Vikan


Vikan - 19.10.1972, Blaðsíða 11

Vikan - 19.10.1972, Blaðsíða 11
ur ár eftir lát móðurinnar. Fað- ir hans gat lítið sinnt honum, hann fluttist milli fósturfor- eldra og ættingja og varð æ innhverfari. Áhorfendur hlógu að James Dean. En svo fór samt að hann stundaði skóla og komst í há- skóla, þar sem hann ætlaði að leggja stund á lögfræði. Náms- árangur hans var ekki beinlín- is aðdáunarverður, en einhvern veginn komst hann í kynni við leikara í áhugamannaklúbb. Það átti að setja Macbeth á svið og James fékk hlutverk prinsins. Þetta urðu mestu hrakfarir, fólkið æpti af hlátri, þegar James kom fram í múnderingu sinni og las hátíðlega hlutverk sitt. Gagnrýnendur rifu niður sýninguna í heild, en sérstak- lega þó James Dean. James Dean, sem aldrei hafði þolað gagnrýni, flýði til New York. Já, honum hafði mistek- izt við listina. En hann skyldi svei mér sýna þessu fólki, hann skyldi verða frægur leikari. En það var ekki hlaupið að því. Hann fékk samt nokkur smá- hlutverk í sjónvarpsþáttum og statistahlutverk í leikhúsum, en það var allt og sumt. Og ef húsmæðurnar, sem hann leigði hjá, hefði ekki vikið einu og öðru að honum, hefði hann varla tórt. Hann átti það til að loka sig inn á herbergi sínu annan daginn en svo gat hann verið hjálpsamur og elskulegur hinn daginn. Að lokum ákvað hann að Þessa mynd af James Dean höfðu þúsundir ungra stúlkna undir koddanum sinum á óiiðjum sjötta tug aldarinnar. að daginn eftir voru óskir hans uppfylltar. En þegar James var níu ára, fékk hann mikið áfall. Móðir hans lézt úr krabbameini. Honum fannst hann hafa ver- ið svikinn. Hvernig gat móðir hans yfirgefið hann á þennan hátt? — Hún gat auðvitað ekki lifað, sagði hann, mörgum ár- um síðar. — Hún var of góð fyrir þennan heim . . . Hann var í reiðileysi í nokk- reyna að komast inn á Actors Studio, bezta leikskólann í New York. En á síðustu stundu var hann næstum búinn að missa kjarkinn. Hann ætlaði að flýja af hólmi, en einn vinur hans gat komið i veg fyrir það og stappað í hgnn stálinu. A inntökuprófinu var hann látinn leika fyrir dómnefnd og í henni var, meðai annarra, Elia Kazan, leikstjórinn frægi. Prófið gekk vel og hann fékk inngöngu í skólann, en á eftir benti dómnefndin samt á tölu- verða galla í frammistöðu hans. James Dean gerði það sem hann var vanur að gera: flúði og lokaði sig inni. Það var ekki fyrr en eftir miklar fortölur, að hann fékkst ti) að koma aftur í skólann til að taka þátt i að minnsta kosti hluta ai' námsefninu. En oftast nær hélt hann sig í einhverju horninu og svaraði varla, þegar hann var ávarpaður. En svo fékk hann gullið tæki- færi, það sem hann sjálfur sagði að hefði ráðið örlögum hans. Honum var boðið sæmi- legt hlutverk í leikriti, sem Framhald á bls. 46. „Risinn" varS síðasta kvikmyndin hans. Hann var látinn, þegar myndin var frumsýnd og frum- sýningargestir voru flestir i sorg- arbúningi. James Dean og Elizebath Taylor urðu beztu vinir, meðan á upp- töku „Risans" stóð. Hann bauð henni, meira að segja, i bíltúr. 42.TBL. VIKAN 11

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.