Vikan


Vikan - 15.07.1971, Side 21

Vikan - 15.07.1971, Side 21
UGLA SAT A' KIIISTI - Þú veizt, aS ég hef verið hrifinn af þér frá því að ég sá þig fyrst, Anna, sagði hann. - Þú ... Framhaldssaga sjöundi hluti Indælt, þegar hann hélt um hana, elskulegt að hvíla í faðmi hans. Gott að vera kysst aftur, dásamlegt að hlýða á orð hans. En svo urðu hendur hans alltof vissar, alltof krefjandi og Anna sleit sig lausa. — Ég ... blómin þín visna, sagði hún og gerði sér upp hlát- ur. Hún opnaði stóran pakkann og tók blómin úr honum. Nell- ikur, dumbrauðar nellikur — einu blómin í veröldinni, sem hún þoldi ekki. En Yngvi vissi það ekki og hann hafði aðeins gott í huga. Hún sagði það reiðilega við sjálfa sig, meðan hún setti þau í vatn og taldi honum trú um, að henni þættu þau dásamleg. Hann minnti hana á blómin — hugsaði hún. Ekki glæsileg- ur, en sjálfumglaður. Alltof fullkominn. Hún skammaðist sín fyrir það, hvað henni leidd- ist þessi skjannahvíta skyrta hans og velhnýtt bindið — ja, ef maður er annars vanur skyrtupeysu og köflóttum jakka þá ... og svo lagði hann hönd sína með lófann upp á hné hennar. — Hefurðu virkilega saknað mín? spurði hann og honum var alvara. Hún heyrði sjálf undr- unarhreiminn í rödd hans — það var sama undrunin og hún hafði fundið til sjálf — það þykir einhverjum vænt um mig og einhver vill vera hjá mér — og hjarta hennar var þrungið ástúð. Hún tók um hönd hans og lét hana við vanga sér. — Já, sagði hún. — Ég hef saknað þín. Ég er feginn að sjá þig- Seinna hló hún með sjálfri sér og hugsaði um það, að hann hefði minnt hana á barn á jóla- skemmtun. Þau fóru út, en hún þorði varla að líta í búðar- glugga, því að hann rauk inn og keypti allt, sem hún hreifst af. Hann keypti allt mögulegt, áður en hún gat haldið aftur af honum. Fallega slæðu, dýrt ilm- vatn, lítið tröll með rautt hár og gleraugu — allt vegna þess, að hana langaði til að líta í gluggana. Hún hló og mótmælti en var þó ánægð í fyrsta skipti í marga mánuði. Hún var ekki hrædd fyrr en um kvöldið, þegar þau komu heim til hennar. Þá var hann ekki lengur barnslegur. Hann var alvarlegur. — Þú veizt, að ég hef verið hrifinn af þér frá því að ég sá hig fyrst, Anna, sagði hann. — Þú... Hún kom ekki orði upp. Hún vissi ekki, hvað hún átti að pera eða hverju hún átti að svara. Hún vissi aðeins, að þetta gekk alltof hratt fyrir sig og að hún vildi ekki... nei, vildi ekki, gat ekki. Og svo var henni hugsað til þess á örvæntingar- andartaki — ef ég vil nú aldrei aftur, get aldrei aftur? Er ég orðin köld kynferðislega? Gerðu Kristín og Kristján mig þannig? Það er engu líkara, en ekkert skipti mig máli framar. Og samt var ég svo hrifin að siá hann. Ef ég fæ nú tíma til að... — H .. .heyrðu, sagði hún og stamaði svolítið. — Það er eitt- hvað að mér... ja, ég... ég bara get það ekki... heyrðu ... Hún blygðaðist sín og gat e^ki litið í augu hans. Auðvitað hlaut hann að skilja, að hún var að skrökva og brá fyrir sig eld- gömlu bragði til að sleppa. Það hefði hver einasti karlmaður skilið. Og hún óttaðist svar hans. En hann roðnaði bara. — Ég er nú meiri hrottinn, Framhald á hls. 47. 28. TBL. VIKAN 21

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.