Vikan


Vikan - 08.10.1970, Blaðsíða 27

Vikan - 08.10.1970, Blaðsíða 27
Jane Fonda hefir orSiS aS yfirgefa Banda- ríkin vegna afskipta hennar af stjórn- málum. Almenningur kunni ekki aS meta þaS aS hin dáSa leikkona fór aS koma fram í hópi „Svörtu Pardusanna". Húnfékk morShótanir og hrollvekjandi símaupphringingar dag og nótt. A5 lokum gat hún ekki þolaS þetta lengur og flúSi frá Banda- ríkjunum. Krossferðir Jane Fonda í Bandaríkjunum fengu skjót- an endi. Leikkonan hefur á þessu ári barizt við hlið Indí- ána og negra um jafnfrétti þeim til handa. Nú er hún á flótta. Hún fékk hæli fyrir sig og dóttur sína hjá fyrrverandi eigin- manni sínum, Roger Vadim. — Líf mitt er í hættu, sagði hún við nánustu vini sína, áður en hún fór frá Bandaríkjunum. — Ég hef fengið hótanir, bæði bréflega og skriflega og í síma. Ókuhn- ugt fólk hefur ráðizt inn í íbúð mína og hótað að taka mig og dóttur mína af lífi. Ég vil ekk deyja. Þessar ofsóknir hófust 13. júní í sumar.... Jane Fonda var ein af að- alræðumönnum á fundi hjá Svörtu Pardusunum. Þessi fundur var haldinn til að safna fé, svo hægt væri að greiða tryggingu fyrir Bobby Seal, foringja Pardusanna, sem situr í fangelsi, ákærður fyrir morð. Jane kom á fundinn í síð- buxum og peysu, án skart- gripa. ... Hún gaf ..Svörtu Pardusun- um“ 50.000 dollara. Jane var ákveðin og sagði: — Það verður að sleppa Bobby úr fangelsi og læsa þess í stað inni þá sem tóku hann fastan. Þegar hún hafði lokið við ræðu sína, gaf hún 50.000 dollara til félagsins. Þegar hún hafði lokið ræðu sinni, settist hún meðal for- ingjanna á pallinum, en þá kom maður til hennar og hvíslaði einhverju að henni. Jane fölnaði, æpti upp yfir sig og þaut út úr salnum. Eftir stundarkorn kom hún aftur inn og var þá rólegri. — Vanessa er ekki í hættu! sagði hún. Meðan á ræðu Jane stóð, hafði einhver skrifað bréf- snepil, sem síðan var sendur til hennar. Á honum stóð: Jane og dóttir hennar eiga ekki langt ólifað! Lifverðir Pardusanna tóku strax til að kroppskoða þá, sem ekki voru í félaginu, en án árangurs. — Þú færð sömu örlög og Tate. Síðan þetta skeði hafa Par- dusarnir haft nánar gætur á Jane Fonda. Nokkrum vikum síðar kom Jane frá mótmælafundi, sem haldinn var meðal Indíána á eyjunni Alcatraz, fyrir utan San Francisco. Þá beið henn- ar nýtt hótunarbréf. Það hljóðaði þannig: Ef þú hættir ekki að vinna með Svörtu Pardusunum, þá kostar það lif þitt og dóttur þinnar! Og bréfin urðu fleiri, hún hefur fengið fleiri hundruð hótunarbréf. Jane Fonda var lengi búin að leita að traustri barnfóstru handa dóttur sinni. Að lok- um fékk hún eina, sem ætlaði að byrja starf sitt næsta dag. Stúlkan kom, en hún var marin og blá og hágrátandi! Fyrir utan húsið hafði maður komið til hennar og spurt hvort hún aetlaði að fara í vist til Jane Fonda. Þegar hún svaraði því ját- andi réðist hann á hana og hótaði að drepa hana og sömuleiðis Jane og dóttur hennar. Stúlkan þorði ekki að taka starfið að sér. Þegar barnfóstran var far- in, hringdi síminn og skugga- leg rödd sagði: — Er þetta hjá Sháron Tate? — Nei, þetta er hjá Fonda, sagði Jane, skelfingu lostin. Hún vissi allt um örlög Shar- on Tate. __ Það kemur út á eitt, sagði röddin. — Endalok þín verða þau sömu! Pardusarnir komu Jane fyrir á leynilegum stað. Þegar þetta skeði, þá bjó Jane hjá föður sínum, Henry Fonda. En hún vildi ekki biðja hann hjálpar, hún vissi að honum var ekkert um fé- lagsskapinn. Hann hafði áður sagt: — Mér finnst að Jane. sem komin er yfir þrítugt, ætti að fara að þroskast. Þessi mót- mæli hennar eru aðeins barnaskapur. Ée hef ekkert á móti mótmælum, en það verður að flytja þau á annan hátt. Dóttir mín er ekki bú- in að bíta úr nálinni með þetta. Svo Jane hringdi í einn af Framhald á bls. 49. 26 VIKAN 41 tbl- Janc Fonda beitir sér mikið fyrir bættum kjörum Indíána og rétti þeirra til að endurheimta landsvæði sín. Kjörorð hennar eru: „Kolumbus fann ckki Ameríku“. Þessi mynd er tckin þcgar hún bjó hjá eiginmanni sínum, Roger Vadim, sem nú hefur skotið skjólshúsi yfir dóttur sína og fyrrvcrandi ciginkonu. 41. tbi. VIKiAN 27

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.