Vikan - 08.10.1970, Blaðsíða 42
[A /1 W—W írx\
SKARTGRIPIR
UWUWrWliW
Modelskartgripur er gjöf sem ekki gleymist.
- SIGMAR OG PÁLMI -
Hverfisgötu 16a. Sími 21355 og
Laugaveg 70. Sími 24910
Cissi varð að hafa vald á
röddinni, þegar hún spurði: —
Hvers vegna haldið þér það?
— Hún stóð niðri í ganginum,
þegar Sara læsti húsinu. Síðan
hvarf hún.
Cissi skildi hvað hann var að
fara. Ef útidyrnar voru læstar,
þá var það einhver sem hafði
lykil. Ef ekki hann eða hún hefði
verið í felum í stigaganginum.
En þetta hlaut að vera karfan,
sem þau fundu í gluggaskotinu.
Átti hún að segja honum að þau
hefðu fundið körfuna? Segja frá
innihaldinu? Cissi hugsaði sig
um, en hún losnaði við að taka
sjálf ákvörðun.
Sten sagði, hægt og rólega. —
Nei, við höfum ekki séð hana.
Hans Skopalski urraði eitt-
hvað og hélt svo niður stigann.
Á sama augnabliki sá Cissi að
þau voru ekki ein þarna. Án
þess að þau hefðu tekið eftir
því var Samson forstjóri kom-
inn til þeirra og virti þau fyrir
sér með glettnisbrosi.
— Jæja, þið eruð komin heim.
Eg ætti líklega að óska ykkur
velkomin, þótt ég skilji ekki að
fólk skuli koma af frjálsum vilja
til borgarinnar í þessum hita. En
þetta virðist vera farsótt, því að
ég hef tekið eftir því að allir
íbúar hússins eru komnir heim.
— Takk. Við erum rétt ný-
komin, og. . Cissi hugsaði sig
um andartak, en neyðin lýtur
ekki lögum, drengurinn gat
vaknað á hverri stundu — og
ja, þér búið líkiega ekki svo vel
að eiga mjólk, sem við gætum
fengið að láni? Við komum svo
seint að við náðum ekki fyrir
lokun.
Hann lyfti brúnum og leit
brosandi á hana.
— Mjólk? Klukkan ellefu um
kvöld? Væri ekki svolítið snið-
ugra að fá sér einn Martini? Þið
eruð velkomin inn til mín upp
á svolitla brjóstbirtu.
—■ Takk fyrir, en við....
— Auðvitað getið þið fengið
mjólk. Það er kannske ekki trú-
legt, en ég á alltaf mjólk í ís-
skápnum. Gjörið þið svo vel að
ganga í bæinn!
Hann hafði opnað dyrnar að
íbúðinni sinni og benti þeim að
ganga inn. Þau gengu inn, en
eitt augnablik gleymdi Cissi er-
indi sínu, svo undrandi varð hún.
Það var eins og að koma inn í
annan heim.
Að vísu var þetta nákvæmlega
eins íbúð og sú sem þau höfðu,
en það var samt ómögulegt að
ímynda sér að þetta væri í sama
húsi, varla af sama heimi. Cissi
hafði aldrei látið sig dreyma um
að sjá slíkt, nema þá á forsíðum
auglýsingatímarita. Sófasett úr
leðri, sem stóð í einu horninu,
hlaut að vera meira virði en
venjuleg húsgögn á heilt heim-
ili. Allt — frá þykkum gólftepp-
unum til lýsingarinnar og vegg-
klæðninganna, var stórkostlegt,
það var eins og óraunverulegur
draumur.
Líklega var þetta alltof mik-
ið, það var varla hægt að setja
þetta í samband við lifandi fólk.
Cissi leit í kringum sig, til að
koma auga á eitthvað, sem rauf
þetta samræmi, — gamlan stól
.— eða eitthvað slitið eða snjáð.
Samson gekk að bar í einu
horninu og tók fram þrjú glös.
— Þið skuluð fá mjólkina ykk-
ar, en ég vona að þið hafið tíma
til að skála við mig fyrst.
Cissi ætlaði að malda í móinn,
en kom ekki upp nokkru orði.
Hvernig átti hún að skýra það
fyrir honum að þau væru að
flýta sér, án þess að telja fram
einhverja ástæðu.
Samson hafði tekið þögn
þeirra sem samþykki og kom
með döggvuð glösin á bakka.
— Eg kost ekki hjá því að
heyra eitthvað talað um körfu,
hvað var húsvörðurinn að
þvæla?
Sten sagði honum það og Sam-
son fór að hlæja. — Jæja, glæp-
ir hafa þá haldið innreið sína í
húsið. Leyndardómurinn um
horfnu þvottakörfuna. Hver
haldið þið að sé sekur? Nábúar
okkar hér fyrir neðan?
Ég — við vitum það ekki.
. . . Við þekkjum þau ekki einu
sinni höfum ekki séð þau, Sam-
son forstjóri.
Brosmild augu Samsons rugl-
uðu Cissi og hún tók eftir því
að hann virti hana vel fyrir sér,
virti hana fyrir sér sem konu.
— Eg leyfi aðeins nánustu
óvinum mínum að kalla mig
Samson forstjóra. Eigum við
ekki að drekka dús strax? Góð-
ir nágrannar.... Ég heiti
Willie.
Þau skáluðu og Cissi fann að
það var töluvert meira gin en
vermouth í drykknum.
— Jæja, þið hafið ekki séð
fólkið á neðri hæðinni? Þið
hljótið að hafa lesið um Leo van
der Heft.
Cissi kinkaði kolli. Hún sá að
Sten hreyfði sig ekki, en starði
niður í glasið sitt, eins og hon-
um væri ekkert um þetta sam-
tal.
Eins og þið vitið, þá er
hann allur og stundum dettur
manni það sama í hug um ekkj-
una. Sylvia hefur hreinlega far-
ið í felur síðan Leo dó.
— Er þá alveg víst að hann sé
dáinn, hrökk upp úr Cissi. Sam-
son leit snöggt til hennar og
brosið í augunum var horfið.
Röddin var líka nokkuð þurrleg
þegar hann svaraði:
—• Reyndar hefur Ííkið ekki
fundizt, en það er ekki nokkur
vafi á því að hann er látinn. En
hvernig, það er mergurinn máls-
ins. Það er hægt að segja margt
og mikið um Leo og það er ekki
allt jafn fallegt, en hann var
betri flugmaður en flestir aðrir.
Þetta slys hefur aldrei getað
orðið fyrir tæknileg mistök af
hans hálfu.
— En — hvað eigið þér við
— þér, fyrirgefðu, — átt þú við
að....
- Ég á aðeins við að slysa-
varnardeildin gæti þegið að fá
flakið til rannsóknar, ef það þá
finnst nokkurn tíma.
Það varð þögn og andrúms-
loftið var þrúgandi. Cissi hafði
aftur á tilfinningunni að þetta
væri ekki raunveruleiki. Hvgrs
konar hús var þetta? Hún leit á
Sten, en hann sat jafn grafkyrr.
Það var engu líkara en að hann
heyrði ekki það sem fram fór.
Þá brosti Samson aftur, glettn-
islega brosinu, eins og hann vildi
breiða yfir það sem sagt hafði
verið. — Nú, en Leo hefur
ábyggilega ekki hirt þessa körfu
og hvað Sylviu viðkemur, þá
fylgist hún ekki með því sem
gerist. Hún myndi ekki beygja
sig niður til að hirða heila gull-
stöng, þótt hún væri á vegi
hennar.
Hann var hugsandi á svipinn,
saup á glasinu, áður en hann
hélt áfram: — Og ekki er hægt
að ímynda sér að Sturehjónin
leggist svo lágt, það sæmir ekki
verðandi sendiherra að láta
grípa sig í smárupli. Og hvað
Elisabeth Sture viðkemur, þá
myndi hún nú frekar kjósa að
stela öðru en þvottakörfu.
Þegar Cissi leit undrandi á
hann, benti hann fingrinum á
hana, eins og til viðvörunar. •—
Já, passaðu þig, stúlka mín! Sér-
grein Elisabethar er nefnilega að
stela eiginmönnum annarra
kvenna. Hún er ennþá ung og
mjög aðlaðandi og svo er hún
ábyggilega staðráðin í því að
valda einhvern tíma stórkost-
legu hneyksli. Persónulega held
ég að þetta sé aðeins taugaveikl-
un hjá henni. Ég veit að hún
leitar ráða hjá sálfræðingum, en
ég er helzt á því að hún ætti
heldur að heimsækja snjallan
kvensjúkdómalækni. Agnarlítil,
hrukkótt mannvera, skríkjandi
smábarn, væri henni hollara en
allar heimsins geðpillur, og það
sem meira er, ég held henni sé
það sjálfri ljóst.
Síðasta setningin hristi við
Cissi og hún spratt á fætur.
Hvernig gat hún setið svona ró-
leg, þegar drengurinn gat vakn-
að hvenær sem var.
— Fyrirgefðu, ég verð . . . ég
þarf. . . .
Cissi fann hvernig hún roðn-
aði. Hann hlaut að halda að hún
væri eitthvað skrítin í kollinum.
En Willie Samson lét ekki í neitt
slíkt skína. Hann stóð upp, mjög
rólegur.
— Já, það er alveg rétt.
Mjólkin. Ég skal sækja hana.
Gegnum opnar eldhúsdyrnar
heyrði hún hann halda áfram:
— Líklega er hin sorglega stað-
reynd að okkar góða húsvarðar-
frú hefur gleymt körfunni í
kjallaranum. Annars væri gam-
an að halda áfram að ræða um
þetta fram og aftur, því að satt
að segja hefur verið töluverð
umferð í húsinu í kvöld. Þegar
ég fór út í kvöld, til að hreyfa
mig fyrir svefninn, þá rakst ég
á Seved Sture, sem var að koma
heim' frá útlöndum, og aðeins
tveim mínútum síðar sá ég hvar
Sylvia van der Heft kom upp að
húsinu í leigubíl. Klukkan hef-
ur þá verið um hálftíu. Ég veit
ekki hvort hún vissi að tengda-
foreldrar hennar sátu og biðu
hennar í íbúðinni. Hálftíma áð-
ur sá ég þau nefnilega koma, og
ég hugsa að van der Heft kon-
súll sé ekki sú manngerð sem er
hrifinn af að bíða.
Cissi hafði beðið, eins og á
nálum, og loksins kom hann með
mjólkurílát í höndunum. En
samt gat hún ekki á sér setið,
hún sagði með spyrjandi rödd:
— Van der Heft konsúll?
— Já, vissirðu ekki að hann
var faðir Leos? Gamla tígris-
dýrið í eigin persónu, með harð-
an hatt, regnhlíf og ökklahlífar,
táknmynd kapitalistá, sem ung-
ir byltingasinnar húðfletta að
minnsta kosti einu sinni í viku í
dagblöðunum. Sjálfur skil ég
ekki hvers vegna, því að svo rík-
ur er hann nú ekki. Hann er
ekki meðal hinna reglulegu auð-
kýfinga, þótt hann eigi víða ítök.
Leo var eini sonur hans, og ég
er ekki viss um að hann hafi
42 VIKAN 41 ■ tbi.