Vikan


Vikan - 08.10.1970, Blaðsíða 44

Vikan - 08.10.1970, Blaðsíða 44
fyrirgefið Sylviu að hún hafði ekki alið manni sínum son, til að viðhalda nafni fjölskyldunn- ar. Hann fékk Cissi mjólkina og svo hélt hann áfram með blik í augunum: — Þetta gæti líka verið lausn körfuhvarfsins. Van der Heft myndi ekki hika við að bæta nokkrum aurum við auðæfi sín, ekki einu sinni þótt hann þyrfti að stela pela úr munni ungbarns! Cissi kom alveg á réttu augna- bliki. Þegar hún kveikti ljósið í loftinu, heyrðist fyrsta hljóðlð 1 drengnum. Hún flýtti sér að körfunni, náði í pelann og fékk Sten hann og mjólkina. — Hérna. Farðu fram í eld- hús og settu upp tvo skaftpotta. í annan seturðu pelann og tútt- una. Hitt vatnið læturðu kólna og blandar mjólkina með því til helminga og hellir því svo á pel- ann. Hún rétti hendurnar varlega niður í körfuna og lyfti barn- inu upp. Hún hélt vel undir bak- ið og hnakkann. Sem betur fór var aðeins bleian vot. Nú var hún sannarlega fegin að hún hafði farið á þetta námskeið. Hún klæddi drenginn úr fötun- um og lagði hann nakinn á mitt rúmið. Hann var hættur að gráta, en Cissi vissi að hann gat farið til þess hvenær sem var. — Sten, hvernig gengur með mjólkina? — Eg er að koma með hana. — ÍSg held ég eigi talkumbauk 44 VIKAN «• tbi. á hillunni í baðherberginu. Taktu hann með. Hún var búin að ná í hreint handklæði, braut það í horn. Hún beið eftir Sten. — Sjáðu hann, er hann ekki indæll? Hann svaraði ekki, en hún sá að hann virti barnið fyrir sér, hugsandi á svipinn. Cissi horfði á hann. Var eitthvað meira í augnaráði Stens, alvara, — íhug- un? En Cissi hafði ekki tíma til frekari athugana, því drengur- inn rak upp öskur og hún flýtti sér að taka hann upp og vefja bleiunni um hann. — Svona, svona, vinurinn, þú ert bráðum þurr og saddur. Gáðu hvort mjólkin er mátulega heit, Sten, þú getur prófað það á handarbakinu. Hún sat með barnið í fanginu og beið eftir pelanum og hún fann ylinn gegnum þunna blúss- una. Svo lítill og hjálparvana. Hvernig gat nokkur manneskja lagt svona litla veru í körfu og skilið hana eftir í stigagangi. Skyndilega sló nýrri hugsun niður og hún kallaði í Sten, sem ennþá var í eldhúsinu. — Finnst þér ekki skrítið að hann skyldi vera skilinn eftir þarna? — Hvað áttu við? Hann kom nú inn og rétti henni pelann, sem var mátulega volgur, en alveg íullur, hún hafði gleymt að segja honum að hann þyrfti ekki að vera nema hálfur. En það gerði ekkert til, sá litlí kunni eflaust sitt maga- mál. — Ég á við það að karfan var á milli annarrar og þriðju hæð- ar. Hvers vegna einmitt þar? Ef sá eða sú ,sem setti körfuna þar hefði óskað þess að einhver ræk- ist á hana, þá hefði verið skyn- samlegra að setja hana neðar. Heldurðu að karfan hafi verið látin þarna í ákveðnum tilgangi? — Hvað áttu eiginlega við? Rödd hans var nú svo hvöss að Cissi leit upp. Sten virti barn- ið fyrir sér. — Ja, það hefur kannske ver- ið ætlazt til að Samson rækist á hana. Cissi yppti öxlum. Hún gat engu svarað. Hálftíma síðar voru þau búin að slökkva ljósið. Cissi var syfj- uð. Hún hafði sett körfuna á gólfið við hlið sér og drengur- inn svaf vært. En hún heyrði á andardrætti Stens að hann var vakandi. í annað sinn þennan dag, hafði hún það á tilfinning- unni að hún þekkti han ekki. Þetta gat samt verið ímyndun, en þetta var sannarlega tilbreyt- ingaríkur dagur! Hugsanir Cissiar flugu víða. Það var orðið sæmilegt loft í íbúðinni, enda höfðu gluggarnir staðið opnir síðan klukkan sex. Ef einhver af kunningjum þeirra hafði gengið fram hjá, þá var hægt að sjá. að þau voru komin heim.... Hver gat óskað að Willie Sam- son rækist á körfuna með barn- inu? Eða var það Willie sjálfur, sem hafði sett hana þarna í gluggaskotið? Rétt í því að hún var að festa blund flaug henni í hug: Hvers vegna Samson? Það gátu allir séð að við vorum kom- in heim. Þaff gat þó aldrei veriff aff drengurinn hafi einmitt ver- iff okkur ætlaffur? Framhald í næsta blaði. SYNGUR f FÍLHARMONÍUNNI Framhald af bls. 11. mér þá, ef ég þekki þessa ekki! Svo reynir það að átta sig, en getur ekki í svipinn og heilsar manni snöggt um leið og maður gengur hjá. Það er ekki fyrr en um kvöldið að maður birtist á skerminum að fólk áttar sig. Það er alltaf að koma til mín fólk sem vill gefa mér góð ráð í sambandi við það hvernig ég á að vera á skerminum og að þetta og hitt skiptið hefði ég nú ekki átt að gera svona heldur svona. 55g er þessu fólki ákaflega þakk- lát, en mér finnst það dálítið undarlegt, og þó ekki, að yfir- leitt er enginn sammála um hvernig ég á að haga mér. Þetta er skiljanlegt, því auðvitað vill fólk fá að ráða nokkurn veginn hvernig fólk sem er í stofunni hjá því á kvöldin, hagar sér. Það kærir sig alls ekki um að hafa

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.