Vikan


Vikan - 26.02.1970, Blaðsíða 49

Vikan - 26.02.1970, Blaðsíða 49
Sukarno reynir að verja mál sitt, en Suharto lilustar á og lygnir augunum. Ég kæri mig ekki um að verSa stjarna, en ég vil heldur ekki vera lag- leg brúSa......... Hún er lítil og í'ríð, með svart hár og' möndlulaga augu. Hún er orðin leið á að lifa tilgangslausu lúxuslífi, og hefir ekki átiuga á samkvæmum. Kvikmyndaframleiðandinn Dar- rvl F. Zannuclc hefir beðið hennar en hún hryggbraut hann. Hin tuttugu og níu ára gamla Ratna Sari Dewi, sem enn- þá er eiginkona Sukarno, fyrrverandi forseta og einræðis- lierra Indonesiu, hefir í fjögur ár verið búsett i Tokyo, New York og París og reynt að finna grundvöll fyrir framtíð sina. Hún vill gera öðrum gott og sporna við ofbeldi. Hún hefir lært hjúkrunarstörf i París. Hún hefir skrifað ádeilu- greinar tim núverandi forseta Indonesíu, Suharto, í japönsk vikublöð, og kallar liann þar „mesta fjöldamorðingja á frið- artímum“. Ratna Sari Dewi og Kartinka, hin þriggja ára dóttir henn- ar, fara aldrei út úr íbúðinni við Avenue Montaigne i París, nema' að þeim fylgi öryggisvörður. Hún er ekki lengur örugg um líf sitt, siðan liún skrifaði þessar greinar um for- setann, og það sem verra er, að henni finnst, hún er hrædd um að það verði látið bitna á Sukarno, og þessvegna hefir hún stigið það skref, sem allir kunningjar hennar voru hissa á, það er að hún hefir beðið um skilnað frá eiginmanni sinum, hinum 68 ára Sukarno, fyrrverandi forseta, sem nú býr í lítilli villu i útjaðri Djakarta. Árið 1959 giftist þessi fallega japanska stúlka hinum þá- verandi einræðisherra eyrikisins. En þegar veldi hans fór stöðugt minnkandi og Suharto náði völdum, flúði Ratna til útlanda árið 1967. Hún hefir ekki einu sinni staðið í bréfasambandi við eiginmann sinn siðan. En i Tokyo fór hún til sendiherra Indonesiu, Maliks, og bað hann að fá Sukarno hréf, þess efnis að hún vildi fá skilnað frá honum. Iliroya Hirai, lögfræðingur hennar skýrði þetta á þann hátt, að hún áliti öruggara fyrir Sukarno að hún skildi við liann, þar sem Suharto myndi annars jafnvel láta Sukarno sæta líkamlegum refsingum, vegna greinanna og þess sem hún hefir látið blaðamenn hafa eftir sér. Sukarno hefir séð til þess að Ratna þai'f aldrei að vera peningalaus, það er sagt að hann hafi verið búinn að koma liundruðum milljóna fyrir í erlendum bönkum, áður en hann missti völd. En Ratna neitar því, segist aðeins hafa rétt nóg til að lifa af, hún er reiðubúin til að verja allar gerðir Sukarnos með kjafti og klóm eins og tigrisdýr. Eins og er, lifir hún fyrir dóttur sína, og veit að það er órnögu- legt að treysta því að hún eigi nokkurn tíma eftir að búa með eiginmanni sínum, enda sé það bezt fyrir báða parta að þau skilji.... Það eina sem Sukarno hefir nú til minningar um hina fallegu eiginkonu sína, er stórt olíumálverk af henni. Myndir af Sukarno voru allsstaðar rifnar af veggjum og myndir af Suharto settar í staðinn.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.