Vikan - 08.10.1970, Blaðsíða 5
Ævintýrið reyndist
blekking ein
Marga rekur vafalaust minni
til þess, þegar norska stúlkan
Annamaría Rasmussen giftis'i
Steve Rockefefler, syni eins rík-
asta manns í Ameríku. Brúðkaup
þeirra vakti heimsathygli og
þótti ævintýri líkast. Annamaría
hafði verið vinnukona á heimili
Rockefeller-hjónanna og kynnzt
syni þeirra þar.
Brúðkaupið var haldið í litla
norska bænum Sogne og mynd-
ir af brúðhjónunum birtust í
biöðum um allan heim. Mörg
stúlkan á Vesturlöndum hefur
eflaust öfundað Önnumaríu af
hlutverki hennar og talið hana
hafa höndlað hamingjuna eins
og frekast er unnt.
En það ber ekki allt upp á
sama daginn, og nú eftir tíu
ára hjónaband sækir hún um
skilnað við mann sinn. Þau eiga
þrjú börn: Steve, sem er níu
ára, Ingrid, sex ára og Jennifer,
fimm ára. Ævintýbið reyndist
blekking ein, og Annamaría hef-
ur ekki átt sjö dagana sæla í
„auðlegðinni“.
Það kom í ljós, að sambúð
við milljónamæring er ekki allt-
af eintómur dans á rósum. Önnu-
maríu kom ótalmargt á óvart
í nýja draumaheiminum, og fæst
var í takt við það, sem hún
hafði gert sér í hugarlund. Að-
eins fáeinum mánuðum eftir
brúðkaupið, á meðan hún átti
von á fyrsta barni þeirra hjóna,
kom fyrsta áfallið. Steve lýsti
Fyrir tíu árum: Brúðkaup vinnukon- Eftir tíu ára hjónaband þoldi Anna-
unnar og milljónamæringsins vakti maria ekki lengur fangelsi auðlegðar-
hcimsathygli. innar. Hún vildi fá að njóta lifsins.
Steve Rockefcllcr cr orðinn öfgafull- konu sinni að kiæða sig glæsilcga og
ur fríkirkjuprestur. Hann bannaði nota fegrunarlyf.
• visur vikunnar
Draugavísur
Vér höfum fengið sæng í sjó
sviptir öllu grandi;
höfum þó á himni ró
hæstan guð prísandi.
Mjög var órótt þá að dró nótt.
Dapur er dauðinn kaldi.
Mig bar að þar sem margur var
á lifandi manna landi.
Frost og fjúk er fast á búk,
frosinn mergur í beinum;
það finnst á mér sem fornkveðið er
að fátt segir af einum.
Úr þjóðsögum Jóns Árnasonar.
því yfir, að hann væri hættur
að vinna og hefði ákveðið að
gerast fríkirkjuprestur. Reynd-
ar var lítil hætta á að þau færu
á vonarvöl, þótt eiginmaðurinn
hætti að vinna, en hitt var verra,
að ákvörðun hans krafðist gjör-
breyttra lifnaðarhátta. Steve fór
á fætur í dögun til að vera við-
staddur morgunguðsþjónustu
dag hvern og ætlaðist til að kona
hans gerði slíkt hið sama.
Um skemmtanir var ekki að
tala. í tíu ára hjónabandi sínu
fóru þau Annamaría og Steve
tvisvar sinnum út að skemmta
sér. í bæði skiptin fóru þau raun-
ar á Colony Club, sem er einn
bezti veitingastaður New York-
borgar.
Þau bjuggu i lúxusíbúð, en sá
galli var á gjöf Njarðar, að for-
eldrar hans bjuggu þar líka, svo
að Annamaría fékk aldrei að
vera sjálfstæð húsmóðir á eigin
heimili. Meira að segja á sumrin
dvöldust þau á sumaróðali fjöl-
skyldunnar, svo að Önnumaríu
fannst hún vera lokuð inni í
búri. Rockefeller-fjölskyldan er
afar fastheldin og siðavönd: lif-
ir eftir ströngum reglum, sem
aldrei má brjóta. Strax eftir
brúðkaupið var blaðamönnum til
dæmis stranglega bannað að taka
myndir af Önnumaríu og börn-
unum. Steve bannaði konu sinni
að klæða sig glæsilega. Hún mátti
ekki einu sinni nota fegrunar-
lyf. Eiginkonu guðsmanns bar
að forðast allan hégóma og sýna
engin merki um léttlyndi á ver-
aldarvísu.
Þegar Annamaría giftist millj-
ónamæringi grunaði hana sízt,
að hún ætti í vændum fábrotið
og fátæklegt líf og að Rocke-
feller-fjölskyldan væri jafn spar-
söm og raun varð á. Annamaría
segir:
— Þeim virðist vera mest í
mun að gleyma þeirri staðreynd,
að þau eru ein rikasta fjölskylda
í heimi. Stórir bílar og fallegir
skartgripir eru forboðnir ávext-
ir með öllu.
Tengdamóðr hennar bannaði
henni að bera neitt annað skart
en giftingarhringinn og eina
perlufesti. Trúlofunarhringur
Önnumaríu, sem var ísettur fá-
gætlega fögrum og dýrum dem-
anti, var látinn í glerskáp, þar
sem dýrgripir fjölskyldunnar eru
geymdir, og þaðan mátti Anna-
maría ekki hreyfa hann upp frá
því.
Móðir Önnumaríu fékk smjör-
þefinn af sparsemi fjölskyldunn-
ar, þegar frú Rockefeller eldri
sagði við hana kvöldið fyrir
brúðkaupið:
— Við skulum láta bera fram
freyðivin í staðinn fyrir kampa-
vín. Það er miklu ódýrara!
Þannig varð Önnumaríu smátt
og smátt ljóst, að Rockefeller-
fjölskyldan er í rauninni nízk;
sparar hvern eyri, þrátt fyrir hin
miklu auðævi sín.
Hún þraukaði í tíu ár. Hún
átti þrjú börn og elskaði enn
mann sinn. En siðustu tvö árin
jókst vandlæting hans, og af-
neitun allra veraldargæða fór út
í slíkar öfgar, að stappaði nærri
sjúkleika. Annamaría vildi njóta
lífsins og gat ekki fellt sig við
þetta. Það varð æ algengara, að
þau rifust heiftarlega.
Fyrir rúmu ári fluttist hún frá
manni sínum og bjó um skeið í
litlu húsi, sem fjölskyldan átti.
Og rétt nýlega sá Annamaría æv-
intýraborg sína hrynja endanlega
til grunna — í skilnaðarréttin-
um í Juarez í Mexico. Hún hefur
kvatt Rockefellerfjölskylduna og
milljónir hennar. Hún sneri aft-
ur til heimabyggðar sinnar í
Noregi. og keypti sér þar hús
fyrir það fé, sem féll í hennar
hlut við skilnaðinn.
☆
4i. tbi. VIKAN 5