Vikan


Vikan - 08.10.1970, Blaðsíða 28

Vikan - 08.10.1970, Blaðsíða 28
HEYRA MÁ Cþó tægra fáfi) OMAR valdimarsson Þetta em þeir Dave Davies og John Dalton. Dave var með þennan sama gítar 1965 — og hefur litið lært á hann síðan. KINKS eru komnir og farnir. Eftir situr KSÍ með sárt enni og gerir ítrekaðar tilraunir til að láta enda mætast. Fyrirtæki þeirra var dauðadæmt frá upp- hafi og í raun og sannleika óskiljanlegt. KINKS hefðu vissu- lega náð að fylla annaðhvort Austurbæjarbíó eða Háskólabíó, og jafnvel tvisvar, en það eru ekki allir sem geta fyllt Laugar- dalshöllina. Led Zeppelin gátu það, Creedence Clearwater gætu það og sömuleiðis Crosby, Stills, Nash & Young og fleiri, en ekki Kinks, þó svo að dágóður skild- ingur hafi náðst inn á þeim fyr- ir fimm árum síðan. Það er engin ástæða til að þakka KSÍ fyrir að fá þessa hljómsveit hingað; poppmúsíkin er nægilega góð til að græða á henni peninga, en hún er ekki nægilega góð í annað og menn -jfc- Sveinn ÞormóSsson, ljósmyndari MorgunblaSsins var að mynda þá fé- laga á meSan á hljómlcikunum stóS, og ailt í einu reif Dave af honum vélina og skellti mynd á móti! hafa verið alsendis ófeimnir við að láta í ljós þá skoðun sína að það hafi verið þeim „mátulegt" að svo tókst til sem raun varð á. Það sjónarmið er að vísu held- ur illgirnislegt en þó skiljanlega algengt. Og það var fáránlegt að ganga ekki betur frá málum en svo að eftir rúmar 40 mínútur á sviðinu gátu KINKS leyft sér að fara út og neita að koma fram Ljósmyndir: Egili Sigurðsson. síðan olli stórfelldum truflunum og leiðindum fyrir þá sem ætl- uðu að reyna að hlusta; íþrótta- höllin bar sannarlega nafn með réttu þegar krakkarnir hlupu um og sníktu tómar gosflöskur af þeim sem áttu slíkt í fórum sínum. Geri ég það hér með að tillögu minni að hljómleikar sem þessir verði í framtíðinni bann- aðir unglingum innan 15—16 ára aldurs. Þegar KINKS hóf að leika síðasta lagið á þessum hljóm- leikum, hafði Ray Davies tekizt að fá þá áheyrendur sem fyrir framan sviðið voru, til að rísa á fætur og koma fast að sen- unni. Þvaga myndaðist og þar af leiðandi stympingar og læti, lögreglan hljóp til (þeir stóðu sig merkilega vel í þetta sinn) og þá brá svo við að svalirnar tæmdust af þeim, sem tilheyra þeim aldursflokki er ég tel óæskilegan á samkomum sem Ray Davics gerói lítið af því að spila, heldur söng hann og kiappaði til að fá fólkið í „stuð“ — cn lítið gekk. aftur, þó svo að meirihluti áheyrenda hafi borgað 450 krón- ur fyrir að „njóta“ þessara tón- leika. KSÍ var að vísu svo vin- gjarnlegt að senda okkur boðs- miða, og fyrir það þökkum við pent! Þá má það teljast höfuðsynd að einn framámanna KSÍ leyfði sér að hleypa inn ókeypis 100— 200 eininga krakkastóði, sem -jp. Þó kom fyrir að Ray gerði róslr á gitarinn, eins og til dæmis hér . .. þessum. Allir vildu niður „í fjörið“. Og þegar hljómsveitin neitaði að koma aftur fram urðu leiðindi af og því er ekki að undra þó rúður hafi verið brotn- ar fyrir 100.000 krónur. Slíkt er að vísu ófyrirgefanlegt og hin mesta skrílmennska. Á þeim fimm árum sem liðin eru síðan KINKS voru hér síð- ast hefur þeim ekkert farið fram sem hljómsveit, nema síður sé. Persónulega fannst mér þeir ekki taka málinu líkt því eins alvarlega nú og þá, og eini mað- urinn sem sýnt hefur einhverja framför er trommuleikarinn, Mick Avory. Sá sem sýndi þó mesta kunnáttu á sitt hljóðfæri var bassaleikarinn, John Dalton. Hann var leikandi léttur og með mjög gott „sound“. Þeir Davies- bræður eru báðir heldur slappir hljóðfæraleikarar, og nýi með- limurinn, John Gosling, sem leikur á píanó og orgel, er svo sem ekki neitt neitt. Hann lék með Trúbroti í Glaumbæ kvöld- 28 VIKAN «• tbi.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.