Vikan - 01.07.1971, Side 6
FOINIINIFJORI
A NOTTONM
TIL Al LVFTA SIFINIM
Rætt við Reyni Örn Leósson,
sem vakti athygli í sjónvarpsþætti fyrir nokkru,
er hann braut handjárn, leysti sig úr
böndum og dró sjö tonna vörubíl.
TEXTI: GYLFI GRÖNDAL
MYNDIR: EGILL SIGURÐSSON OG SJÓNVARPIÐ
Reynir Örn Leósson vakti
athygli alþjóðar í sjónvarps-
þsetti fyrir nokkru. Hann lét
binda sig í bak og fyrir og
leysti sig án nokkurrar hjálp-
ar, mölbraut handjárn og dró
loks sjö tonna vörubíl. Áhorf-
endur rak að vonum í roga-
stanz yfir slíkum afreksverk-
um. íslendingar hafa frá fornu
fari borið virðingu fyrir sterk-
um mönnum, hvað þá mönnum
sem geta leyst slíkar aflraun-
ir sem Reynir Leósson. Sumir
fullyrða, að nú sé enginn mað-
ur uppi í heiminum, sem leiki
þetta eftir honum. í ráði mun
að endurbæta sjónvarpsþátt-
inn og sýna hann síðan erlend-
is, og fæst þá væntanlega úr
þessu skorið.
Vikan hafði hug á að kynna
Reyni fyrir lesendum sínum og
spjallaði því við hanmeina dag-
stund. Hann er 32 ára gamall,
búsettur í Innri-Njarðvík,
vörubílstjóri að atvinnu, kvænt-
ur og fimm barna faðir. Við
Reynir Orn Leósson er fæddur á Akureyri, en alinn upp í sveit hér sunnanlands. Hann er nú búsettur í Innri-Niarðvík, 32 ára gamall, kvæntur
og fimm barna faðir.
6 VIKAN 26. TBL