Vikan - 08.10.1970, Qupperneq 18
illii
EFTIR LÚPUS
«1 RRRBIH
Borgarfjarðarsýsla telst
fagurt hérað og búsældarlegt
og býður upp á jafnvægi og
staðfestu, en þó niun fólk þar
varla einlyndara en annars
staðar á landinu, ef undan er
skilið einstakt trvgglyndi
Borgfirðinga við Pétur heit-
inn Ottesen í minnum tveggja
kvnslóða. Pétur gerðist ung-
ur bóndi á föðurleifð sinni,
Ytra-Hóhni á Akranesi, og
var kosinn þingmaður sýsl-
unga sinna fyrsta skipti 1916,
þá 28 ára gamall. Hann sat
óslitið á alþingi 48 ár og lengst
Islendinga fyrr og síðar.
Komst Pétur aldrei í umtals-
verða hættu allan þann tíma,
nema 19.56, þegar Alþýðu-
flokkurinn og Framsóknar-
flokkurinn efndu til hræðslu-
bandalagsins svokallaða og
röskuðu ýmsum fyrri kosn-
ingaviðhorfum. Þá varð
Borgarfjarðarsýsla allt í einu
vafakjördæmi, og spáðu sum-
ir, að þingmennskudagar
Péturs væru taldir. Hafði
hann fengið atkvæði 885
Borgfirðinga í albingiskosn-
ingunum 1953, en frambjóð-
endur Alþýðullokksins og
FramsóknarfJokksins samtals
907, svo að goðinn á Ytra-
Hólmi mátti vissulega gæta
sín. Honum óx verkefnið þó
18 VIKAN «. tbi.
lítt í augum. Pétur Ottesen
barðist snarplega og fékk sig-
ur. Ilreppti hann 1070 at-
kvæði, en Benedikt Gröndal
bar úr býtum 997. Iiín’ði
aldrei munað svo mjóu í
I íorgarfj a rðar sýs I u gerva 11 a
þingmennskutíð Péturs, og
hefði víst enginn sjálfstæðis-
maður annar staðizt áhlanp-
ið þar um slóðir. Reyndust
persónulegar vinsældir Péturs
farsælar þessu sinni eins og
oft áður. Borgfirðingar kusu
hann þingfulltrúa sinn, með-
an hann gat og vildi sitja í
höllinni við Austurvöll, og
felldu gjarnan af sér flokks-
bönd að fá því til leiðar kom-
ið.
Eftirmaðurinn erfði liins
vegar engan veginn ríki Pét-
urs fyrirhafnarlaust, en þá
víkur að stjórnmálaþætti Jóns
Árnasonar. Árangur hans er
mjög tilviljun háður, þegar
sigrar Péturs virtust jafnan
líkt og sjálfsagðir, enda ólík-
um saman að jafna, þó að
mannamunur hverfi senn í
keppninni um fylgi og met-
orð, þar eð æ faírri skera sig
nú úr í starfi og flokki en
þeir einstáklingar fyrrum, er
svipmestir þóttu og minnis-
stæðastir.
•Tón Ágúst Árnason fæddist
15. janúar 1909 á Akranesi,
sonur Árna Árnasonar bvgg-
ingameistara þar og konu
hans, Margrétar Finnsdóttur.
Að lokinni barnafræðslu nam
Jón við Unglingaskóla Akra-
ness 1924—1925, en lærði
síðan bókhald í Reykjavík
1927. Hann stundaði verzlun-
arstörf hjá Guðjóni Jónssyni
kaupmanni á Akranesi 1928—
1932, en stofnaði þá eigin
verzlun og rak til 1936. Að
því búnu gerðist Jón verzlun-
arstjóri við Verzlun Þórðar
Ásmundssonar á Akranesi, en
hefur jafnframt verið fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélags-
ins Ásmundar og Hraðfrvsti-
hússins Heimaskaga síðan
1943. \Ennfremur liefur Jón
Árnason verið forsprakki út-
gerðarmanna og fikframleið-
enda um afurðasölu og mark-
aðsmál erlendis, en verðlag og
aðstöðu heima fýrir.
Jón Árnason lét félagsmál
til sín taka strax í æsku og
varð ungur forustumaður í
skátastarfi og íþróttalífi á
Akranesi, en slíkur trúnaður
hefur löngum spáð framgjörn-
um drengjum góðu um lýð-
hylli þar í kaupstaðnum.
Skipaði Jón sér brátt í sveit
Sjálf’stæðisflokksins og var
kjörinn bæjarfulltrúi á Akra-
nesi 1942. Átti hann sæti í
bæjarstjórn kaupstaðarins
þangað til í sumar eða 28 ár
óslitið. Hann var forseti bæj-
arstjórnar 1951—1954 og
1961—1970, en bæjarráðs-
máður 1946—1966. Önnur
störf lians í þágu Akraness
munu eins og mest gerist í
sveitarfélögum hér á landi.
Pétur Ottesen lét af þing-
mennsku vorið 1959 vetri
eldri en sjötugur. Jón Árna-
son valdist þá til framboðs i
Borgarl’jarðarsýslu á vegum
Sjálfstæðisflokksins og sýnd-
ist eiga kosningu vísá eftir að
samfylking Alþýðuflokksins
og Framsóknarflokksins var
úr sögu. Urslitin reyndust
hins vegar mun tvísýnni en
nokkurn grunaði. Jón Árna-
son tapaði drjúgum hluta af
persónufylgi Péturs Ottesen,
en var eigi að síður kosinn
þingmaður héraðsins með 880
atkvæðum. Frambjóðandi
Framsóknarflokksins, Daníel
Ágústínusson, hlaut hins veg-
ar 846 atkvæði og hafði þann-
ig nær fellt Jón í viðureign-
inni. Sigurinn reyndist Jóni
harla dýrmætur, þó að heppni
gæti talizt. Hann skipaði ann-
að sæti á framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins í Vesturlands-
kjördæmi haustið 1959 og var