Vikan - 01.07.1971, Qupperneq 50
/ nœstu
Úld er liðin síSan búseta
hófst á Sauðárkróki
Sauðárkrókur heldur upp á aldarafmæli sitt
um þessar mundir. í tilefni af því birtir Vik-
an efni frá Sauðárkróki í næsta blaði. Við
segjum bæði frá fortiðinni og nútíðinni, birt-
um skemmtilegar lýsingar á bæjarbragnum
fyrir aldamótin, sem fengnar eru úr hinni
merkilegu Sögu Sauðárkróks eftir Kristmund
Bjarnason. Þá birtum við litmyndir frá Sauð-
árkróki eins og hann er nú til dags, bæði að
sumar- og vetrarlagi.
Hann
trúir á
sálnaflakk
Þá er vert að geta
um grein, sem
segir frá manni,
sem trúir statt og
stöðugt á sálna-
flakk og telur sig
hafa óyggjandi
sannanir fyrir því.
Ævisaga Marilyn Monroe
Marilyn Monroe gleymist ekki, þótt mörg ár
séu liðin síðan hún lézt. „Monroe-look" er
nýjasta nýtt í heimi tízkunnar. I næsta blaði
birtist fyrsta grein af þremur um dapurlega
ævi hinnar dáðu leikkonu.
Náðuð til að deyja 1
„Náðuð til að deyja" er fyrirsögn á frásögn
af einu frægasta sakamáli eftirstríðsáranna.
Ruth Blaue var sökuð um að hafa myrt eigin-
mann sinn með aðstoð elskhuga síns, sem
var kunnur myndhöggvari. Sjá nánar í næsta
blaði.
• Kalt og gott, sumarréttir í Eldhúsi Vik-
unnar, sem Dröfn H. Farestveit, húsmæðra-
kennari, annast.
• íslenzk smásaga, Golgata, eftir Sigurð
M. Brynjólfsson.
• Tvær framhaldssögur, Ugla sat á kvisti
og í brúðkaupsferð með dauðanum, báðar
hörkuspennandi.
• Spánný snið frá Simplicity, sem fást
hvergi nema í Vikunni.
• Og ótalmargt fleira.
HITTUMST AFTUR - I NÆSTU VIKU
þetta barn, þó við viljum alls
ekki segja neitt um það: til
þess er málið allt of alvarlegt.
En þú ættir að leita læknis og
leita ráða hjá honum . . .
„Uss, ekki segja ...“
Kæri draumráðandi!
Ég er hér ein sem er mjög
óheppin í svokölluðum éstar-
málum en fyrir nokkru dreymdi
mig eftirfarandi draum, sem ég
ætla að biðja þig að ráða fyrir
mig.
Ég var í partý og var með strák
sem við skulum kalla M, en var
hrifin af strák sem við skulum
kalla V. Allt f einu kemur V og
er með vatnssprautu og ætlar
að sprauta á mig en ég segi:
„Nei, ekki gera þetta!"
Um leið geng ég aftur á bak
og lendi inn á klósetti. Þá tek-
ur V mig og kyssir mig þar til
einhverjir strákar, á að gizka 8
ára, koma að okkur. Þá segjum
við bæði: „Uss, ekki segja."
Við það vaknaði ég. Ég vil
taka það fram að ég hef verið
með V og eru svona tvær vik-
ur sfðan við hættum að vera
saman. V er á föstu núna og ég
líka.
Ein sem dreymir oft
í Stykkishólmi.
Hræddir erum við um að af-
staða fólks og þýðing hugtaks-
ins „að vera með einhverjum"
hafi breytzt undanfarin ár. Og
það er það sem okkur þykir
merkilegast við þennan draum.
Hann er að öðru leyti aðeins
staðfesting á því að þú ert hrif-
in af V og átt eftir að vera
með honum aftur — til að hætta
því fljótlega.
Svar til Jónu
Nafn mannsins í fyrri draumn-
um hefði getað orðið okkur góð
hjálp, en því miður verðum við
aðeins að vera með lauslegar
ágizkanir í þetta skipti. Sem sé
að þú komist í einhverja pen-
inga fljótlega, mögulega arf og
fleira verður til að gleðja þig.
Síðari draumurinn er þér fyrir
veikindum og boðar þér að féð
hverfur jafn skjótt og það kom.
50 VIKAN 26. TBL