Vikan - 19.10.1972, Qupperneq 5
heppnu eru löngu búnir aS fá
sína vinninga. Urslitin birtust í
38. tbl. Vikunnar, og nú skaltu
bara fara að búa þig undir jóla-
getraunina.
Skriftin er ekki falleg, og í þessu
stutta bréfi voru 9 stafsetningar-
villur, svo að það sakaði ekki,
að þú reyndir að bæta þig á því
sviði.
Vill eignast bréfavini
í Vesturheimi
Kæri Póstur!
Ég leita til þín með mín áhuga-
mál og hef raunar gert það áð-
ur. Þakka góð svör.
Svo er mál með vexti, að ég hef
mjög gaman af bréfaskriftum,
og nú langar mig til að skrifast
á við íslendinga i Kanada eða
Bandaríkjunum, sem skrifa og
lesa íslenzku. Hvert á ég að
skrifa til að fá bréfavini þar?
Gerðu það nú fyrir mig að segja
mér, til hvaða blaðs ég á að
skrifa. Þökk fyrir, ef þú birtir
þetta. Ég veit, hvernig skriftin
er, en hvernig er stafsetningin?
Sigrún Rósa.
w
í Winnipeg er gefið út eina ís-
lenzka vikublaðið í Vesturheimi,
Lögberg—Heimskringla. Við ráð-
leggjum þér að skrifa því blaði,
og utanáskriftin er:
Lögberg—Heimskringla
North American Publishing
Co. Ltd.
303 Kennedy Street
Winnipeg
Man. R3B 2M7
Canada.
Við fundum 4 stafsetningarvill-
ur í bréfinu þínu, og orðaskipan
var dálítið ábótavant, svo að
við reyndum að lagfæra bréfið
lítilsháttar, án þess að breyta
stílnum hjá þér.
Ein sem elskar
Ashton
Kæri Póstur!
Ég vil eins og allir aðrir sem
skrifa þér byrja á því að smjaðra
svolítið fyrir þér og þakka þér
fyrir allt gamalt og gott og þó
alveg sérstaklega eina grein, en
ég skrifa þér einmitt út af henni.
Það er greinin um hana Sheilu
í Ashtonf jölskyldunni. Gætuð
þið ekki birt greinar um fleiri
aðalleikarana í Ashtonfjölskyld-
unni? Það væri til dæmis stór-
kostlegt að fá greinar um David
eða Margréti, eða sjálf gömlu
hjónin.
Ég er sannfærð um, að fleiri en
ég mundu hafa gaman af að
lesa slíkar greinar. Ashton-fjöl-
skyldan er einhver skemmtileg-
asta framhaldssaga í sjónvarp-
inu, sem ég hef fylgzt með.
Maður er farin að þekkja þetta
fólk svo vel, að hver nýr þátt-
ur er eins og að fara í heimsókn
til þess. Ég vona, að þættirnir
verði sem flestir. Ég er strax
farin að kvíða fyrir, þegar
Ashton-fjölskyldan hættir.
Og fyrst ég er farin að skrifa
um sjónvarpið, þá langar mig til
að lýsa vonbrigðum mínum með
nýjasta fasta þáttinn hjá þeim.
Það eru Fóstbræðurnir. Ég hlakk-
aði þessi ósköp til að sjá Dýr-
linginn minn aftur, en hann er
ekki nema svipur hjá sjón. Og
ekki er Tony Curtis betri! Ég hef
reyndar ekki séð nema fyrsta
þáttinn, en hann var sannarlega
lélegur og leiðinlegur, lítið betri
en Ironside.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna.
Ein, sem elskar Ashton.
P.S. Er myndin um Ashton-fjöl-
skylduna gerð eftir skáldsögu?
Hefur hún komið út á íslenzku?
ÞaS fer ekki á milli mála, að
Ashton-fjölskyldan nýtur geysi-
mikilla vinsælda. Og greinin um
hana Sheilu um daginn var ekki
fyrsta greinin, sem Vikan birtir
um þessa ágætu fjölskyldu. í
8. tbl. þessá árs birtist grein um
alla helztu leikarana, þ.á.m. þá,
sem leika David, Margréti og
gömlu hjónin. Þú færð væntan-
lega aS „heimsækja" Ashton-
fjölskylduna nokkrum sinnum í
viSbót, því aS alls munu hafa
veriS teknir rúmlega fimmtíu
þættir um hana. Myndin mun
upprunalega hafa veriS byggS á
skáldsögu, en þegar hún hrökk
ekki lengur til, þá var fariS aS
prjóna viS. ViS höfum frétt, aS
sagan komi út á íslenzku í bók-
arformi núna fyrir jólin.
ARISTO
léttir námið
Með aukinni stærðfræðikennslu og vaxandi
kröfum nútíma tækniþjóðfélags er sérhverjum
námsmanni nauðsynlegt að vera búinn full-
komnum hjálpargögnum við námið.
Aristo reiknistokkurinn er gerður fyrir náms-
fólk með kröfur skólanna í huga.
Aristo reiknistokkur á heima í hverri skóla-
tösku.
PENNAVIÐGBRÐIN
Ingólfsstrætí 2. Sími 13271.
Uclgi 3C- Scssiliusson
Bólstaðahlið U2 — Sími S13U9
ökukennsla
Æfingatíntar
42. TBL. VIKAN 5