Vikan


Vikan - 26.02.1970, Blaðsíða 25

Vikan - 26.02.1970, Blaðsíða 25
SHADY ÁFRAM TIL TRÚBRYTIS: Það er nú lýönum kunnara en frá þurfi að segja, að Shady Owens er hætt við að hætta að syngja með Trúbroti — að minnsta kosti í bili. Segist hún hafa farið að hugsa málið betur, og þá komizt að því að þetta væri reginvitleysa. — Verður hún því áfram með hljóm- sveitinni og syngur sína þrælablúsa, þann tíma sem hljómsveitin er samningsbundin og jafnvel áfram. Biðjumst við því hér með afsökunar á því að hafa lýst því yfir um daginn að hún væri hætt, en því er að kenna hægum „prósess“ í vinnslu blaðsins. TJÁB MEB TÁIIM: LfSA Það kemur alltaf fyrir öðru hvoru að framtakssamir ungir menn taka sig til og halda popphátíðir og hljómleika. Á um það bil hálfu ári hafa verið haldnar þrjár slíkar hátíðir hér í Reykjavík, og er þar með senni- lega upptalið allt stórpopplíf á þessu feðranna fróni. Fyrst var haldin popp-festival í Klúbbnum, og var það nokkuð sæmilegt, en skipulagn- ing var léleg. Var þar boðið upp á allt það bezta sem til er hér á landi á þessu sviði, og tónlistarleg gæði festivalsins nokkuð mikil. Síðan kom popp-hátíðin í Laugardalshöllinni í september, og allir vita hvílíkt regin- hneyksli sú útgerð var þó hátíðin sjálf hafi farið mjög vel fram. Ég er allsendis ófeiminn við að segja að það var algjörlega hljóð- færaleikurunum sjálfum að þakka að Laugardalshöllin stendur ennþá, og þar sýndu þeir rækilega að popp,,kallarnir" á íslandi eru ekki hugs- unarlaus lýður — eins og sumir hafa látið sér um munn fara Síðasta framtakið á popphátíðarsviðinu var framkvæmt 3. febrúar síðast- liðinn í Glaumbæ. Var þar SA/\A-klúbburinn að verki, en sá klúbbur mun vera nokkurskonar annað veldi ritstjóra unglingablaðsins SAMúELs, sem út kom í sumar. En sú hátíð var einnig heldur misheppnuð. Var það aðallega að kenna frámunalega lélegum hljómsveitum, og heldur slæmri skipulagningu Eina hljómsveitin sem gerði góða hluti á þessum SAM-festival, var sam- steypan úr Tárinu og Tjáningu, sem hlotið hefur nafnið Lísa, enda var beðið eftir hljómsveitinni af hvað mestri eftirvæntingu. Lísa er nokkuð merkileg samsteypa; meðal annars fyrir það að hún er stærsta popphljómsveit á íslandi — hana skipa hvorki meira né minna en sjö menn, allt prýðisgóðir hljóðfæraleikarar. Þá er hljóðfæraskipan nokkuð önnur en við höfum átt að venjast, en hún er: gítar (Þorgils Baldursson), bassi (Páll Eyvindsson), orgel (Ólafur Torfason), trompet (Sven Arve), saxófónn (Sigþór Hermannsson), trommur (Sigurður Karlsson úr Pónik), og söngvari, sem er Benedikt Torfason. Það sem einna helzt skemmdi fyrir Lísu í Glaumbæ var illa stillt söng- kerfi og fullmikill hávaði. En haldi hljómsveitin áfram að æfa er hún þess virði að henni sé veitt athygli. Ég talaði um slæma skipulagningu, og þar á ég við að vera að láta listamenn eins og Gaston og Patrice troða upp á svona stöðum, þar sem fyrirfram er vitað að lítið er á þá hlustað og skvaldur er mikið. Meiri- hlutinn af því efni sem þeir félagar fluttu fór fyrir ofan garð og neðan hjá gestum, og það sama má segja um Fiðrildi, það stórskemmtilega tríó. Einnig er það nokkuð hæpin tilhögun að halda svona samkomur, þar Framhald á bls. 40. LÍSA: Benedikt Torfason, Svcn Arve Hovland, Sigþór Hermannsson, Sigurður Karlsson, Páll Eyvindsson. Ólafur Torfason og Þorgils Baldursson. 9. tÞi. VIKAN 25

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.