Vikan


Vikan - 19.10.1972, Page 7

Vikan - 19.10.1972, Page 7
MIG DREYMDI í FULLRIALVÖRU BARN í EGGI Kæri draumráðandi! Mig langar til þess að biðja þig að ráða fyrir mig draum, sem mig dreymdi fyrir tveimur dögum. Mér fannst faðir minn vera að fara inn í hænsnahús og athuga, hvort ekki væri komið út úr nokkrum eggjum, en svo virtist ekki vera. Ég stóð þarna hjá honum og heyrði hann bölva mikið. Hann skildi ekkert í þessu. Það átti að vera komið út úr eggjunum eftir tímanum að dæma. Hann hafði sett inn í útungunarvélina fyrir langalöngu. Síðan fer hann að þefa, rétt eins og brjálaður maður, og tekur frá þetta stærðar egg, fleygir því frá sér og segir: „Þetta er nú meira fúleggið!" Þetta egg var eins og stærstu páskaeggin. Jæja, hann fer að lemja í nokkur egg þarna, en það var alveg auðséð, að ekkert þeirra var að því komið að springa út. Viku síðar biður bróðir minn mig að koma með sér út í skúr. Hann kveðst ætla að líta aðeins á þetta. Ég fer með honum, og hið fyrsta sem ég sé er þetta stóra egg. É'g segi við hann: „Hvað er þetta eiginlega?" „Þetta er bara ónýtt egg,“ svarar hann. Síðan fer hann að sparka í það og það brotnar. Mér brá heldur en ekki í brún, þegar ég sá hvað í egginu var. Það var ekki ungi, heldur lítið barn. Mér fannst hann fara svo illa með það, enda þótt það væri dáið. Mig hryllti við að taka það upp, því að það var svo skítugt. En þegar hann fór að sparka í það, blöskraði mér alveg, svo að ég tók það í faðm mér og segi um leið: „Guð, hvað þú ert falleg, vinan!“ Þetta var stelpa í bleikum náttkjól. En svo tók ég eftir því, að það var hvít snúra frá hálsinum og lá hún niður eftir maganum og í nárann og upp eftir bakinu, og þar var hún smellt saman að hálsinum. Mér fannst þetta svo skrítið, en gleymdi því jafnskjótt og ég horfði framan í barnið. Hún var svo innilega falleg. Og mér fannst ég vera að segja þetta við hana, þegar hún fer allt í einu að hósta. Þá var komið fullt af fólki þarna inn, og ég skipaði því að ná í bíl, svo að ég kæmist upp á spítala með barnið. Ég vissi, að hún var ekki dáin, fyrst hún hóstaði. Þegar ég kem upp á spítalann, vill læknirinn ekki skoða barnið, heldur mig. Eg reiddist, en hann hló að mér. Eg sagði honum frá þessu öllu, en ég sá strax, að hann vildi ekki trúa mér. Ég var samt alveg staðráðin í því að láta skoða barnið. Ég var alltaf að keppast við klukkuna, því að mér fannst ég vera búin að bjóða fullt af fólki í mat. Ég átti eftir að steikja lærið, og klukkan var orðin hálf tólf, og svo átti ég að mæta í skólann klukkan eitt. Ég sá nú, að allt var orðið í lagi með barnið, því að það kallaði „mamma" og fór síðan að leika sér með börnum, sem biðu þarna á biðstofunni. Lengri varð draumurinn ekki. Virðingarfyllst, Hulda. Þessi draumur er fyrir barnsfæðingu. Þú munt verða fyrir einhverjum óþægindum, á meðan þú gengur með barnið, en jafnskjótt og það er í heiminn komið, þá gjörbreytist allt til hins betra. Barnið mun verða þér og fjölskyldu þinni til ómetanlegrar gleði og sérstaklega mun faðir þinn og bróðir hafa mikið dálæti á því. MORÐ OG BÆN Dagskrá sjónvarpsins er hið sígilda umræðuefni hversdagslífsins — rétt eins og veðrið. Hvar sem menn hittast er vikið að sjónvárpinu, ekki sízt í kaffihléum og matmálstímum á vinnustöðum. Þar dæma menn sjónvarpið óspart og bera saman bæk- ur sínar um einstök dagskráratriði. Á slíkum mál- þingum er gjarnan talað af hispursleysi og engin miskunn sýnd. Alltaf öðru hverju verður sjónvarpið fyrir liörð- um árásum — nú síðast í einu dagblaðanna, þar sem það var sakað um músikofheldi — livorki meira né minna. Það er rétt, að tónlistin hefur í seinni tíð gerzt ærið fyrirferðarmikil í dagskránni. Það er einnig rétt, að hljómleikar eru í sjálfu sér ósköp fátæklegt myndaefni; vélarnar eru færðar af einum spilaranum á annan og kannski sýndir andaktugir svipir í salnum öðru hverju — svona tii tilbreytingar. En tónlistarefni á þó fullan rétt á sér, ef það er hæfilega oft miðað við annað efni. Meinið er, að í seinni tíð iiefur hver tónlistarþátt- urinn fylgt í kjölfar annars — svo að margir eru komnir með ofnæmi fyrir þeim. Því má ekki gleyma, að hér er yfirleitt um vandað efni að ræða og göfgandi, en það er meira en hægt er að segja um bróðurpartinn af efni sjónvarpsins. Nú er ný vetrardagskrá hafin og fögur fyrirheit hafa verið gefin um nýjungar og endurbætur. Það tókst þó ekki betur til en svo fyrsta sunnudags- kvöldið, að meginuppistaða dagskrárinnar var hrollvekjandi glæpamynd um viðjar óttans og þá martröð, sem slikri angist fylgir. Myndin var að sönnu spennandi og allvel gerð og ekkert við því að segja, þótt slikar myndir séu sýndar öðru hverju, þó með því skilyrði, að rækilega sé til- kynnt, að þær séu ekki við liæfi barna. En sá hængur var á í þetta sinn, að einmitt kvöldið áður liafði uppistaða dagskrárinnar einnig verið glæpa- mynd með hrollvekjandi spennu og ennþá fleiri morðum. Þarna virtist niðurröðun efnisins furðulega handa hófskennd alveg eins og tónlistarþættirnir, sem komu hver á eftir öðrum. Það er alkunna, að börn horfa á alla sjónvarps- dagskrána, þótt þau séu ekki orðin há í loftinu og hafi alls ekki vit né þroska til að melta góðgerð- irnar. Þetta hefur verið sannað með skoðanakönn- un, og mætti því gjarnan taka tillit til þess við gerð sjónvarpsdagskrárinnar. Sunnudagskvöldið umrædda endaði með hæn. Nærmyndir af kefluðu angistarandliti, flugbeittum rakhníf og fullu baðkari voiu ekki fyrr liorfnar af sjónvarpsskerminum en ljúfir orgeltónar tóku að hljóma. Það veitti sannarlega ekki af. G.Gr.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.