Vikan - 15.07.1971, Blaðsíða 5
FATNABURINN
í SUMARFERBALAGIB
PERMA-PREST
Buxurnar sem ekki þarf að pressa
Safarijakkar - Sportblússur
Sportskyrtur - Peysur - Bolir
KJðRGAKDUR - KERRADEiLD
allt með því að rétta út litla
putta.
Ensku textana úr HAIR held ég
að erfitt sé fyrir þig að fá nema
þú getir útvegað þér leikinn
sjálfan og svo er náttúrlega sá
möguleiki fyrir hendi að setja
plötuna á fóninn og reyna að
skrifa niður eftir því öllu saman.
En það er mikil vinna!
Spákonan á heima á Kolbeins-
stöðum II, Seltjarnarnesi, sími
(91)21626.
Deep Purple
Kæri Póstur!
Við erum hérna tvær stelpur
sem voru á hljómleikunum með
Deep Purple í Laugardalshöll-
inni. Okkur langar að vita hvort
þeir séu giftir og hverjir af þeim
eiga börn og hvað mörg. Hvað
eru þeir gamlir og hvar eiga
þeir heima.
Elsku Póstur, við vonum að bréf-
ið lendi ekki í ruslakörfunni og
að þú svarir þessu sem allra
fyrst.
Með þökk fyrir allt gamalt og
gott.
Tvær mjög forvitnar.
Eftir því sem við komumst næst,
munu þeir Roger Glover og Jon
Lord vera giftir og eiga eitthvað
af börnum, en slíkum málum er
yfirleitt haldið leyndum, þannig
að lítið er vitað um fjölda af-
kvæma. Varla eru þau þó mörg.
Þeir eru á milli tvitugs og þrí-
tugs og búa í London.
Kynvillt?
Kæri Póstur!
Ég ætla að koma strax að efninu.
Ég vil biðja þig að svara þess-
um spurningum eftir þv( sem
þú getur bezt:
1. Hver eru einkenni kynvillu?
2. Er það merki þess að ég sé
kynvillt, ef ég er mjög kyn-
óð.
3. Hvað er hægt að bera á negl-
urnar til að styrkja þær?
4. Hvernig getur meyjarhaft
slitnað öðru vísi en við sam-
farir?
5. Hvað merkir það að dreyma
konu sem ég dái?
Elísabet.
1. Gleggstu einkenni kynvillu
eru þau að sækjast framar
eftir kynferðislegu sambandi
við sitt eigið kyn en hitt.
2. Þó þú sért „kynóð" eru það
engin merki þess að þú sért
kynvillt, nema síður sér. Hitt
er annað mál að ef þú ert
„kynóð" með kvenfólki ætt-
ir þú að athuga málið.
3. í snyrtivörubúðum færðu
naglaherði.
4. Meyjarhaft getur til dæmis
slitnað í leikfimi og eins er
það svo veikt í sumum kon-
um að þær verða hreinlega
ekki varar við það þegar það
er rofið.
5. Samkvæmt upplýsingum
draumspekings okkar er það
varla fyrir neinu góðu.
28.TBL. VIKAN 5