hitaskúffa, Ijós í ofni. Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð.
VIÐ ÖÐINST0R6 - STMI 10322
þykkur. „Starf konu er að þjóna
manni sínum,“ segir hann. „En
karlmennirnir hafa látið kon-
urnar ganga of langt. Við höfum
veitt þeim jafnrétti og það er
nokkuð sem ég trúi ekki á. Tal-
aðu við sjálfstæða konu nú til
dags og það sem hún segir við
þig er: „Hvernig get ég hlustað
á þig? Ég verð að standa mig
sjálf, vegna þess að ég trúi ekki
á karlmenn." En ef karlmaður er
maður, raunverulegur maður, þá
vill hver kona leggja allt sitt
traust á hann. Þegar kona er
með manni þá sér hún eitthvað
við hann. Það er ekki aðeins kyn-
ferðisleg þörf, heldur sér hún
eitthvað við persónuleika hans
og hún gefur sig alla. Karlmað-
ur getur sofið hjá hvaða konu
sem er og það kemur hvergi
nærri tilfinningum hennar eða
tilfinningum hans til konu sinn-
ar. Konur láta sem svo að þær
séu jafnar á við karlmenn, en
þær eru það ekki, því að þegar
kona elskar mann sinn er hún
honum trú Það er nefnilega
þannig að konuást er mun sterk-
ari en karlmannsást.“
Tom lýkur hljómleikaferð
sinni um austurströndina með
því að syngja í Philadelphia. f
„the Spectrum", sem er risastór
íþróttaleikvangur. Aðdáendurnir
æpa sig hása fyrir utan á meðan
Tommi klæðist í búningsher-
berginu og lúðrasveit leikur
marsa svo þokukennt, að engu
er líkara en að þeir séu í gufu-
baði. Enn einu sinni er svo þétt-
setið í kringum senuna að kon-
ungurinn birtist í lögreglufylgd.
Þegar hann svo stekkur upp á
sviðið þenjast 35000 lungu (tvö
á mann) af aðdáun og hrifningu.
Hávaðinn í fólkinu er svo mik-
ill að manni líður eins og höfuð-
ið á manni sé innan í bongo-
trommu og glampar Ijósmynda-
vélanna blossa hraðar en hægt
er að ímynda sér; hreint stacca-
to-bít.
Ung kona hleypur skyndilega
fram og býður Tom Jones sjálfa
sig; mannfórn. Lögreglumaður
grípur hana og þeytir henni til
baka. En þá koma þær. í hundr-
aðatali æða þær að sviðinu, þar
sem þær lenda á þéttri lögreglu-
mannakeðju er þeytir þeim aftur
til baka, hvað eftir annað, rétt
eins og þeir væru að handfjatla
lélega skreið. Umboðsmaður
Tomma gengur á milli og krefst
þess að enginn verði meiddur.
Það heyrist ekki orð af því sem
velski verkamaðurinn syngur.
Konurnar hafa þegar hent til
hans öllum þeim vasaklútum sem
til eru í salnum og þá hefjast
þær handa við að rífa utan af
sér fötin. Er hljómleikunum lýk-
ur liggja á sviðinu tugir belta og
snúra, tveir baðmullarkjólar,
skór, nælonsokkar, fleiri en
nokkur entist til að telja og einn
brjóstahaldari. f sitt hvoru horn-
inu liggja hárkollur, fjórar tals-
ins. Stúlkukind ryðst í gegn og
heldur á stórum kas.sa í höndun-
um. Lögreglumaður slær hann af
henni um leið og hún kemur upp
á sviðið og kassinn dettur á gólf-
ið. Lokið af og þar með opinber-
ast stór og mikil terta — í þrem-
ur bútum — sem á er letrað með
bleiku: „Við elskum þig, Tom, —
Thelma og Carol.“
Bak við sviðið er rætt um það
hvernig eigi að koma honum af
senunni án þess að hann verði
troðinn undir. Loksins fær hann
höfuðhneigingu írá umboðsmann-
inum, Gordon Mills (sem upp-
götvaði hann), PÚFF! allt er
svart og Tom horfinn.
Niðri í kjallaranum bíða átta
ungir menn í einni röð. Þeir eru
allir í hjólastólum og nýkomnir
frá Viet Nam. Því hafði verið
komið þannig fyrir að þeir yfir-
gæfu salinn nokkrum mínútum
áður en hljómleikunum lauk, svo
þeir gætu heilsað upp á Tom og
fengið eiginhandaráritanir. Þeir
eru ekki sérstaklega hrifnir, er
alveg sama, en einhverjum datt
þetta í hug. Þeim hinum sama
datt hins vegar ekki í hug að láta
Tom Jones vita. Hermennirnir
bíða í rúman hálftíma, en þá er
gefizt upp. Það er of seint, því
Tom er farinn.
Því miður. Honum hefði ekki
verið sama.
☆
Vor um haust
Framhald af bls. 11.
en á mörgum öðrum sviðum og
að margir, sem lítil fjárráð hafa,
velji blóm til tækifærisgjafa nú
en oft áður.
—- Hvernig virðist þér ungu
fólki falla garðyrkja.
— Ég held óhætt sé að segja,
að margir fái talsverðan áhuga,
þegar þeir kynnast starfinu, og
sumir finni þar hugstæða leið til
framtíðar. Skólafóík sækir fast
að komast í garðvinnu á sumrin.
Veldur þar miklu um, möguleik-
inn til útivistar.
Jón H. Björnsson býr ásamt
konu sinni, Margréti Gunnlaugs-
dóttur, og fjórum börnum þeirra
á sólríku heimili í höfuðborginni.
Þar er unnið jöfnum höndum að
uppeldi barna og blóma.
Senn líður að vetrarsólhvörf-
um og þá er kominn tími til að
undirbúa næst'u vordaga.
Þ.M.
Arabíu-Lárens
Framhald af bls. 18.
líf sitt og hét Sjö súlur vizkunn-
ar (Seven Pillars of Wisdom), er
svohljóðandi tilvitnun, tileinkuð
„S. A.“: „Ég elskaði þig, og þess
vegna hrærði ég þessar öldur af
mönnum með höndum mínum.“
Margir áhugamenn um Law-
rence hafa brotið heilann um
hver þessi S. A. hafi verið.
Brezkur liðsforingi, sem vann
með Lawrence í eyðimörkinni,
hefur fullyrt að hún hafi verið
Gyðingakona, búsett í Damaskus.
Hún var í vinfengi við Law-
rence, og af þeim sökum tóku
Tyrkir hana til fanga og reyndu
með pyndingum að fá upp úr
henni hvar Lawrence héldi sig.
Hún þrætti lengi vel, en þar
kom að kvalirnar fóru að vinna
bug á henni.
Nú vildi svo til að einn böðl-
anna var njósnari í þjónustu
Breta. Þegar hann sá að stúlkan
var í þann veginn að gefa um-
beðnar upplýsingar, réð hann
henni bana svo lítið bar á.
Mjög hefur verið um það deilt
hvort hernaðaraðgerðir Law-
rences og Araba hans hafi haft
mikið eða lítið gildi fyrir stríðs-
rekstur bandamanna. Víst er um
það að þessi undursamlegi forn-
fræðingur vann mörg frábær af-
rek, miðað við allar aðstæður,
en hins vegar er svo sem trúlegt
að Allenby hefði hrakið Tyrki
úr Palestínu og Sýrlandi hvað
sem arabísku skæruliðunum leið.
Eftir að Lawrence var setztur
að í Dorsetshire, átti hann við
nokkuð sérstæða heimilisplágu
að búa. Kráka nokkur (sumir
segja mávur) var vön að koma
á gluggann og gogga’ í rúðuna.
Honum líkaði þetta illa, hljóðið
af höggum fuglsins gerði hann
dapran í bragði og rifjaði upp
fyrir honum leiðinlegar endur-
minningar. Hann flutti í annað
herbergi, en fuglinn flutti líka.
Svo var það dag nokkurn að einn
vina Lawrences tók byssu og
skaut fuglinn.
Og haft er fyrir satt að á sama
andartaki hafi höfuðkúpa Law-
rences brotnað á veginum
skammt frá.
dþ.
Einn gegn þúsund
Framhald af bls. 31.
með senditækið og allt dótið.
Áreiðanlegur drengur frá næstu
byggð, Hilmar, varð aðstoðar-
maður hans. Þar að auki hafði
hann marga menn í þorpinu sér
til aðstoðar, t.d. Jarvold, kaup-
mann á Oneyju. Móðir Kristof-
fersens kom með mat til hans í
felustaðinn, eftir að þeir misstu
matvæli þau, sem hann kom með.
s. tbi. VIKAN 39