Vikan


Vikan - 26.02.1970, Blaðsíða 34

Vikan - 26.02.1970, Blaðsíða 34
PLASTBREFABINDIN sem seldust upp um daginn, eru nú aftur í framleiðslu Stærðir: 38,5x29 36x37,5 32x27,5 23x27,5 23x22 17x27,5 Þeir, sem kaupa einu sinni, kaupa aftur. — Og alltaf bætast nýir kaupendur í hópinn. .. GóSfúslega pantið tímanlega MÚLALUNDUR Öryrkjavinnustofur S.Í.B.S. — Ármúla 16 — Símar: 38400 — 38401 — 38450 Með stráhatt í biðilsbuxum Framhald af bls. 15 Tuffy leit á Nancy til að sjá hvað hún hefðist að, en hann leit ekki framan í hana því hann gat ekki slitið augun frá hvítu sokka- böndunum á lærum hennar. Nú strauk hún kjólfaldinn aftur nið- ur fyrir hnén, en um leið og hún hallaði sér aftur á bak hljóp hann upp fyrir hnén á ný og lærin fýrir ofan sokkfitjarnar komu í ljós. „Ætlaðir þú ekki að tefja hérna?“ spurði Berry. „Ég veit ekki hvort ég geri það í þetta sinn,“ svaraði Tuffy. „Ég ók bara hérna fram hjá og datt þá í hug að líta inn.“ Clyde kastaði bita af melónu- hýði í tré úti í garðinum. „Það er langt síðan ég hef séð þig svona upp á færðann," sagði Berry. ,Ef ég man rétt var það síðast við skírnina í kirkjunni fyrir mánuði síðan. Var það ekki þá, sem þú varst svona glerfínn?" Nency hló og faldi andlitið bak við öxlina á systur sinni. Tuffy sótroðnaði í framan. „Þá var ég ekki með þennan nýja hatt,“ sagði hann. „Ekki það,“ sagði Berry. „Það 34 VIKAN 9-tbl- mun rétt vera. En þessi hattur hæfir þér svo vel að ég gleymdi honum alveg. En varstu þá í þess- um frakka?" Tuffy kinkaði kolli samþykkj- andi og boraði sem ákafast með tánni niður í jörðina. „Bara að þú hefðir komið ofur- lítið fyrr,“ sagði Berry. „Nú er um seinan að ná í góðan bita úr melónunni. Leifarnar eru varla manni bjóðandi. En ef þú ert ekki mjög kræsinn getur þú kannske gert þér þær að góðu og bjargað þér sjálfur." Annar strákurinn sparkaði melónubita niður í garðinn, hann féll á jörðina rétt við tærnar á Tuffy. Hann leit á bitann, sem var allur ataður sandi. „Hvert ert þú að fara?“ kall- aði Henry. „Ekkert sérstakt," svaraði Tuffy. „Hvernig væri að við brigðum okkur spölkorn saman?“ sagði Henry og drap titlinga. Það er ýmislegt um að vera á sunnu- dagskvöldum yfir í Hardapan." Tuffy stalst til að líta sem snöggvast á Nancy. Einkennilega óræður svipur hennar olli hon- um óþægindum. Sokkaböndin voru enn sýnileg, þegar hún ruggaði sér í stólnum. Ennþá hvarflaði Tuffy augum til jarð- ar. „Ég held það geti ekki orðið núna,“ svaraði hann Henry og roðnaði enn meir en áður. Ungu stúlkurnar fóru að hvísl- ast á. Öðru hverju stalst Nancy til að líta á Tuffy. Tuffy tók ofan hattinn og veif- aði honum framan við andlitið til að kæla vanga sína. „Það fer að verða kominn tími til að hugsa fyrir refaveiðunum, er ekki svo, Tuffy?“ sagði Berry. „Það er farið að kula dálítið um lágnættið. Og ekki skaðar að fara að hreyfa hundana, hita þá svolítið upp Þeir hafa nú legið í leti í allt sumar. Ég hef verið að hugsa um það síðustu dagana að fara á kreik með þá einhverja nóttina og lofa þeim að hlaupa dálitla skorpu." Tuffy kinkaði kolli, en þagði. „Mér hefur dottið í hug að kaupa eitt par af veiðihundum til viðbótar." sagði Berry. „Surt- ur er eilítið haltur síðan í fyrra- sumar og Elsie er hvolpafull. Ég held það væri ekki svo vitlaust að kaupa, ef ég fengi eitthvað, sem mér hæfði?“ Tuffy leit ennþá einu sinni á Nancy, og var kominn á flug- stig með að segja eitthvað, en úr því varð ekki annað en að hann kyngdi munnvatni sinu. Tillit hans var svo örvæntingarfullt, að Nancy strauk kjólinn ákveðið niður fyrir hnén og hélt honum þar kyrrum. Tuffy fannst líkast því sem húð hans væri stungin óteljandi þyrnum innan undir fína frakkanum. Clyde dinglaði fótunum fram af veröndinni og horfði á Tuffy. Líðan Tuffy var óbærilegri með hverju augnabliki, sem leið. Hann var nú búinn að standa þarna fullan hálftíma í sól- sterkjunni og fann að hann var að verða óstyrkur á fótunum. „Ég dáist að nýja stráhattin- um þínum, Tuffy,“ sagði Berry. „Einkum fallega marglita borð- anum.“ Tuffy leit örvæntingarfullur á Nancy og síðan á alla fjölskyld- una. Allir störðu á hann nema Nancy, hún laut höfði, þegar augu þeirra mættust. Henry gekk yfir garðinn til hans og tók eitthvað upp úr vas- anum. Hann fór að teygja þetta og lét smella í því. Tuffy sá að þetta var kvensokkaband úr ljósrauðri silkiteygju. „Hafðu ekki svona fljóta ferð,“ sagði Berry. „Þú hefur ekki stað- ið við nema andartak.“ Tuffy vék sér til hliðar, en Henry fylgdi honum eftir og sló hann stöðugt með teygjuband- inu, þannig að hann lagði annan enda þess við handlegg hans, teygði bandið og sleppti síðan endanum. Tuffy hrökk við. „Hvert ert þú að fara, Tuffy?“ spurði Henry. Tuffy leit upp í anddyrið þar sem Nancy sat nú upprétt í stóln- um og laut lítið eitt áfram. Stíf- aða pilsið hafði ennþá færzt úr skorðum svo hann sá hvítu sokkaböndin hennar auðveld- lega. Hann hörfaði yfir garðinn, — Henry fylgdi honum eftir og lét teygjusokkabandið stöðugt ganga á honum. „Við skulum aka yfir til Hard- pan, Tuffy.“ bað Henry. „Við verðum ekki í vandræðum að komast þar yfir stelpur. Það er alltaf svo gott til kvenna á sunnudagskvöldum. Hvernig lízt þér á það, Tuffy? Ha??“ Tuffy hristi höfuðið og hörf- aði ennþá hraðar aftur á bak. Þegar hann kom að trénu þar sem bíllinn hans stóð, sneri hann sér við og stökk upp í framsætið. Nancy hljóp í spretti inn í hús- ið. Skælurnar í henni heyrðust alla leið út í garðinn. Þegar Tuffy ræsti bílinn reis Berry á fætur og gekk út í garð- inn. Hann fylgdi bílnum eftir með augunum þangað til hann hvarf bak við hæðina. Hann lét sem hann heyrði ekki blót og formælingarnar í Henry. „Mér er bölvanlega við að sjá menn þ.ióta svona burtu,“ sagði Berry. ,Ég hefði þorað að bölva mér upp á að strákurinn kæmi einhverra erinda hingað.“

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.