Vikan


Vikan - 26.02.1970, Blaðsíða 32

Vikan - 26.02.1970, Blaðsíða 32
FIIMINGJUðT Veljiö TERYLENE fermingafötin meö tizku-sniöinu! * Urval lita og mynstra. 1? 1? T f T TT Austurstr.10. o* Oé 1* «# U XV símU 11258 STJÖRNUSPÁ- * *■ % # Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl); Þú færð gott tækifæri á vinnustað til að maka krók- inn. Þú verður fyrir óþægilegum aukaútgjöldum, en með aðstoð fjölskyldunnar og góðra vina, tekst þér að standa undir þvi. Þú ættir að lyfta þér örlítið upp. Vogarmerkið (24. september — 23. október): í gegnum kunningja þinn eignastu vin, sem hefur sama áhugamál og þú. Samvinna ykkar í milli gæti orðið afbragðsgóð ef þið farið varlega í sakirnar. Pú færð hlut, sem þú lánaðir fyrir mörgum árum, aftur. #r Nautsmerkið (21. apríl — 21. ma(); Þú ættir að athuga framferði þitt í því Ijósi, að ein- hver annar hefðist hið sama að. Þér gengur vel í starfi þínu. Þú hefur um margt að hugsa á fjár- málasviðinu. Gættu þín á varasömum eldri manni. & Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú verður þátttakandi í rausnarlegri gjöf. Nokkur fjárútlát verða í sambandi við lúxushlut í þinni eigu. Vinur þinn heimsækir þig og færir þér gjöf, að líkindum góðan listmun. Vertu sem mest heima. ff Tvíburamerkið (22. maí — 21. jún(): Þú færð gjöf, sem þú þarft að dútla nokkuð við, áð- ur en hún gerir sitt gagn. Vinur þinn, sem þú heim- sækir, býðst til að gera þér greiða. Þú skalt fara í þau fjölskylduboð, sem þér er boðið í, fortakslaust. & Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Ef þú vilt njóta starfskrafta þinna og getu verðurðu að treysta á sjálfan þig. Ef þú vilt verða sjálfstæður þarftu að brjóta margar brýr að baki þér. Þú ættir að notfæra þér þau tækifæri, sem þú hefur, betur. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Það sem eyðileggur fyrir þér að njóta lífsins er hin sífellda peningagirni þín. Ef þú lítur i kringum þig sérðu að þú vanrækir nokkuð. sem er miklu meira virði. Vinkona þín gerir þér mjög góðan greiða. & Steingeitarmerkið (22. desember —, 20. janúar); Þú ert með samvizkubit vegna aðgæzluleysis þíns. Þú verður fyrir áreitni ofstækismanna. Þú ættir að verja einhverju af vasapeningum þínum til að gleðja aðra. Hoilasta tómstundaiðjan er lestur góðra bóka. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Til þess að geta annað öllu því, sem að þér steðjar, þarftu að hafa öll spjót úti. Kunningjar þínir verða fyrir leiðinlegum svikum. Þú átt góðan vin, sem þú ættir að leita til með vandræði þín. Heillatala er 2. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Flutningar, sem eiga þó ekki við þig, verða engu að síður til nokkurra hagsbóta fyrir þig. Þú munt nokk- uð þurfa á diplómatiskum hæfileikum að halda. Til- viljunarkenndur atburður vekur þig til umhugsunar. & Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þú ert í nokkuð slæmri aðstöðu en eins og stendur þýðir ekkert annað en að vera þolinmóður. Þú verð- ur fyrir útgjöldum vegna hlutar, sem vinur þinn pressar inn á þig, en síðar blessarðu hann fyrir það. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú hefur ágætt tromp á hendinni, sem þú skalt nota þér á varfærinn hátt, með því móti gætirðu haft góðan slag. Þú ættir að anna meir þeim ritstörfum, sem pressa samvizkuna. Þú ferð í skemmtilegt boð. S2 VIKAN 9 tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.