Vikan - 19.10.1972, Qupperneq 4
Teppin setn endast endast og endast
á stigahús og stóra góiffletl
Sommer teppjn eru úr nælon. Það er sterkasta teppaefniS
og hrindir bezt frá sér óhreinindum. Yfirborðið er með þéttum, lá-
réttum þráöum. Undirlagið er áfast og tryggir mýkt,
slslétta áferð og er vatnsþétt.
Sommer gólf- og veggklæðning er heimsþekkt. Sommer teppjn
hafa staðizt ótrúlegustu gæðaprófanir, m. a. á fjölförnustu
járnbrautarstöðvum Evrópu.
Við önnumst mælingar, lagningu, gerum tilboS og gefum
gó8a greiðsluskilmála. Leitið til þeirra, sem bjóða Sommer verS og
Sonmter gæSi.
UTAVER
GRENSÁSVEGI 22-24
SÍMAR: 30280 - 32262
P0STURINN
Ástfangin í klípu
Elsku Póstur!
Eg ætla að skrifa þér í von um,
að þetta lendi ekki í ruslakörf-
unni. Ég vil byrja á því að þakka
þér fyrir yndislegt efni blaðsins,
því að ég kaupi næstum alltaf
Vikuna. En nú er bezt að koma
sér að efninu. Ég er 15 ára og
í mikilli klípu. Ég er ástfangin í
fyrsta skipti af strák, sem er
jafngamall mér. Við erum bæði
ægilega feimin og þorum varla
að tala við hvort annað. Ef við
mætumst t. d. á götu, förum við
oftast sitt í hvora áttina. Ég
hugsa um hann hvern einasta
dag, og elsku Póstur, ég vona
að þú getir gefið mér gott ráð
um það, hvernig ég á að ná af
mér þessari feimni og hvernig
ég get náð í hann. Hvað lestu
úr skriftinni? X úr Olafsvík.
Þú ert sannarlega í klípu, yndis-
legri klípu, sem allt venjulegt
fólk lendir í fyrr eða síðar um
ævina. Feimni er líka ofur venju-
legt vandamál ungra sem gam-
alla, og við getum ekki gefið
þér annað ráð en að reyna að
byggja upp sjálfstraustið. Reyndu
að skoða sjálfa þig og finna út,
hvað í fari þínu sé þess virði að
rækta það, hvort heldur er um
að ræða innri verðleika eða eig-
inleika í útliti og fasi. Margar
ungar stúlkur leggja mikla
áherzlu á útlitið, t. d. hárið,
augun eða klæðnaðinn. Það
vekur vissa öryggiskennd að
vita sig líta vel út, en innri
maðurinn má aldrei gleymast.
Þú ert ung og átt áreiðanlega
eftir að kynnast mörgum pilt-
um, en sértu enn ástfangin af
þeim sama (bréfið er ekki al-
veg splunkunýtt), þá sakar ekki,
að þú sért upplitsdjörf næst
þegar þið mætist á götu, horfir
beint í augu hans og jafnvel
brosir uppörvandi. Skriftin gef-
ur til kynna, að þú sért hæglát
og draumlynd.
Vill veröa sjúkraliði
Kæri Pósturl
Hvaða menntun þarf að hafa
til þess að læra að verða sjúkra-
liði? Hvernig eiga nautið og
vatnsberinn saman? Hvað lestu
út úr skriftinni? Þakka allt gott
efni Vikunnar. H.Þ.
Til þess að fara í sjúkraliðanám
þarf ekki aðra menntun en
fuilnaðarpróf. Aldurstakmörkin
eru 17—50 ára, og námið tekur
eitt ár. Sjúkrahúsin halda nám-
skeið, hvert á sínum vegum, og
þarf aðeins að fylgjast með
auglýsingum frá þeim.
Nautið og vatnsberinn eiga
ekki sérlega vel saman, það
gæti að minnsta kosti betra ver-
ið, en viljinn dregur langt.
Skriftin ber vott um snyrti-
mennsku og dugnað.
Pésa og mótorhjóliö
Kæri Póstur!
Mig lagnar til að spyrja þig
nokkurra spurninga. Það er
þannig, að mig langar til að
eignast mótorhjól, og spurning-
arnar eru þessar:
1) Hvað þarf maður að vera
gamall til að fá að aka mótor-
hjóli?
2) Þarf maður ekki einhver próf?
Ég vona, að þú hendir þessu
ekki, þótt þér sýnist það nú
ekki merkilegt. Hvað lestu úr
skriftinni, og hvernig er hún?
Lögreglan gaf okkur þær upp-
lýsingar, að 17 ára þarf maður
að vera til að fá að aka mótor-
hjóli, og vissulega þarf til þess
próf. Snúðu þér til Bifreiðaeftir-
lits ríkisins, Borgartúni 7, sími
26077, og þar áttu að geta
fengið að vita, hvar kennslu í
mótorhjólaakstri er að fá.
Skriftin er bara falleg og bend-
ir til samvizkusemi og heiðar-
leika, en reyndu að ná af þér
feimninni.
Sumargetraunin
Kæri viðtakandi!
Geturðu sagt mér, hvernig er
með þetta hjá ykkur? Þið voruð
með sumargetraun, sem allflest-
ir hafa tekið þátt í, en svo frétt-
ir maður ekki neitt, hverjir hafa
verið hinir heppnu, og sumarið
er búið. Ég vona, að þú getir
frætt mig um þetta. Hvernig er
skriftin? Virðingarfyllst,
ein forvitin.
Satt er það, margir tóku þátt í
sumargetrauninni, og hinir
4 VIKAN 42. TBL.