Vikan


Vikan - 15.07.1971, Side 50

Vikan - 15.07.1971, Side 50
/ nœstu Fyrsta keppni í hárgreiSslu, sem haldin er hér á landi Nýlega fór fram fyrsta keppnin í hárgreiðslu hér á landi. Keppendur voru tíu ungir svein- ar og nemendur í hárgreiðslu. Keppnin fór fram með tilliti til þátttöku íslands í Norður- landakeppni í hárgreiðslu, sem fer fram í Finnlandi í október. Þátttakendur íslands verða þeir þrír keppendur, sem dæmdir voru hlutskarpastir. VIKAN tók margar myndir af þessari nýstárlegu keppni og segir frá henni i máli og myndum í næsta blaði. Loksins1 Hollywood í þriðja og siðasta hluta úrdráttar Vikunnar úr ævi- sögu Marilyn Monroe segir frá skilnaði hennar við Jim Dougherty og fyrstu tækifærum hennar í Hollywood. Woodoo er hatur og blóðfórnir Hinn frægi sænski miðill, Astrid Gilmark, seg- ir í næsta blaði frá ferð sinni til Rio de Jan- eiro og woodoofundi, sem hún var viðstödd þar. Slíkar athafnir, sem einkennast af hatri og blóðfórnir eru bannaðar með lögum. Ný framhaldssaga Ný framhaldssaga hefst í næsta blaði, skáld- sagan „Lifðu lífinu," sem hefur verið kvik- mynduð. Myndin verður sýnd í Tónabíói sið- ar. „Lifðu lífinu" er saga þriggja persóna. Líf þeirra er samtvinnað á örlagarikan hátt — hinn eilífi þríhyrningur. • „Vindsængin" — islenzk smásaga í léttum dúr eftir Orn H. Bjarnason. Sagan ger- ist meðal annars á Hótel Sögu og víðar í Reykjavík. • Pottaréttir að sumarlagi í Eldhúsi Vik- unnar, hinum vinsæla þætti, sem Dröfn H. Farestveit, húsmæðrakennari, annast fyrir Vik- una. • Fróðleg grein um siðustu og fegurstu drottningu Skota — Maríu Stuart. • Spánný snið frá Simplicity, hin spenn- andi framhaldssaga „Ugia sat á kvisti" og ótalmargt fleira. HITTUMST AFTUR - I NÆSTU VIKU hló. — Á stóribróðir að lýsa velþóknun sinni yfir okkur? En ég skal gera það. — Gott, Anna ... ég elska þig svo heitt. Við sjáumst bráðum. — Já. Ég þarf að fara að vinna, Yngvi. Ég ætla líka að skrifa uppsagnarbréf. Hringdu til mín í kvöld í staðinn, nei, ég ætla til Péturs í kvöld. En hringdu þá seint í kvöld. — Þú þarft nú ekki að biðja mig um það. Sæl á meðan — Sjálfur sæll. Hún fór til Péturs um kvöld- ið. Hún tók strætisvagninn nið- ur í bæ, en fór úr honum við Gústafs Adolfs torgið. Það var milt og kyrrt í lofti og vorgol- an lék um kinnar he.nnar. Það var gott að ganga um. Hún gekk meðfram veggnum á gamla kirkjugarðinum, sem hafði ver- ið kirkjugarður svo lengi, að hann minnti mest á garð. Svo kom hún að götunni, sem Pétur bjó við. Hún tók lyftuna upp. — Anna! sagði Pétur glaður. — Hvað hefur komið fyrir þig? Þú lítur út eins og ný mann- eskja. Komdu inn! Ertu búin að borða eða langar þig að fara út? — Nei, sagði Anna hlæjandi. — Ég vil það alls ekki. Ég þarf að segja þér dálítið. Máttu vera að því að hlusta á mig? — Hvort ég má. Hann varð órólegur til augn- anna, en hann spurði einskis, hann gaf henni í glas og fékk sér annað sjálfur. Og hún sagði honum það. Ekki allt, því að hún gat eng- um sagt, hvað hún hefði verið einmana og örvæntingarfull. Hún sagði ekki heldur frá því, að hún hefði borið upp bón- orðið sjálf. Það skipti að vísu engu máli, en hún vissi nú ekki alveg, hvar hún hafði bróður sinn. Pétur þagði um stund eft- ir að hún hafði lokið máli sinu. — Ertu nú alveg viss um, að þú sért að. gera rétt, Systa? sagði hann hálfhikandi. — Þú hefur alltaf verið svo fljótfær. Heldurðu ekki, að þú þér hafi leiðst að búa ein? — Nei, það er ekki orsökin, sagði hún. — Ég veit það, Pét- ur og ég er að segja þér satt. Ég held líka, að þú kunnir vel við hann. Pétur Eiríksson leit á systur sína og enn sást votta fyrir efa í augum hans. En hún var svo glaðleg. Glaðlegri en hann hafði séð hana lengi. Gæti það kannski farið vel núna? Aðal- atriðið var að hún losnaði alveg við þennan Kristján. Svo var hægt að sjá til seinna. Framhald í nœsta blaSi. 50 VIKAN 28.TBL

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.