Vikan - 15.07.1971, Blaðsíða 16
Brot úr ævisögu Marilyn Monroe -2
James Dougherty og hin 16 ára brúSur hans.
Norma Jeane virtist loks hafa
fundið öryggi heimilis, það sem
hún hafði þráð alla sína æfi og
smátt og smátt greru sár ein-
manaleikans og óhamingjunn-
ar. En allt í einu skeði það sem
enginn átti von á: Hún byrjaði
að stama; sennilega vegna þess
hve óvænt öryggið kom og hún
var óvön því. Hún gat ekki lok-
ið við orð og setningar og lenti
í endalausum vandræðum og
áhyggjum í skólanum vegna
þessa.
Enginn hefur fyllilega getað
útskýrt þessa skyndilegu mál-
helti stúlkunnar, en með ótrú-
legri þolinmæði og umhyggju
tókst frú Goddar smátt og smátt
að laga þennan galla. Tímunum
saman sátu þær og frú Goddard
hjálpaði Normu Jeane að tala
hægar og losna við stamið. En
síðar átti Marilyn Monroe það
til að stama, ef hún var mjög
æst og þreytt, þó að undir lokin
hafi það verið algjöriega horfið.
En öryggið og hamingjan sem
Norma Jeane var farin að telja
endanlegt, hvarf í september
1935. Á níunda degi þess mán-
aðar pakkaði Norma Jeane nið-
ur eigum sínum og gekk með
frú Goddard út um djrrnar á 18.
aldar húsinu sem Goddard
hjcnin bjuggu í í miðri Holly-
wood.
Norma Jeane gat ekki skilið
hvers vegna hún þurfti að fara
frá heimilinu sem henni var svo
kært og hvers vegna hún þurfti
að fara frá konunni sem hún
var farin að elska sem sína eig-
in móður. En kaldar staðreynd-
irncir voru samt fyrir hendi.
Kreppan mikla var ekki búin
og Goddard-hjónin höfðu ekki
efni á að hafa stúlkuna. Vegna
fjárhagsörðugleika var frú
Goddard að byrja að vinna á
nýjan leik og þar með yrði eng-
inn heima til að annast um
Normu Jeane eins og nauðsyn-
legt var. En áður en bær fóru
að heiman lofaði Grace grátandi
stúlkunni því að hún skyldi
ekki gleyma henni. „Ég sæki
þíg um leið og ég get — ég lofa
því.“
En þessi orð voru litlu stúlk-
unni engin huggun. Hún var
sár og slegin og sannfærð orð-
HJÓNA-
BAND
EÐA
MUNAÐAR-
LEYSINGJA
HŒLI
Hér birtum við annan kaflann í ævisögu
Marilyn Monroe, en fyrsti hlutinn
birtist í síðasta blaði og þessum greinaflokki
lýkur í því næsta. Hér segir frá þeim
raunverulegu heimilum sem hún eignaðist
og hennar fyrsta hjónabandi -
ásamt kaldranalegum aðdraganda þess.
16 VIKAN 28. TBL