Vikan


Vikan - 01.07.1971, Page 27

Vikan - 01.07.1971, Page 27
J Græni liturinn er sumarlegur Græn- og hvítrúðótt og einlitt grænt fer vel saman. Hér er rúmábreiðan rúðótt og ein- litir koddarnir gera tilbreytingu. Það fer bezt að hafa einlit, græn gluggatjöld við þetta. Borðkrókurinn þarf varla skýringar við. Borð- ið er úr ólitaðri furu,- gluggatjöld, tehetta og stólseta úr grænrúðóttu bómullarefni. Biátt og hvítt og heimatilbúin húsgögn Hér fyrir ofan er dálítið sérkennilega búinn gluggi. Fyrir ofan hann er blá hilla, rúllu- tjald úr blárúðóttu efni með stórum dúsk. Undir glugganum er breið gluggakista og fyrir neðan hana er strekkt efni eins og í rúllutjaldinu, svo þetta myndar heild. Til hliðar eru húsgögn, sem auðvelt er að smiða heima. Stólarnir eru kassalaga, sess- urnar úr froðuplasti (sem hægt er að fá skor- ið til f réttum stærðum) og klæddar blá- og hvítrúðóttu bómullaráklæði. Borðið og sökk- ullinn undir stólunum er úr krossviði, hvft- máluðum með bláum röndum. 26. TBL. VIKAN 27

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.