Vikan - 08.10.1970, Qupperneq 31
ingu, og þessvegna er hann svo góður sem
raun ber vitni. Ur akademíunni fór ég beint
í Kinks — og var þá raunar búinn að leika
með þeim inn á nokkrar plötur og koma
fram á einstaka hljómleikum. Ég var til
dæmis með á „Lola“.
— Hafið þið hugsað ykkur að popp-ópera
Ray’s, ARTHUR, verði sýnd i óperuhöllum
og samkomuhúsum eins og Who gerðu með
Tommy?
— Ég veit ekki hvers vegna það er, en
það er alltaf verið að bera „Arthur“ saman
við „Tommy“ En viðvíkjandi spurningu
þinni, þá held ég að mér sé óhætt að svara
neitandi, því meiningin er að gera sjón-
varpskvikmynd um „Arthur“. Upphaflega
stóð til að myndinni skyldi vera lokið fyrir
hvað hin heitir. Við lékum þó lög úr
óperunni á sviði, til dæmis „Shangri La“ og
fleiri. „Arthur“ er ólíkur „Tommy“ að því
leytinu til, að hún er í rauninni mörg lög,
sem fjalla um samtengt efni, en Tommy
virðst vera eitt samantengt lag, meira eða
minna.
Framhald á bls. 48
áramót, en það verður ekkert af því, þar
sem Ray er að semja tónlist í tvær aðrar
sjónvarpsmyndir, og nú nýlega gerðum við
samning um að semja tónlistina í kvikmynd
sem MGM er að gera. Fyrri myndin sem Ray
er að vinna að heitir „Non-stop piano play-
er“, og fjallar um náunga sem reynir að
setja met í píanóleik, en ég man ekki