Vikan


Vikan - 15.07.1971, Blaðsíða 49

Vikan - 15.07.1971, Blaðsíða 49
ingjusamur. Hjarta hennar sló hraðar. — Elsku Anna ... Guð minn góður, stelpa, barn, hvað eigum við að gera hér lengur? Við skulum hraða okkur héðan og reyna að vera í friði saman! Það var kökkur í hálsi hans og hann varð að ræskja sig, áður en hann skellti upp úr. Hann sveið svo undarlega í augun, en hann hió. — Heyrðu, sagði hann. — Er þér alvara? Áttu við, að þú ...? — Já, svaraði hún. — Ég á víst við það, Yngvi. — Ég verð að fá að kyssa þig núna. Á stundinni' Ég veld hneyksli, en mér stendux á sama um það. — Komdu! sagði Anna. Hún tók um hönd hans og fór með hann að fatageymslunni. Hneyksli, umtal, ekkert. En hún vildi ekki, að neinn kæmi auga á þau núna. Sérstaklega ekki Kristján og Kristín. Þau fengu fötin sín. Stúlkan í fatageymslunni sótti hvítu kápuna hennar og ljósa frakk- ann hans. Menn gláptu á eftir þeim. Hvers vegna í ósköpunum fóru þau, meðan á sýningunni stóð? Anna leit um öxl og sá undrunarsvipinn og hana lang- aði mest til að skella upp úr. Já, hún var að hlaupast á brott, þótt um seinan væri! Hún var hjá Yngva og þau voru ekki ein- mana lengur. Þau voru tvö. Tvö, sem gátu staðið gegn öll- um. Tvö, sem vissu, hvað þau vildu. Yngvi rétti henni kápuna eins og hann vildi helzt, að hún félli í faðm honum og hún gerði það. Hún fann, hvernig hann tók um axlir hennar og það handtak var unaðslegt. Hún var hiá honum, hún átti sér mann. Hún hvildi í faðmi hans og gai þó litið um öxl og horft á hann. — Þú hefur engu svarað mér, sagði hún og það glampaði á eitthvað í grábrúnum augum hennar. — Kannski viltu mig ekki? — O, ég skal sýna þér, hvort ég vil þig eða ekki! Komdu, vina mín! Hvar náum við í leigubíl? Og hvert eigum við að fara? Ég vil fá kampavín, því að ég er hamingjusamasti maður í heiminum. Anna varð alvarleg. Þetta var raunverulegt. Hann var hjá henni, skammt frá henni og vildi alltaf vera nálægt henni. Hann yrði maðurinn hennar — hún hafði beðið hans sjálf ... Og nú yrðu þau hjón ... hann og hún ... Kristján? Nei, hann var hjá Kristínu og það vissi hún. Og svo þótti henni líka vænt um Yngva. — Já, svaraði hún eilítið há- vær, en hraðmælt. — Mig lang- ar líka í kampavín! Skemmtum okkur nú ærlega! Þau náðu sér í borð við glugg- ann á Savoy. Þjónninn kom með kerti og þau virtu hvort annað fyrir sér í flöktandi kertaljósinu. — Hvenær eigum við að gifta okkur? sagði Yngvi. — Þetta borð er annars allt of breitt, mig langaði til að hafa þig við hliðina á mér. En nú get ég ekki einu sinni horft á þig. Heyrðu, komdu annars hingað til mín. Ja, nema við komum okkur héðan sem fyrst. Fáðu þér sopa, hjartað mitt! Við höf- um aldrei skálað fyrir neinu fyrr! Þau lyftu bæði glasi og drop- arnir freyddu við andlit henn- ar. Henni fannst veröldin allt í einu svo undursamleg. — Bráðum, sagði Anna. — Ég á við það, að við verðum að gifta okkur bráðum. Ég vil gift- ast þér strax. Og hún vildi það líka. Hún fann núna, að hún þráði það. Hún leit á hönd hans, sem hvíldi á hennar og minntist þess, að fyrsta kvöldið hafði henni fundizt hún of breið og fingurnir of stuttir, en núna hugsaði hún um það eitt, að hún var styrk og hlý. Að henni leið vel, þegar hún fann hönd hans snerta sína. Hún færði hönd sína til svo að hún hvíldi undir hendi hans og þar var gott að vera. Eins og í hreiðri. Þannig fannst henni það. Eins og hún væri örugg og vernduð. — Anna, Anna .. . hvíslaði hann. — Að þú skulir vilja það. Að það eigi að verða við. Seinna sagði hann spenntur og ákafur eins og hann væri lítill drengur: — Ég elska þig svo heitt, Anna. Ég skal gera allt til þess, að þú verðir hamingjusöm. Ég skal aldrei láta neinn gera þér mein. Hún varð orðlaus. Eitt andar- tak hugsaði hún: sá, sem elsk- ar, sem er elskaður ... En það var ekki rétt. Henni þótti vænt um hann og henni hlaut að þykja meira vænt um hann seinna. Þetta með Kristján var ímyndun ein. Hún átti aðeins að minnast þess alltaf sem Yngvi hafði verið að segja henni. Henni virtist sem múr hefði risið umhverfis hana, traustur og styrkur múrveggur, sem gæti verndað hana gjörsamlega. — Ef ég hefði ekki neyðzt til að fara heim, sagði hann seinna. — En ég get ekki verið lengur að heiman. Lofaðu mér nú að segja upp vinnunni á morgun, Anna. Og sjá svo um, að þú getir komist fljótlega til mín. Heyrðu nú — nei, ég kem til þín og sæki þig. Við eigum húsið í Steinbrú. Hvítt einbýl- ishús, sem er gamalt en vel við haldið. Geturðu annars ekki komið með mér á morgun til að skoða það? — Því miður, flýtti Anna sér að segja. — Ég kemst ekki svona fyrirvaralaust. Það gerir heldur ekkert til, því að nú er skammt eftir. Segðu nú frá, Yngvi frændi og ... — Yngvi frændi, skammastu þín! En hann hló og tók upp pennann sinn. — Hérna gengur maður inn og þar er komið inn í borðstofuna, þarna er vinnu- herbergi, lítið og notalegt, ég kallaði það alltaf hliðarher- bergið, þegar ég- var lítill — eldhús og jómfrúrbúrið. Og svo setustofa og fjögur svefnher- bergi uppi á lofti. — Hvað! sagði Anna og skelfingin var engin uppgerð. —■ Sjö herbergi! Þetta er risa- stórt hús! — Það er það ekki fyrir þann sem er vanur því. Ég hef alltaf átt heima þar. Já, ég fæddist þar. Þau ætluðu víst að fylla húsið af systkinum mínum, en þau urðu aldrei til og nú er þar tómlegt. Anna ég þrái þig. Og hún þráði hann einnig. — Eigum við að fara heim til mín? hvíslaði hún. Hann roðnaði, en hann leit ekki undan. — Þú mátt ekki misskilja mig, sagði hann. — En nú — núna, þegar ég veit, að við verðum hjón — já, þá vil ég bíða eftir þér. Mér þykir nefni- lega svo vænt um þig, skal ég segia þér, að ég . . . Hún kyngdi og fann til ástar, stolts og gleði. Hún vissi, að þau hefðu öll hæðst að þessu — Lotta og hin á blaðinu. Og hann Kristián. Kristján hefði hlegið sig í hel. En henni þótti vænt um þetta. Allt var breytt. Og hún var svo glöð, svo innilega glöð í hjarta sínu. — Ég skil, sagði hún lágt. — Það er betra þannig. — Nú fylgi ég þér heim, sagði Yngvi. — Ég fer snemma í fyrarmálið, en ég hringi. Og ég kem aftur. — Já, hvíslaði hún lágt eins og áður. Þetta var allt eins og það átti að vera. Svo yndislegt og rétt. Það færi allt vel, þau gátu — Allar poppstjörnur, sem snúa bakhliðinni út, eru annaðhvort giftar eða trúlofaðar! beðið. Hún var kona manns, elskuð og vernduð. Þetta var nýnæmi fyrir hana og hún naut þess. Hún lá lengi vakandi um kvöldið, þegar Yngvi hafði kvatt hana. Henni fannst, að hann hefði komið fram eins og heiðursmaður, ekki aðeins vegna þess, að hann vildi bíða, heldur vegna þess að í þessari íbúð hafði hún búið með Kristjáni. Það hefði ekki verið rétt að elska Yngva þar. Næsta morgun leit hún í kringum sig. Að fara — yfir- gefa allt lífið í Málmey, hvern- ig gat hún það? Hún hafði búið þar svo lengi og var orðin svo rótgróin þar og hafði liðið þar vel. En hér minnti allt hana á fyrra hjónabandið og því var lokið. Það var bezt að skipta alveg yfir. Losa sig við íbúðina og allt, sem í henni var. Byrja á byrjuninni. Hún hafði rétt tyllt sér á stólinn við skrifborðið á blað- inu, þegar Yngvi hringdi. — E... en, sagði Anna og leit heimskulega á klukkuna. — Ætlarðu ekki heim? — Ég er heima, sagði Yngvi hlæjandi. — Taki maður sjö- lestina er maður kominn klukk- an níu. Mig langaði bara að heyra í þér. Vita með vissu, að bú hefðir ekki skipt um skoðun. Hann hló ekki lengur og hún fann einhvern óróa í raust hans. — Nei, sagði Anna blíðlega. — Nei, Yngvi, ég hef ekki skipt um skoðun. Hann þagði dálitla stund, svo sagði hann. — Mér datt dá- lítið áriðandi í hug. Hverjum ætlarðu að bjóða í brúðkaups- veizluna? Ættingjum, vinum, fólki hvaðanæva að? — Alls engum. Bróðir minn kemur. Hann heitir Pétur og býr hérna. Viltu, að hann komi? — Vitanlega vil ég það. Ætl- ar þú að tala við hann? Segja honum frá okkur? Svo að hann viti það allt og samþykki. — Já, sagði Anna og skelli- 28. TBL. VIKAN 49

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.