Vikan


Vikan - 26.02.1970, Blaðsíða 4

Vikan - 26.02.1970, Blaðsíða 4
r 9 ■1 3IÐAÍ iÍÐAS' Sannleikurinn er sagnafár, en lygin langorð. íslenzkur málsháttur. # fólk í fréttunum Elizabeth Taylor er af mörgum talin feg- ursta kona heims eins og kunnugt er og veit það svo sannarlega sjálf. Eitt sinn fékk hún næstum taugaáfall, þegar sagt var við hana, að nú væri hún ekki lengur fegursta kona heims, heldur yrði að láta sér nægja að skipa annað sætið á listan- um. Ef til vill hefur áfallið verið ennþá þyngra fyrir leikkonuna, þar sem það var ljósmyndarinn hennar, Sam Shaw að nafni, sem sagði þetta við hana. ■—- Nú, sagði hún, þegar hún hafði náð sér að mestu. — Og hver er hún þá, þessi, sem þú telur vera fallegri en ég er? — Dótturdóttir mín, svaraði ljósmyndarinn brosandi. — En þú getur huggað þig við, að hún er ekki nema fjögurra vikna gömul enn. —O— Eitt sinn var hertoginn af Edinborg boð- inn að vera viðstaddur á þingi arkitekta sem heiðursgestur. Á þessu þingi spurði hann einn af þessum mönnum. — Og hvað byggið þið svona yfirleitt núna? Arkitektinn svaraði, að hann væri um þessar mundir önnum kafinn við að byggja stórhýsi í Viktoríustræti, sem ekki er ýkja langt frá Buckingham-höllinni. — Nújá, svaraði hertoginn, —- svo að það eruð þér sem truflið sjónvarpið mitt. í hvert skipti sem ég ætla að horfa á krikett-kappleik, sé ég alltaf leikmennina tvöfalda. Þótt undarlegt megi virðast hafði hertoginn af einhverri eðlisávís- un hitt naglann á höfuðið. Þegar arkitektinn rannsakaði málið, kom í ljós, að það var rafmagnskrani á þessu svæði, sem truflununum olli, og arkitektinn var ekki lengi að láta einangra kranann, svo að hið konunglega sjónvarp kæmist aftur í lag. —O— Á afmælisdegi sínum tók Jóhannes páfi XXIII eitt sinn á móti tilboði um nýja páfakórónu. Tilboð þetta kom frá fæðing- arþorpi hans, Belgamo. Með tilboðinu fylgdi uppkast af kórónunni. Var það mjög skrautlegt og kórónan skreytt með- al annars með vínviðarlaufi og vínþrúg- um. En hans heilagleiki hristi bara höfuð- ið og brosti góðlátlega, og hafnaði þannig hinu góða boði. —- Þessi kóróna, sagði hann, — hún er alltof fögur og áberandi fyrir hlédrægan mann og gamlan eins og mig. Og auk þess munu öll þessi vínviðarlauf og vínþrúgurnar gera það að verkum, að ég líkist ekki yfirmanni kristinnar kirkju, heldur hinum gamla róm- verska guði, Bakkusi. —O— Janio Quadros, forseti Brasilíu, skipaði eitt sinn öllum starfsmönn- um hins opinbera að klæðast sérstökum búningi. Voru þetta stein- gráar buxur og stuttermaskyrta í sama lit. Tilskipan þessi var gefin út vegna þess, að starfsmenn ríkisins þóttu helzt til latir og kæru- lausir um starf sitt. í stað þess að vinna var algengt að þeir gengju úti sér til skemmtunar eða sætu á bjórkrám svolgrandi bjór. Nú getur forsetinn hins vegar eða hver sem er fylgzt með athæfi þeirra. 4 VIKAN 9 tbl BURT MEÐ NAFN ÞEIRRAR FYRRVERANDI Englendingur sá er kvað vera mest tattóveraður þar í landi heitir Pat Hylton og er tuttugu og þriggja ára. Hann var eitt sinn með stúlku sem heitir Sadie og lét flúra nafn hennar á bringu sér innanum heilmikið annað pírumpár, rósir og turtildúfur. En nú heitir kærastan hans Val- erie, og hún hefur engan smekk fyrir því að hann sé að spranga um með nafn fyrri vinkonunnar á sér berum. Hún hefur sett Pat úrslitakosti: annaðhvort flærðu á þér bringuna eða ég segi þér upp. ☆ • korn • í einum litlum bæ í Frakk- landi er veitingahús, sem heitir krossgátuhúsið. Skýringin á nafninu er ofur einföld: Gest- irnir koma lóðréttir inn, en eru bornir láréttir út! • Þekktur danskur söngvari er fyrir nokkru kominn í hvítlauks- megrunarkúr. Á fjórtán dögum hefur hann misst 4 kíló — og 40 vini. • Forstjórinn hefur sjaldan áhuga á einkalífi starfsmanns síns — fyrr en hann hleypur á brott með kassann. STUTT OG LAG- GOTT Piparsveinn er sá maður, sem heldur vill geyma hugsunina um tíu konur í höfðinu, en hafa eina yfir höfði sér. • Hinn iðni kennari hafði ný- lega sagt strákunum söguna um lambið, sem hafði farið út úr hópnum og varð úlfinum að bráð þess vegna. — Þarna sjáið þið, strákar. Hefði lambið verið þægt og aldr- ei hlaupið burt frá móður sinni, þá hefði úlfurinn aldrei étið það. — Nei, þá hefðum við bara fengið Iambasteik að haustinu, greip einn drengjanna fram í. • Sacha Guitry páraði eitt sinn þessa athugasemd í vasabók sína: — Löstur á manni er hræðileg- ur. En hafi menn nógu marga lesti, þá eta þeir hvem annan upp.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.