Vikan - 15.01.1970, Side 45
— Eruð þér tilbúin? Eigum við
að koma?
Við gengum að hliðinu.
— Hélt hún yður lengi vakandi í
nótt?
— Nei, ekki mjög lengi. Ég var
kominn í rúmið áður en óveðrið
skall á.
— Garðurinn er dásamlegur eftir
regnið.
— Voruð þér eitthvað á ferli?
— Smástund, ég var að hlusta á
næturgalana.
Við gengum gegnum húsagarð-
inn, þar sem við Hamid höfðum
beðið daginn áður. Hann var líka
hreinþveginn af regninu og marm-
arasúlurnar voru hvítar. Ég sá að
blómakerin voru full af blómstrandi
anemonum.
— Þetta er Adonistrjágarðurinn
minn, sagði Joþn Lsthman. Þér
þekkið sjálfsagt goðsöguna um Ad-
onis?? Adonistrjágarðar eru tákn
dauða og upprisu. Ég er að skrifa
ritgerð um þetta efni, og hér í
grenndinni eru margar sögusagnir
á kreiki. Þegar ég hefi stund aflögu,
rið ég til fjallaþorpanna og tala við
fólkið.
Við vorum nú komin að fremsta
húsagarðinum.
Hliðin voru lokuð, það leit út
fyrir að Nasirulla væri ekki kominn.
Hann leit á klukkuna.
— Hann er seint á ferð í dag.
Bíðið ancfartak, ég skal opna hliðið.
Ég þarf |ílfe að lofta út hjá Kasha.
Hann gekk að hesthúsinu og opnaði
dyr; fyrir innan þær stóð arabizkur
gæðingur.
— Eruð þér í skikkju, þegar þér
ríðið um? spurði ég.
Hann var undrandi á svipinn.
— Já, oftast. Það er svalara.
Hversvegna spyrjið þér?
Sáuð þér mig, þegar ég reið upp
að Adoniskeldunni í gær?
— Já, og hundarnir voru með
yður. Það var mjög rómantísk sjón.
— Og nú hefi ég eyðilagt alger-
lega þá mynd fyrir yður? Þér vitið
nú að þetta var ekki arabizkur höfð-
ingi á gazelluveiðum.
Mér kom ekki neitt svar í hug.
John Lethman vissi eins vel og ég,
að þetta starf hans hjá Harriet
frænku myndi fljótlega taka endi.
Eða hafði hann hugsað sér eitthvað
annað; ætlaði hann að eignast Dar
Ibrahim, og búa þar í framtíðinni?
Það gat verið að niðurníðslan á
höllinni væri ekki vegna peninga-
skorts, heldur vegna þess að gamla
konan var orðin gömul og sljó.
Við vorum nú komin alveg að
hliðinu. Nasirulla var ekki kominn
ennþá, svo John Lethman opnaði
sjálfur.
— Bílstjórinn yðar er ekki kominn
ennþá, sagði hann.
— Ég geng til móts við hann. Og
ég þakka yður fyrir það sem þér
hafið gert fyrir mig, herra Lethman!
Ég rétti honum höndina.
— Ég skal líka gera það sem ég
get fyrir frænda yðar, en hvort það
ber árangur, veit ég ekki. Þér meg-
ið ekki vera alltof bjartsýn á það.
Verið þér sælar!
PÉR SPARID
MEDÁSKRIFT
ÞÉR GETIÐ SPARAÐ FRÁ KR. 7.50 TIL KR. 15.38 MEÐ ÞVI AÐ
GERAST ÁSKRIFANDI AÐ VIKUNNI
OG t>ÉR ÞEKKID EFNIÐt
riRBIAUNAKROSSGAIA VIKUNNAR^
VIKAN EB HEIMBLISBLAÐ OG t ÞVt EBU GREINAR OG EFNI FYRIR ALLA A nEIMn.TNP, — UNGA OG
GAMLA, SPENNANDI SÖGUB OG FRÁSAGNIR, FRÓÐLEIKUR, FASTIR ÞÆTTIR O.FL., OJL,
Vinsamlegast sendiS mér VÍkuna í áskrift
r
i
i
i
L
4 TÖLUBLÖÐ Kr. 170.00. Hvert blað á kr. 42.S0.
3 MÁNUÐIR . 13 tölubl. - Kr. 475.00. Hvert blaS á kr. 36.58.
6 MÁNUÐIR . 26 tölubl. - Kr. 900.00. Hvert blað 6 kr. 34.62.
Gialddagar fyrlr 13 tölubl. og 26 tölubl.: 1.' febrúar —
1. maí — 1. égúct — 1. nóvember.
Skrifið, hririglS eða komiS.
PÓSTSTÖÐ
VIKAN
SKIPHOLTI 33
PÖSTHOLF 533
REYKJAVÍK
SfMAR:
36720 - 35320
i
i
i
j
3. tbi. VIKAN 45