Vikan - 08.10.1970, Blaðsíða 6
er ávallt með í
tízkunni
BUXUR,
BUXNADRAGTIR,
PILS,
„MIDI“ DRAGTIR
„MIDI“ PILS
KJÓLAR &
BLÚSSUR
Vönduð el'ni
Vönduð snið
Veljið
Ilausttízkuna ’70.
Verðlistinn
Laugavegi 116 (Hlemmtorgi) - Sími 83755
TELPN AKÁPUR
stærðir 2—14
TÁNIN GAKÁPUR
stærðir 34—42
TERYLENEKÁPUR
stærðir 34—50
FRÚ ARKÁPUR
stærðir 36—52
HEILSÁRSDRAGTIR
stærðir 36—52
Buxnadragtir, úlpur, peysur og
síðbuxur.
Kynnið ykkur verð og þjónustu í stærstu
kápuverzlun landsins.
Verðlistinn
Vill verða
handavinnukennari
Kæri Póstur!
Það ber að þakka það, sem vel
er gert, segir málshátturinn, og
ég þakka Vikunni margt fróð-
legt og skemmtilegt, sem hún
hefur flutt.
Ég er sautján ára og fer í
kvennaskóla í haust, en langar
til að fara í Handíða- og mynd-
listaskólann í Reykjavík, þegar
ég er búin í kvennaskólanum.
Hins vegar vantar mig upplýs-
ingar um þennan skóla.
Viltu vera svo góður. Póstur
minn, að gefa mér upplýsingar
um hann? Þarf sérstakt próf til
að fara þangað? Mig langar til
að verða handavinnukennari.
Með fyrirfram þökk.
B.S.S.E.
Námið í Myndlista- og handíða-
skólanum tekur fjögur ár og
skiptist í tvo hluta: forskóla í
tvö ár og síðan sérnámsdeild í
önnur tvö. Öllu núminu er auk
þess skipt niður í svokallaðar
annir og er sérstakt verkefni
tekið fyrir í hverri önn, sem
stendur yfir í einn mánuð. En
ef þú ætlar að verða handa-
vinnukennari, þá verðurðu að
fara í Kennaraskólann. Hand-
iðaskólinn útskrifar teiknikenn-
ara og vefnaðarkennara, en ekki
handavinnukennara, að því er
við bezt vitum.
Reið við Vísi og
Keflvíkinga
Kæri Póstur!
Ég varð einhvers staðar að
láta i ljós reiði mína í garð
íþróttafréttaritara Vísis og Kefl-
víkinga, og datt þessvegna Póst-
urinn í hug. Það leyndi sér ekki
á umsöpn Vísis. um leik Kefl-
víkinga og Akraness, sem fram
fór i Keflavík, að fréttamaður
hélt með Keflavík. Annars hefði
hann ekki getað skrifað annað
eins og þetta:
..Keflvíkinear á áhorfenda-
pöllunum urðu ekki fyrir neinu
teljandi ónæði af völdum þess-
ara drykkiuláta Akurnesinga, og
af stakri háttvísi, sem gestgjöf-
um sæmir, fylgdust þeir með
boltaleiknum á vellinum og létu
sem þeir tækju ekki eftir því, er
löereglan fjarlægði hina öfur-
ölvi af staðnum."
Fréttamaðurinn sagði ýmislegt
fleira, sem sannarlega var ekki
sannleikanum samkvæmt, en ég
nenni ekki að birta það hér.
Það er satt, að það voru marg-
ir fullir á þessum knattspyrnu-
leik, en ekki eingöngu Skaga-
menn. Oft hefur verið mikið
fyllirí á kappleikjum heima á
Skaga, en aldrei gert veður út af
því. Nei, Keflvíkingar voru alls
ekki kurteisir í umræddum leik.
Þeir hentu meira að segja möl í
nokkrar stelpur, þegar annað
markið var gert. Maður þorði
varla að segja, hvaðan maður
væri, því að þá var sagt með
fyrirlitningu:
„Það er auðséð, að þið eruð
frá Akranesi".
Ég hélt nú, að Keflvíkingar
gætu tekið tapi og verið dálítið
kurteisari en þeir voru. En því
var ekki að heilsa og þessvegna
er óskiljanlegt, að fréttamaður
Vísis skyldi snúa staðreyndum
við. eins og hann gerði.
Ég hef miklu meira um þetta
mál að segja, en læt þetta nægja
að sinni. Ég vona, að þú hafir
getað lesið skriftina.
Ein öskureið á Akranesi.
Það virðist hafa hitnað í kolun-
um, er Keflvíkingar og Akurnes-
ingar kepptu í umrætt skipti, en
sá leikur skar úr um það, hver
yrði íslandsmeistari í ár. Póstur-
inn var ekki viðstaddur þennan
leik og getur því ekkert um það
dæmt, hvort fleiri voru fullir
meðal áhorfenda, Akurnesingar
eða Keflvíkingar. En við birtum
þetta ágæta bréf engu að síður,
svo að Keflvíkingum og íþrótta-
fréttaritara Vísis sé kunnugt um,
að uppi á Akranesi er ein stúlka,
sem er þeim fjarska reið.
Hér kemur
Lína langsokkur...
Kæri Póstur!
Þú ert svo viljugur að leysa
úr alls konar ómerkilegum
vandamálum, sem enginn annar
nennir að sinna, og þess vegna
skrifa ég þér fáeinar línur. —
Krakkarnir mínir sáu Línu lang-
sokk í Kópavogi í fyrra og urðu
svo hrifnir af henni, að þeir geta
alls ekki gleymt henni. Þeir voru
allaf að suða í mér að fara afur
á þetta ágæta leikrit, en mér
þótti það nú einum of mikið og
dró það á langinn. Geturðu sagt
mér, hvort leikritið verður sýnt
aftur í vetur? Og fleira þarf ég
að vita um þessa merkilegu
stelpu, hana Línu langsokk: Er
til bók um hana á íslenzku? Og
hefur sagan af henni verið kvik-
mynduð? Segðu mér allt sem þú
veizt um Línu langsokk, því að
krakkarnir mínir dýrka hana.
K.D.
6 VIKAN «• tbi.