Vikan - 19.10.1972, Qupperneq 3
42. tbl. - 19. október 1972 - 34. árgangur
Vikan
S33S.
Heil kynslóð
grét yfir
moldum
hans
„Ef þú heldur þessum
hraða, þá kemstu aldrei
lifandi til Salinas". Þetta
sagði lögregluþjónn, sem
stöðvaði Jeames Dean í
hinni örlagaríku ökuferð
hans. En hann sinnti
ekki aðvöruninni, heldur
jók hraðann.
Sjá grein á bls. 10.
Dagbók
úr Hvíta
húsinu
Hvernig er að vera
húsfreyja í Hvíta húsinu?
Lady Bird Johnson hélt
dagbók, á meðan hún var
þar. Hún kom út í bókar-
formi í fyrra og varð
metsölubók. Við birtum
kafla úr henni á bls. 16.
Fimmtán
þúsund
manns
hurfu á
einni nóttu
Sovézk stjórnvöld beittu
Letta grimmd og harð-
ýðgi til að brjóta á bak
aftur alla andstöðu meðal
þeirra. Menn voru í
hundraðatali teknir af
lífi og tugþúsundir
fluttar í þrælabúðir í
Síberíu. Sjá viðtal við
lettneska rithöfundinn
Gunars Irbe á bls. 8.
KÆRI LESANDI!
„Ég hef hitt óvininn, og hún er
vinur minn. Ég er ekki alveg viss
um hvers vegna hún er ennþd
vinur minn, — hvers vegna hún
svarar kveðjum mínum hvert ný-
ár og hvert Tet — eða hvers
vegna hún skrifar mér ennþá. í
síðasta mánuði eru fjögur ár lið-
in frá því að við hittumst, og á
þeim tíma hef ég brugðizt henni
og börnum hennar og löndum,
sem og mínum eigin börnum og
landi. Þvi að okkur hefur ekki
tekizt að binda endi á þetta and-
stgggilega stríð, hvernig sem við
höfum regnt ..
Þannig hefst grein eftir banda-
ríslca blaðakonu, sem birtist í
þessu blaði. „Óvinurinn“ er frú
Nguyen Thi Binh. Hún er eins og
kunnugt er formælandi samn-
inganefndar Víetkong í hinum
langvinnu og hingaðtil tilgangs-
lausu friðarviðræðum í París.
Jafnframt því er hún utanríkis-
ráðherra bráðabirgðabyltingar-
stjórnar Suður-Víetnams.
„Eg hef virt hana fyrir mér af
sérstökum áhuga, þegar hún viku
eftir viku, nei, ár eftir ár, birtist
á sjónvarpsskerminum á leið ir.n
i Majetic-hótelið gamla til þátt-
töku i þessum stílfrosnu mótum
þöguls fjandskapar, sem kölluð
eru samningaviðræður“, skrifar
bandaríska blaðakonan.
..Næst Indiru Gandhi og Goldu
Meir er frú Nguyen Thi Binh
sennilega mikilvægasta kona
heims.
EFNISYFIRLIT
GREINAR
BLS.
Heil kynslóð grét yfir moldum hans, grein
um James Dean 10
Vinur minn, óvinurinn,
14
Dagbók úr Hvíta húsinu, Lady Bird John-
son, fyrrum forsetafrú Bandaríkjanna, segir
frá 16
VIÐTOL
„Ég viI, að heimilið sé hans griðastaður".
Vikan heimsækir Dóru Guðbjartsdóttur, for-
sætisráðherrafrú 26
Fimmtán þúsund manns hurfu á einni nóttu,
viðtal við Gunars Irba, rithöfund frá Lett-
landi 8
„Ég er rólegri i dag", Ómar Valdimarsson
ræðir við Country Joe McDonald í Gauta-
borg 18
SÖGUR
Ástríða, smásaga eftir Maupassant
12
Rensjöholm, framhaldssaga, 6. hluti
20
Konan í snörunni, framhaldssaga, 8. hluti 32
YMISLEGT
Matreiðslubók Vikunnar, fjórar litprentaðar
uppskriftir til að safna í möppu 29
Lestrarhesturinn, lítið blað fyrir börn, um-
sjón: Herdís Egilsdóttir, kennari
FASTIR ÞÆTTIR________________________________
Pósturinn 4
Síðan síðast 6
Mig dreymdi 7
í fullri alvöru 7
Stjörnuspá
45
Krossgáta
49
Myndasögur
43, 48, 50
FORSÍÐAN
Forsíðan er af frú Dóru Guðbjartsdóttur, eigin-
konu Ólafs Jóhannessonar, forsætisráðherra. Sjá
viðtal við hana í miðopnunni.
(Ljósm. Sigurgeir Sigurjónsson).
VIKAN Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Gylfi
Gröndal. Blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Matt-
hildur Edwald og Kristín Halldórsdóttir. Útlits-
teikning: Sigurþór Jakobsson. Auglýsingastjórar:
Sigríður Þorvaldsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir.
Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing.
Síðumúla 12. Símar: 35320 - 35323. Pósthólf
533. Verð í lausasölu kr. 60,00. Áskriftarverð er
575 kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega eða
1100 kr. fyrir 26 tölublöð misserislega. Áskriftar-
verðið greiðist fyrirfram. Gjalddagar eru: nóvem-
ber, febrúar, ma( og ágúst.
42. TBL. VIKAN 3