Vikan - 08.10.1970, Page 47
ÞaS eru því sérstaklega dreng-
irnir, sem eru erfiðir á þessum
aldri, en þar sem við höfum ekki
gert neinar rannsóknir hér, þá
get ég ekki sagt neitt með sanni,
en mig grunar að drengir, sem
eru aldir upp í sveit séu ekki
eins erfiðir. Þar geta þeir tekið
þátt í daglegum störfum með
föður sínum og samskipti við
dýrin eru líka mjög holl þessum
ungu mönnum.
í sveitinni er líka miklu meira
athafnasvæði fyrir bæði telpur
og drengi.
Forskólar, leikskólar og
leikvellir eru á óskalista
Lisbeth Palme.
— Það er táknrænt fyrir sex
ára börn að þau verða þreytt á
leikföngum og leikjum, þau eru
fróðleiksfús og yfirleitt mjög
forvitin. Þess vegna er mjög
æskilegt að láta börn hafa mögu-
leika á forskóla, ég held því fram
að öll börn hafi rétt á því. Það
er verið að athuga þetta mál hér
í Svíþjóð. Að vísu eru mjög mörg
börn látin í forskóla, en það sem
ég vil láta koma skýrt fram er
að mér finnst þau eigi rétt á því.
Hvernig viljið þér hafa
forskólann?
— Fyrir mér vakir aðallega
félagslega hliðin. Það að börn fái
að vera í hópi, þá læra þau frek-
ar að taka tillit til annarra og
við samvinnu verða þau örugg-
ari, en auðvitað eiga þau sem
hafa vilja og löngun til að læra
að lesa, skrifa og reikna að fá
möguleika til þess.
Það sem ég álít mikilvægast
er að mæta athafnaþörf barns-
ins.
— Þá eru leikvellir og leik-
skólar yðar hjartans börn?
— Nei, þeir valda mér áhyggj-
um, því að ennþá er svo óendan-
lega mikið ógert á því sviði. Við
tölum um mannsæmandi íbúðir,
og þá á fólk flest við flísar, vegg-
skreytingar og parketgólf og þar
fram eftir götunum; við hugsum
um bílskúr, en ekki nægilega
mikið um athafnasvæði fyTÍr
börnin. Það er nú eitthvað verið
að tala um lagaboð í því tilviki,
sem betur fer. Það hefði átt að
vera komið fyrir löngu síðan.
Við eigum að eiga notalegar
stundir með börnunum.
Þegar talað er um börnin og
vandamál þeirra, þá er það
greinilegt að Lisbeth Palme álít-
ur hlutverk foreldranna mjög
mikilvægt. Og líka erfit.
— En við megum ekki gera
okkur það alltof erfitt. Börn eru
næm og eftirtektarsöm, það er
bezt að koma eðlilega fram gagn-
vart þeim og án spennu. Við get-
um leyft þeim að taka þátt í
daglegum störfum okkar og
áhugamálum, rétt eins og við
viljum taka þátt í því sem þau
taka sér fyrir hendur. Maðurinn
TAKIÐ UPP HINA NYJU AÐFERÐ OG LÁTIÐ
PRENTA ALLS KONAR AÐGÖNGUMIÐA, TIL-
KYNNINGAR, KONTROLNÚMER, KVITTANIR
O.FL. A RÚLLUPAPPÍR. HÖFUM FYRIRLIGGJ-
ANDI OG ÚTVEGUM MEÐ STUTTUM FYRIR-
VARA YMIS KONAR AFGREIÐSLUBOX.
LEITIÐ UPPLYSINGA
SKIPHOLTI 33 - SÍMI 35320
M W* S Fryslikistur 270-400 og 500 lítra
Ilannaðar ei'tir kröfum norskra neytendasamtaka.
Eldsnögg frysting, allt niður í -=-34°. Engin kristal-
myndun í selluvökvanum í matvörunum — því miklu
lengra gevmsluþol.
KPS frystikisturnar eru með læsanlegu loki, ljósi í
loki, á tvöföldum nylonhjólum, úr brenndu og lökkuðu
stáli að utan og innan vandlega ryðvarðar.
Matvælin eru örugglega geymd í KPS frystikistum.
Einar Farestveíft & Co. hl.
Bergstaðastræti 10 A, sími: 16995.
4i. tbi. VIKAN 47