Vikan


Vikan - 08.10.1970, Síða 34

Vikan - 08.10.1970, Síða 34
REYNIÐ RUSKOLINE KRYDDRASP crumb dressing FÆST í NÆSTU MATVÖRUVERZLUN. HEILDSÖLUBIRGÐIR: JQHN LINDSAY H.F. SÍMI 26400 GARÐASTRÆTI 38, R. ATHUGIÐ •j Ef þú ert að byggja eða þarft að bæta og jafnvel ef þú vilt breyta, þá teljum við það hagkvæmt að líta við hjá okkur, því að sjón er sögu ríkari gagnvart vöruúrvali. Gott verð. STJI ÍRNUSPfl*^ % Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú ferð í ferðalag sem stendur 1 sambandi við at- vinnu þína. Þú ert mjög heppinn með samstarfs- mann í þessu verkefni, en þér hættir til að vilja gera allt sjálfur og treysta sem fæstum fyrir neinu. ww Nautsrr.erkið (21. apríl -• 21. maí): Þú móðgar vinnufélaga þinn með því að ganga fram hjá honum. Það er ekki vinsælt að viðhafa þær aðferðir sem þú hefur. Kunningi þinn fer í utan- landsferð og gerir góða verzlun fyrir þig. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Sýndu meiri lipurð í umgengni við nábýlisfólk þitt. Þú átt marga góða granna sem eiga ekki skilið drembni þína. Þú færð óvænta og góða hjálp frá persónu sem þú hafðir alls ekki reiknað með. Krabbamerkið (22. júní — 23. jú 1 í): Margt fer öðruvfsi en ætlað er, þú verður að breyta þínum persónulegu framkvæmdum, bæði að seinka þeim og breyta um starfsaðferðir. Maður nokkur sem þú hefur í vinnu, bregzt þér algjörlega. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Verkefni sem þú gazt ekki annað í síðustu viku verður nú mjög aðkallandi. Þú gerir eldri manni greiða og eyðir miklu af frítíma þínum í félags- skap hans. Kunningi þinn er mikið veikur. '*mmr Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Fávísi félaga þíns og þekkingarleysi á verkefnum sem þér liggja í augum uppi, koma þér rækilega á óvart. Maður nokkur sem vinnur baki brotnu við störf sín, gerir þér mjög góðan greiða. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú færð hvíld um stundarsakir frá hlutum sem þú ert orðinn mjög leiður á. Þú kemst að góðu sam- komulagi við aðila sem þú átt viðskipti við. Trass- aðu ekki lengur ákveðna, aðkallandi samningsgerð. ¥ Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Vegna trassaháttar nábýlismanna þinna geturðu gert þá réttlausa í vissu tilliti. Þú kemst að stórfelldum svikum félaga þíns og líður illa út af öllu saman. Heillatala er fimm. Bogamannsmerkið (23. nóvember - 21. des.): Þú kemst á snoðir um leyndarmál sem þú skalt með engu móti ljóstra upp um, þótt lagðar verði fyrir þig gildrur. Þú ert ekki vel upplagður til neinna stórræða og ættir því að taka því rólega. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20 janúar): Þú ert nokkuð veikur fyrir tilboði sem þér berst en gættu vel að. Það eru ótraustir punktar í áætlun- inni sem ekki er víst að þú myndir sætta þig við að misfærust. Talsvert fjör á laugardagskvöldið. A# Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): l Orðrómur um vissa persónu kemur þér á óvart, en | ef þú skyggnist dýpra skilurðu hvernig 1 öllu ligg- ur. Persóna sem þú hefur hingað til ekki metið mikils sýnir nú óvænta kosti sína. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Velviljuð persóna léttir verulega undir með þér við störf sem þú ert ekki vaxinn. Þú lítilsvirðir eldri mann sem þú hefur nokkra umsjón með og ættir að sýna meiri sóma. Rómantíkin í algleymingi. 34 VIKAN 41 tw.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.