Vikan


Vikan - 15.07.1971, Síða 26

Vikan - 15.07.1971, Síða 26
Aldrei þreytt, aldrei veik, aldrei hrædd Júlía, frú Nixon og Tricia í Washington árið 1952. I þessari grein, sem er eftir bandarísku blaðakonuna Jessamy West og birtist upphaflega í Good Housekeeping, kynnumst við húsmóðurinni í Hvíta húsinu - frú Patriciu Nixon. Á þessari öld lyfjanna, þeg- ar það þykir sjálfsagt að taka pillur, töflur og alls konar önn- ur lyf til þess að hressa sig, til þess að róa sig og í öllum hugs- anlegum tilgangi þar á milli, er Pat Nixon undantekning. Hún notar engin slík lyf. Á þeim tímum, þegar við notum alls konar lyf og tæki til fegrunar, megrunar og róandi áhrifa, þarf Pat Nixon engrar slíkrar hjálp- ar við. Hún stendur á eigin fót- um. Á þeim tímum, þegar lækn- ar lýsa yfir því, að fjölmargir sjúklingar, sem leita til þeirra með allar hugsanlegar kvart- anir, séu ekki haldnir neiniim greinanlegum sjúkdómum eða kvillum, verður Pat Nixon al- drei þreytt eða veik. Og á þeim tímum, þegar allir virðast hel- teknir ótta, ótta við mengun, aukið samneyti kynþáttanna, kommúnisma, lögregluríki, of- fjölgun, offitu og ótal margt anna, segir Pat Nixon bara: „Ég er ekki hrædd.“ Kona ein, sem hafði séð Nix- onhjcnin heilsa Englands- drottningu í ferð þeirra til Ev- rópu ? fyrrahaust, sagði: „Það var ekki síður hefðarfas á frú Nixon en drottningunni.1 Drottningarleg. Óþreytandi. Óhrædd. Hvers fleira er hægt að krefjast af forsetafrúnni? Og samt veldur Pat Nixon undrun okkar. „Hvað er það, sem gerir hana svoiia?" j^essi spurning brennur á vörum okkar. Og því spyrjum við hennar. Og ef við fáum ekki svar við henni, þá veltum við mögulegum svörum fyrir okkur. Mér hafði lengi fundizt, að Nýleg mynd af Patrieiu Nixon ásamt daetrunum, Júlíu, sem er 22 ára (til vinstri) og Patriciu, sem er 24 ára. 26 VIKAN 28. TBL

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.