Vikan


Vikan - 08.10.1970, Síða 46

Vikan - 08.10.1970, Síða 46
Ginsbo vinnur alltaf á Vandað glæsilegt úr Glæsileg tækifærisgjöf * Franch Michelsen úrsmíðameistari Laugavegi 39 Það eru líka „eðlileg“ vandamál. — Þegar þannig er ástatt, seg- ir Lisbeth Palme, -— er það rétt að álykta sem svo að þetta „jafni sig“. Þótt börn séu afar mismun- andi skapi farin og þroskist á mismunandi hátt, þá eru vanda- málin sjálfsagt ósköp lík, það geta verið róleg tímabil og svo önnur, þegar þrjózka og óþekkt kemur til, og það getur tekið á foreldrana. Það getur verið að öllum sé þetta ekki jafn ljóst. Tveggja ára, — sex ára og táningar. — Hvaða aldursskeið eru erf- iðust, fyrir utan táningaaldur- inn? — Tveggja ára, eða í kringum það tímabil sem barnið verður talandi. Og sex ára aldurinn. Tveggja ára barn er að springa af lífsorku og vill vita alla hluti, það hendist yfir hvað sem fyrir er og heyrir stanzlaust boð og bönn. Barnið getur ekki beðið um skýringar og það getur ekki heldur tjáð sig, þegar því finnst sér ekki gert rétt undir höfði og það hefur ekkert vopn annað en að beita vonzku. Við verðum að muna að þessi litla vera er að reyna að gera sig skiljanlega og það er ekki svo auðvelt. Við er- um einmitt núna með yngsta son okkar Matthias á þessu skeiði. Hann er, eins og öll börn á þess- um aldri, alveg dásamlegur. Og mjög framtakssamur og það get- ur stundum verið erfitt. En þetta er ákveðið tímabil og þegar manni er það ljóst, þá er allt auðveldara. Sex ára börn eru á eins konar breytingarskeiði. — „Sexára-vandamálið“ er kannske ekki eins ljóst? — Það getur litið þannig út. Hér er það oft að barn, sem hef- ur verið rólegt og meðfserilegt, mjög ástúðlegt, getur allt í einu umhverfzt, orðið frekt og fyrir- gangsmikið, þá þreytast foreldr- arnir oft og eru sí og æ að nöldra í því. „Sittu kyrr“. „Borðaðu fal- lega“. „Þú mátt....“ „Þú mátt ekki. ...“ Ef við hefðum öll þau nei og boð og bönn, sem við viðhöfum á einum degi á segulbandi! En ég veit að allt verður auðveld- ara ef foreldrarnir temja sér svo- litla kímni, en það er ekki hægt að gefa neina ákveðna uppskrift. En það væri ákjósanlegt að við gætum litið fram hjá smámun- um, sem venjulega eru ekki svo mikilvægir. Og temjum okkur að vera skilningsrík. Við skulum líta á sex ára barn. Litli kroppurinn er að teygja úr sér, er ekki lengur hnöttóttur og þybbinn, barnið ræður jafnvel ekki við lengdina. Það verður kannske fljótt þreytt, bæði af leik og ýmsum fyrirgangi, það verður hnuggið og veit ekki ástæðuna fyrir því. Sex ára barn er í þörf fyrir hlýju, sem það hefur orðið aðnjótandi fram að þessu og svo getur allt farið þversum, vegna þess að það hef- ur ætlað sér of mikið. Það síðast- nefnda er mjög táknrænt fyrir það aldursstig. Það eru sérstak- lega drengirnir, sem eru að losa sig frá pilsum móðurinnar. Þá eru þeir eiginlega í mikilli þörf fyrir skilningsríkan föður, en hann er þá ef til vill sjaldan heima. 46 VIKAN « tw.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.