Vikan - 08.10.1970, Blaðsíða 30
er því ævinlega haldið fram að hann sé
merkilegur karakter sem hafi heilmikið vit
á því sem hann er að gera. Því þótti okkur
það alveg upplagt tækifæri, er hann kom
hér fyrir réttum mánuði, að spjalla við hann
um hljómsveitina, tónlist yfirleitt og eitt og
annað sem tíndist með. Gösli sat upp á sjö-
undu hæð á Hótel Esju, daginn sem hljóm-
leikarnir voru haldnir, og er við komum
þar inn, var hann í félagsskap ungrar og
Höfum nýtt fram að færa
VIÐTAL VIÐ JOHN GOSLING,
PÍANÓLEIKARA HLJÓMSVEIT-
ARINNAR KINKS. TÆPLEGA
ERU HONUM ALLIR SAMMÁLA
fallegrar stúlku, af íslenzkum ættum og upp-
runa.
Ég hef ákveðið að sleppa öllum hefðbundn-
um aðferðum í íslenzkum viðtölum, það er
að segja kaffiþambi, mannlýsingum og sól-
arlagi, en hér á eftir fer það sem við mælt-
um okkar á milli:
— Hvers vegna eru hinir ekki komnir?
— Þsfð er nefnilega það. Ja, ég er hrædd-
ur við að fljúga, og sú er aðalástæðan. Ég
er yfirleitt nokkra klukkutíma og jafnvel
daga að jafna mig eftir flugferð, svo það
var ákveðið að láta mig fara á undan og
kynna mér hlutina hér í leiðinni. Hinir
fljúga frá London til Glasgow og þar skipta
þeir um vél, en það hefði að öllum líkindum
riðið mér að fullu. Þeir hinir aftur á móti
geta farið úr einni vél í aðra án þess að
finna nokkuð fyrir því. Hefði ég til dæmis
ekki verið væntanlegur hingað fyrr en
klukkan sjö í kvöld, eins og hinir, þá hefði
ég sennilega fengið taugaáfall á sviðinu!
— Hvað gerðir þú áður en þú gekkst í
lið með Kinks?
— Hitt og þetta. Ég var með hljómsveit-
um af ýmsu tagi og var þjóðlagasöngvari
um tveggja ára skeið, en í hljómsveitum var
ég í um það bil fjögur ár. En svo ákvað ég
að fara í skóla og lagði stund á klassískan
orgelleik við „Royal Academy of Music“, og
þar var ég í þrjú ár. Ég tel það nauðsynlegt
að hafa einhverja grundvallarþekkingu á
klassískri tónlist áður en maður fer að geta
gert einhverja góða hluti á öðrum sviðum
tónlistar. Ray (Davies) hefur þessa þekk-
John Gosling, hinn nýi meðlimur Kinks,
hefur aðeins verið með hljómsveitinni í hálft
ár, og íslenzkum tónlistarunnendum þótti
það lítil og heldur ómerkileg viðbót við
hljómsveitina. í líkamlegu tilliti er þó tæp-
lega hægt að segja viðbótina litla og ó-
merkilega, því Gösli er með stærri og ó-
frýnilegri mönnum sem sést hafa til bæjar.
í útlendum músíkblöðum höfum við nokkr-
um sinnum lesið sögur af honum, og þar
30 VIKAN «• tw.