Vikan - 19.10.1972, Síða 10
HEIL KYNSLÓÐ
GRÉT YFIR
MOLDUM HANS
James Dean varS tákn þrjózkufullrar æsku.
Þegar hann ók sig í hel, tuttugu og fjögurra ára
gamall, brauzt út æði, sem ekki voru dæmi
til, frá því að Rudolf Valentino leið.
Ennþá leggja aðdáendur hans blóm á
gröfina ...
aS var síðdegi í septem-
ber árið 1935.
Á þjóðveginum milli
Hollywood og Salinas
kom silíurgrár Porsche
á 200 kílómetra hraða.
Við stýrið sat James Dean, sem
þá var 24 ára. Hann gat sann-
arlega verið ánægður með til-
veruna. Hálfu öðru ári áður
hafði hann komið til Holly-
wood með 100 dollara í vasan-
um. Þá var hann orðinn stór-
stjarna, hafði lokið við að leika
í þrem kvikmyndum og fengið
100.000 dollara fyrir leik sinn í
hverri þeirra.
Svo átti hann nýjan Porsche
sportbíl. Hann hafði mfikið dá-
læti á hraðskreiðum bílum og
þessi var sá hraðskreiðasti, sem
hann hafði eignazt fram að
þessu, gat farið 250 kílómetra
á klukkustund. Hann ætlaði sér
líka að vinna í kappakstrinum
í Salinas og hann var á leið
þangað.
Hann jók hraðann, þótt hann
væri nýbúinn að fá sekt fyrir
of hraðan akstur. Vegalögreglu-
þjónninn hafði sagt:
— Ef þú heldur þessum
hraða, þá kemstu aldrei lifandi
til Salinas.
En hverjum dettur í hug að
hlusta á slíkt? James Dean jók
hraðann. En skyndilgea kom í
ljós grænn Ford, sem reyndi að
komast inn á þjóðveginn. Jam-
es Dean kom of seint auga á
hann. Það kom ekki til greina
að hemla, eina leiðin var að
reyna að komast fram úr.
James Dean steig á bensín-
gjöfina.
Á næsta augnabliki rakst
hann á Fordinn og sportbíllinn
varð að járnarusli. James Dean
lézt á stundinni.
Það var síður en svo að Jam-
es Dean væri orðinn öruggur í
sessi í Hollywood, en hann þótti
lofa góðu, það var allt og sumt.
Það hafði heldur ekki verið
skrifað mikið um hann í blöð-
in, líklega vegna þess að hann
forðaðist blaðamenn og hafði
andstyggð á auglýsingastarf-
semi.
En það sem skeði, eftir and-
lát hans, á sér enga hliðstæðu
í sögu kvikmyndanna.
Brot úr bílflakinu voru seld
sem minningargripir.
Það brauzt út sannkallað
James Dean-æði. Æskufólk
streymdi til þess staðar, þar
sem hann hafði látið lífið. Með-
an James Dean var á lífi fékk
hann um það bil 80 bréf á viku
frá aðdáendum, en eftir dauða
hans streymdu bréfin inn og
komust upp í 8.000 á viku. Við
frumsýningu á síðustu mynd-
inni, sem hann lék í, komu
áhorfendur í sorgarklæðum og
nokkrar konur frömdu sjálfs-
morð, til að fylgja honum í
dauðann.
Að sjálfsögðu sáu sniðugir
fjársýslumenn sér leik á borði.
Ótal blöð og bækur voru gefin
út, svo ekki sé talað um nokkr-
ar, þar sem hann kom fram og
talaði gegnum miðla „hinum
megin grafar“. Það var líka
gefin út hljómplata með
„ballöðunni um James Dean“,
þar var viðlagið eitthvað á
þessa leið:
Þegar á dómsdegi klukkan
klingir
þá klófestu draum þinn um
liðna tíð
James Dean.
Mættu englarnir bjóða þig
heilan heim,
þegar við kveðjum.
James Dean varð eins konar helgi-
sögn eftir andlátið. Ungar stúlkur
flykktust að gröf hans og ennþá
eru lögð blóm á leiðið.
Sannarlega áttu þinn sess á
himnum,
drengur minn.
Einn náungi keypti flakið af
bílnum hans og leyfði fólki að
sitja bak við stýrið fyrir 50
sent á mínútu. Það varð geysi-
lega vinsælt og tugþúsundir
streyrhdu til. Síðan var flakið
hlutað í sundur og brotin voru
seld til minningar. Ef dæma má
eftir fjölda brotanna, þá hefði
James Dean farizt í að minnsta
kosti 2.000 bílum af mismun-
andi gerðum. Það voru búnar
til Dean-veggmyndir, Dean-
hálsmen, Dean-hálsklútar. En
þó keyrði um þverbak, þegar
búin voru til „James Dean ánd-
lit“ í fullri stærð úr gúmmi.
James Dean var orðinn helgi-
sögn.
Móðir hans lézt, þegar liann
var níu ára.
Það er ekki auðveít að gera
sér grein fyrir manninum bak
við helgisögnina. Drættirnir eru
óljósir: nærsýnn, feiminn og að
líkindum mjög taugaveiklaður
unglingur, sem fór sínar eigin
leiðir.
Hann var líklega hamingju-
samur í æsku. Að vísu var fað-
ir hans lítið heima, sótti vinnu
svo. langt í burtu, en móðir
hans hugsaði því betur um
hann. Hún tilbað son sinn og
hann endurgalt ást hennar. Þau
léku oft óskaleikinn“, sem var
í því fólginn að James Dean,
eða James Byron, eins og hún
kallaði hann, lagði bréfsnepil
undir koddann sinn, áður en
hann sofnaði á kvöldin. Á seð-
ilinn skrifaði hann það sem
hann langaði til að eiga í það
og það skiptið. Það brást ekki,
10 VIKAN 42. TBL.