Vikan - 08.10.1970, Síða 15
Faruk var mjög þjófgefinn. Hann stal Hann eyddi miklum hluta ævinnar á veitingahúsum og venjulega í fylgd með feitum, Hann hafði ákaflega léleg-
jafnvel af líkum.
ljóshærðum stúlkum.
an listasmekk. Hann safn-
aði alls konar ómerkilegu
drasli, þar á meðal nektar-
myndum, sem hann hafði
miklar mætur á.
»TI FARAOINN
að frá keisaranum, en það hafði Muhammed
Riza Pahlavi ekki hugmynd um, og hann var
mjög hrifinn af hinni ungu drottningu sinni.
Faruk sendi svo sérlegan sendiboða til Te-
heran til að fá rriág sinn til að skilja við
drottninguna. Keisarinn skildi ekki hvað um
var að vera og gekk inn á skilnað á borði
og sæng, sem gekk í gildi síðast á árinu 1948.
En hvað hafði Fawsia sjálf lagt til mál-
anna? Þeirri spurningu svarar Hugh Mc-
Leave með því að halda því fram að hún
hafi verið svo vön að hlýða bróður sínum.
Hann heldur því fram að sambandið milli
Faruks og systur hans, hafi verið miklu
sterkara en venjulegur systkinakærleikur.
Faruk hafði líka í huga að hagnast á þessu;
þegar farangur systur hans kom til Theran
(200 ferðatöskur), lét hann greipar sópa og
tók traustataki 11 töskur með skrautlegum
klæðnaði og skóm, sem hann svo notaði til
að gefa eftirlátum vinkonum sínum, ungum
stúlkur, sem að næturlagi voru sendar til
hallarinnar í fylgd með ítöslkum trúnaðar-
manni konungs, ítalanum Pulli.
En eitt verður maður að hafa í huga við
lestur bókarinnar um Faruk, að McLeave
sér yfirleitt allt með augum Englendingsins.
Það eru aðeins brezku embættismennirnir
sem eru flekklausir í frásögn hans. Aðrir
sögufróðir draga nokkuð í efa að þar sé rétt
með málin farin.
Tapaði stríðinu við fsraelsmenn.
Upphafið að falli Faruks varð þegar ísra-
elska ríkið var stofnað 1948. Konungurinn
áleit að tiltölulega auðvelt væri að ráða
niðurlögum hins nýstofnaða ríkis og fannst
að Egyptar ættu að hafa frumkvæði um þau
mál. Hann þurfti sjálfur að auka vinsældir
sínar hjá þjóðinni, sem var orðin nokkuð
þreytt á líferni glaumgosans, sem átti að
heita konungur hennar.
Það er mjög sennilegt að Arabaríkin hefðu
í sameiningu getað sigrað ísraelsmenn, —- ef
Faruk hefði ekki sjálfur tekið að sér for-
ustu herjanna í Sinaieyðimörkinni.
Eitt af því sem ísraelsmenn notuðu sér,
var lausmælgi Faruks. Hann gortaði af snið-
ugum áætlunum sínum og leyniþjónustan í
ísrael hafði góða heyrn.
í maí og júní 1948 beið egypzki herinn
niðurlægjandi ósigra, þrátt fyrir mikinn
dugnað liðsforingjanna, þar á meðal sérstak-
lega Naguibs hershöfðingja og Nassers yfir-
liðsforingja. Á þessum niðurlægingartímum
fóru nokkrir yfirmenn hersins að ræða um
að steypa konungi af stóli og losna við hann
og hirðklíkuna.
Að lokum fann konungurinn að dagar hans
í hásætinu voru taldir og honum tókst að
koma miklu fé úr landi. Aðallega kom hann
peningum fyrir 1 svissneskum bönkum.
Og hann eyddi óhemju miklu við spila-
borðin. Faruk var haldinn óstjórnlegri spila-
áráttu, en þó hefur hann líklega verið ein-
hver lélegasti spilamaður sem um getur.
17 ára drottning.
Fyrra hjónaband Faruks var mjög óham-
ingjusamt. Farida drottning og hann áttu
ekkert sameiginlegt og bjuggu ekki saman.
Konungurinn vildi kvænast aftur, til að eign-
ast son, en Farida var vinsæl, miklu vinsælli
en hann.
Til þess að draga fjöður yfir þau áhrif,
sem skilnaður þeirra myndi hafa á þjóðina,
þá ákvað Faruk að íranskeisari og systir
hans ættu að skilja samtímis! Það leit betur
út ef tveir þjóðhöfðingjar Múhameðstrúar-
manna „syndguðu“ um sama leyti.
Þannig varð það líka, þótt íranskeisari
væri því alls ekki samþykkur. Hjónaskilnað-
irnir í Kairo og Teheran gengu í gildi sama
dag, 7. nóvember 1948.
Á næstu árum lagði Faruk lag sitt við
ýmsar konur, yfirleitt stúlkur, sem höfðu
miður gott orð á sér. Það var sagt að hann
hefði sérstakt dálæti á söngkonum og maga-
dansmeyjum. Einu sinni var hann að bjástra
við eina slíka í eyðimörkinni fyrir utan
Kairo, þegar skyndilega varð allt uppljóm-
að í kringum hann.
Faruk varð fjúkandi vondur, flýtti sér út
úr bílnum og fór að skjóta í allar áttir.
Mennirnir sem voru með ljóskastarana voru
steinhissa, þeir voru sem sé úr hans eigin
öryggislögreglu. Lögreglumennirnir flýttu
sér í burtu, en þessi saga breiddist út, Faruk
sagði sjálfur frá og hafði mikið gaman af.
McLeave álítur að um þetta leyti hafi Far-
uk alls ekki verið sjálfrátt, enda keyrði um
þverbak þegar hann trúlofaðist stúlku af
borgaralegum ættum, Narriman Sadek, sem
var aðeins 16 ára. Narriman var trúlofuð
ungum manni í utanríkisþjónustunni, Zaki
Hashem, en Faruk neyddi föður hennar til
að slíta þeirri trúlofun. Faruk var þá þrjá-
tíu og eins árs, en leit út fyrir að vera tutt-
ugu árum eldri.
Nasser steypti honum af stóli.
Fyrir brúðkaupið tilkynnti Faruk að hann
óskaði aðeins eftir brúðargjöfum úr gulli.
Framhald á bls. 40.
4i. tw. VIKAN 15