Vikan


Vikan - 19.10.1972, Blaðsíða 13

Vikan - 19.10.1972, Blaðsíða 13
makki. Hann skeytti litið um ástir og langaði umfram allt til þess aö lifa kyrrlátu llfi. Hann lét sér nægja sllkar augnabliksástir öðru hverju sem ungir menn geta alltaf notiö. 011 sú viðkvæmni, riddaramennska og blíða, sem vel uppalin og menntuö kona krefst jafnan. olli honum einungis leiðindum. Þau bönd semskapast jafnan viö þess konar ástar- ævintýri, hversu óljós sem þau kynnu að vera, fylltu hann jafnan ótta. Hann sagöi þá við sjálfan sig: „I mánaðarlokin verö ég búinn að fá nóg af þessu og svo neyöist ég til að draga þolin- móður aö sllta þessu i heila sex mánuði af kurteisisskyldu.” Og sllk reikningsskil ergðu hann og þreyttu, með öllu þvi, sem þeim var samfara, tálvonum, tilfinningum og stööugri hollustu konunnar, sem hann var I þann veginn að yfirgefa. Hann foröaðist þvi að hitta Madame Poincot. En kvöld nokkurt lenti hann við hlið hennar I veizlu einni. Og hann fann hið brennandi augnaráð þessa fagra sessunautar á húð sinni, I augum slnum og jafnvel hjarta sinu. Hendur þeirra snertust og þrýstu hvor aðra hlýlega og næstum þvl ósjálfrátt. Astamakkiö var þegar að byrja. Hann hitti hana aftur og alltaf án þess að gera nokkuð til þess sjálfur. Hann sá nú, aö hún elskaði hann. Hann fann til samblands af meöaumkun og hégómagirni, þegar hann skynjaði, hviltk ofsaleg ástriða eftir honum bjó I hjarta þessarar konu, svo að hann lét það gott heita, að hún dáðist að honum, og sýndi henni aöeins riddara- mennsku, þar eö hann vonaöi, aö þetta samband yrði aðeins hugræns eðlis. En dag nokkurn mælti hún sér mót við hann til þess eins að hitta Framhald. á bls. 34. 42. TBL. VIKAN 13

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.