Vikan - 01.07.1971, Blaðsíða 27
J
Græni liturinn er sumarlegur
Græn- og hvítrúðótt og einlitt grænt fer vel
saman. Hér er rúmábreiðan rúðótt og ein-
litir koddarnir gera tilbreytingu. Það fer bezt
að hafa einlit, græn gluggatjöld við þetta.
Borðkrókurinn þarf varla skýringar við. Borð-
ið er úr ólitaðri furu,- gluggatjöld, tehetta og
stólseta úr grænrúðóttu bómullarefni.
Biátt og hvítt og
heimatilbúin húsgögn
Hér fyrir ofan er dálítið sérkennilega búinn
gluggi. Fyrir ofan hann er blá hilla, rúllu-
tjald úr blárúðóttu efni með stórum dúsk.
Undir glugganum er breið gluggakista og
fyrir neðan hana er strekkt efni eins og í
rúllutjaldinu, svo þetta myndar heild.
Til hliðar eru húsgögn, sem auðvelt er að
smiða heima. Stólarnir eru kassalaga, sess-
urnar úr froðuplasti (sem hægt er að fá skor-
ið til f réttum stærðum) og klæddar blá- og
hvítrúðóttu bómullaráklæði. Borðið og sökk-
ullinn undir stólunum er úr krossviði, hvft-
máluðum með bláum röndum.
26. TBL. VIKAN 27