Vikan - 08.10.1970, Page 4
Meðal sem
stöðvar hárlos
Margir hafa spreytt sig á að
finna upp meðal við hárlosi, en
enn hefur engum tekizt það. Sá
sem hefur komizt næst því er
lyfjafræðingur í Júgóslavíu, Ce-
domir Mitic að nafni. Það þykir
sannað, að lyf hans, Allin, stöðvi
hárlos, en hins vegar megnar
það ekki að fá hár til að vaxa
aftur á stöðum, þar sem hár-
frumurnar eru dauðar. En sem
sagt: Þær stöðva frekar hárlos,
og það þykir flestum betra en
ekkert.
Mitic hefur í tuttugu ár verið
smátt og smátt að fullkomna
þetta lyf sitt, sem er aðallega
fólgið í jurtum. Hann fékk hug-
Á meðan við bíðum
Það var yfirfullt á biðstofu
læknisins. Sjúklingarnir sátu þétt
saman og sumir urðu að standa.
Þeir sem ekki voru á kafi í dag-
blöðum og vikublöðum, störðu
þreytulegir út í loftið. Og tíminn
leið...
Að lokum hafði gamall maður
með hvítt, sítt skegg fengið nóg.
Hann stóð á fætur með erfiðis-
munum, skjögraði að dyrunum,
sneri sér þar við og sagði hátt við
hina:
— Nei, þá er betra að fara
heim og deyja eðlilegum dauð-
daga.
Því lastar hegrinn vatniS, að
hann kann ekki að synda.
íslenzkur málsháttur.
Stefan Oílson, fjögurra ára, fór skyndi-
iega að missa hárið og kunnu læknar
enga skýringu á því. Tveggja vikna
kúr með Allin stöðvaði hárlosið og
meira að segja tók ofurlítið hár að
vaxa, en mjög þunnt og rytjulegt.
myndina þegar á stúdentsárum
sínum, þegar herbergisfélagi
hans byrjaði skyndilega að misa
hárið — og auðvitað vitið um
leið. Mitic minnist þess að hafa
lesið einhvers staðar, að í Kína
á fimmtándu öldu hefði hvít-
laukur verið notaður sem lyf
gegn hárlosi. Hann tók að sulla
saman ýmsum jurtum og gerði
jafnharðan tilraunir á hinum ör-
væntingarfulla vini sínum. Loks
hafði hann sett saman blöndu,
sem gerði gagn, svo að hárlos
vinarins stöðvaðist.
Síðan hefur hann verið að full-
komna lyfið sitt og hefur öðlast
mikla frægð fyrir það. Sumir
segja, að hann sé orðinn jafn
þekktur í heiminum og sjálfur
Tító.
Ritningin og siSferðið
Kennslukonan í kvennaskólan-
um var guðhrædd og siðavönd
og var vön að tala til nemenda
sinna um kristileg efni.
Eitt sinn sagði hún:
— Við verðum að bera það sem
drottinn leggur okkur á herðar.
Minnist jafnan orða ritningar-
innar: Slái einhver þig á hægri
kinnina, þá bjóð þú hina vinstri.
Þá gellur við í einni stúlkunni:
— En fari nú svo, að einhver
kyssi mann á aðra kinnina, á
maður þá að bjóða hina?
Maxí-Maxí-tízkan?
Nei, þetta er ekki maxí-kjóll,
eins og virðist við fjrrstu sýn.
Hér er sýningarstúlkan Judy
Beevers að kynna hundrað ára
gamalt teppi frá Kákasus á sýn-
ingu í Melbourne í Ástralíu.
☆
l,æknar fela mistök sín
með joði, arkitektar með
vafningsviðum og nýgiftar
frúr m.eð majonesi.
Cilla Black
eignast son
Hin þekkta dægurlagasöng-
kona, Cilla Black, sýnir stolt
frumburð sinn, tíu daga gamlan
son, sem hlotið hefur nafnið Ro-
bert John. Cilla er gift Bobby
Willis og búa þau í risastóru
einbýlishúsi í námunda við Lon-
don.
☆
STUTT
OG
LAG-
GOTT
4 VIKAN 4i. tbi.