Vikan


Vikan - 08.10.1970, Blaðsíða 20

Vikan - 08.10.1970, Blaðsíða 20
 Hún er úr Vestmannaeyjum og heitir Kristín Björg Jónsdóttir. Foreldrar hennar, Jón Magnús- son og Sigurlaug Sigurjónsdóttir, ættuð að austan, ólu hana upp heima fram til þess tíma, að hún, samkvæmt laganna bókstaf hafði hlotið sjálfstæði. Þó var hún oftast í sveit á sumrum og þá ekki eyjarskeggi heldur hafði fast land undir fótum. Lítil stúlka hoppaði hún um götur síns heimabæjar og hjálp- aði lundapysjunni, sem þar var á vakki, til eðlilegra lífshátta. Hann er Hornfirðingur, Bjarni Eiríkur Sigurðsson. Foreldrar arvatni og að því loknu í loft- skeytaskólann. Varð því sú raun á, að eftir 16 ára aldur var hún sjaldan langdvölum heima. Bjarni fór í garðyrkjuskólann og lauk prófi þaðan, því næst í íþróttakennaraskólann og loks í handavinnudeild Kennaraskól- ans og hefur hann lokið öllum þessum prófum. Hvenær ástarævintýrið byrj- aði, sem leiddi til þess að þau urðu hjón Kristín og Bjarni, er mér ekki kunnugt. Hitt sýnist mér auðsætt, að ævintýrið er ennþá þeirra. Bjarni Eiríkur á Eldi. hans, Sigurður Eiríksson ættað- ur frá Mjóafirði eystra og Ing- unn Bjarnadóttir, slitu samvist- um, þegar drengurinn var á öðru aldursári. Hún giftist aftur Hróð- mari Sigurðssyni kennara og man Bjarni ekki annan föður en fóstra sinn. Til ellefu ára aldurs átti hann heima í Kyljarholti en þá fluttist fjölskyldan til Hvera- gerðis, hvar Hróðmar gerðist kennari. Nú munu ýmsir kalla, að nokkur spölur og ekki greiðfær sé milli Vestmannaeyja og Hornafjarðar og því ekki auð- velt um náin kynni milli þeirra, sem þessa staði byggja. En eins og móðir náttúra hefur gefið hórmey hófsóleyjarinnar vængja- tak til að svífa yfir á næsta lind- arbakka, þannig hefur hún gef- ið mannanna börnum útþrá til að leita lengra en að garði næsta granna. Kristín fór til náms að Laug- Garðyrkjumaður —- nei. Eg tók garðyrkjuskólann á milli vita. Fór þangað beint úr gagn- fræðaskóla án þess að hafa markað mér neina framtíðar- stefnu. í íþróttakennaraskólann fór ég aftur á móti með ráðnum hug og svo áfram í handavinnu- deild Kennaraskólans, enda hef- ur kennsla verið mitt aðalstarf síðan. Kennarastarf mitt byrjaði ég í Sandgerði og var þar einn vet- ur. Eitt ár 1958—1959 starfaði ég við heilsuhæli Náttúrulækn- ingafélagsins og lærði þar nudd. Næsta ár réðst ég svo að barna- og miðskólanum í Hvera- gerði og hef kennt hér síðan. Tvö og hálft ár vann ég við gufubaðstofuna á Kvisthaga 29 í Reykjavík, hjá Jónasi Halldórs- syni. Starfi mínu var þannig hagað, að yfir vetrartímann vann ég aðeins föstudaga og laugardaga, en aftur á móti alla virka daga sumarsins þegar stof- Aning. an var opin. Síðan hef ég svo unnið hér á heilsuhælinu flest sumur. Strembið að byggja sér hús? Allir verða nú að hafa þak yfir höfuðið. Auðvitað hef ég unnið og þá ekki síður konan mín. Fyrir utan heimilisstörfin hefur hún öðru hvoru starfað hjá sím- anum. Hún hefði nú sennilega haltr- að meira en verið hefur þessi heimilisuppbygging, ef konan væri ekki dugleg, ráðsett og reglusöm. Þau eru búin að halda heimili í 13 ár þessi ungu hjón og hafa nú komið sér upp rúmgóðu og vönduðu húsi, eiga nokkra gæð- inga, fáeinar kindur og fiðurfé, svo í því efni er fullnægt heim- ilisþörfum. Ölfusborgir og Hvcragerði. 20 VIKAN «• tbi.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.