Vikan - 19.10.1972, Síða 17
ráBa fram Ur. Þetta er þreytandi,
en kannski ekki jafn yfirgengilegt
og ætla mætti. Það eru svo
margar venjulegar húsmóður,-
skyldur, sem hún þarf ekkert að
hugsa um. Húshald, veizlu-
undirbúningur, jafnvel fatakaup
og fataval við einstök tækifæri,
allt þetta er unnið af öðrum. Hver
heimsókn, hvert kaffiboð er
skipulagt fyrirfram, og enginn
fær að eyða meira af tima for-
setafrúarinnar en samið er um
fyrirfram. Um það sjá vel
borgaðir einkaritarar. Þurfi frúin
að halda ræðu eða segja örfá orð
við einhver tækifæri, er það
skipulagt og skrifað fyrirfram.
En það verður að segja Lady Bird
til hróss, að hún tók oft til orða
óundirbúin, og hún sat sjálf fyrir
svörum á blaðamannafundum.
Hún var alls ekki bara kona
mannsins sins og móðir barnanna
sinna þessi fimm ár.
Athugasemdir hennar um ýmsa
gesti i Hvita húsinu á þessum
tíma eru vitaskuld var-
færnislegar. Samt má oft lesa álit
hennar á milli orðanna, eins og
þegar hún skrifar þannig ■ um
ekkjudrottninguna i Grikklandi:
„Drottningin er falleg og gáfuö,
og hún hefur klmnigáfu, en hún er
llka dálítill blossi. Ég gæti trúað,
að stjórnmálamenn á öndverðri
skoðun við hana ættu ekki létt
Þegar Paul Grikkjakonungur
var jarðaður i Aþenu, fór Lady
Bird sem fulltrúi Bandarikjanna
ásamt Truman, fyrrverandi
forseta. Hún getur ekki
nógsamlega lofað hann, og hann
getur ekki gefið henni betra ráð
sem fbrsetafrú: „Verndaðu
manninn þinn, það er þitt stærsta
hlutverk I Hvlta húsinu”.
Lady Bird lýsir mörgu tignar-
fólki við útförina. Á hinni löngu
leið til grafreitsins gegnum götur
Aþenu gengur hún á milliRainiers
fursta og Philips prins. Henni
geðjast betur að þeim siðar-
nefnda. „Þetta hefði verið hinn
ánægjulegasti göngutúr, ef þetta
hefði ekki verið líkfylgd,” segir
hún. Aður en lagt er af stað ræða
þau um taktinn og hraðann, og
Philip segir: „Þaö gengur allt
vel, við höldum bara sama hraða
og sá sem fremst gengur, 93 ára
gamall æðstiprestur”. Mestalla
leiðina ræða þau um sam-
eiginlega aðdáun sina á eynni
Korfu, þar sem Phílip er fæddur.
Hún er einnig mjög hrifin af
Júliönu drottningu, sem fær
Truman til að kynna alla gestina,
og þannig kynnist Lady Bird
heilum her af þýzkum prinsum og
furstum. Það er einnig Júllana,
sem gefur henni merki við athöfn-
ina I kirkjunni um að draga af
sér hægri hanzkann, en ekki þann
vinstri, samkvæmt siðvenjum.
Fyrir opinberar heimsóknir til
Hvita hússins þarf að gera
áætlanir um mat og vinföng,
afþreyingu og boðsgesti. Hvað er
borðað i viðkomandi landi,
tiðkast þar trúarsiðir, sem banna
neyzlu einhverrar fæðu? Hver eru
áhugamál heiðursgestsins? Vill
hann dansa, hlusta á tónlist, sjá
þjóðdansa, hitta poppstjörnur eða
leikara? Smekkurinn er misjafn.
Það var t.d. vitað, að Hussein
konungur og Hassan prins voru
djassunnendur, og þvi var efnt til
tónleika með Dave Brubeck
kvartettinum. Þeir voru mjög vel
heppnaðir, en dansinn á eftir féll
augljóslega ekki i smekk heiðurs-
gesta. Konungurinn dansaði
'bara nokkra skyldudansa og
yfirgaf siðan veizluna, en hinir
gestirnir notuðu tækifærið og
sveifluðu sér á hæl og tá fram
eftir nóttu. Daginn eftir mátti sjá
tblöðunum: „Ekki einn einasti af
150 gestum geispaði I eitt einasta
skipti I forsetaveizlunni i gær,
sem er sögulegur viðburður,
þegar um forsetaveizlur er að
ræöa.” •
Gegnum alla dagbókina skin
aðdáun frú Johnsons á manni
slnum og stórkostlegu vinnuþreki
hans, en hún er óróleg út af þvi
stöðuga álagi, sem á honum
hvilir. Alls konar fundir og
ráðstefnur eru haldnar I svefn-
Framhald á bls. 28.
Samband Lady Bird og dætrann hefur alltaf verið mjóg gott. Hér er frúin
Robb og dætrum hennar, sem heita Lucinda Desha og Catherine Lewis.
með eldri dóttur sinni, Lyndu
með að umgangast hana. En hún
er starfsöm, maður hlýtur að dást
aö henni fyrir atorku”.
Lady Bird notar sterk
iýsingarorö um marga góða vini
sina. Hún er mikill aðdáandi
Steinbecks og náinn vinur hans og
konu hans. Hún lítur upp til Rose
Kennedys, sem aldrei lætur
bugast af sorgum slnum.
Lady Bird langaöi til að sjá islenzkan bóndabæ, og Blikastaöir I
Mosfellssveit urðu fyrir valinu. Frúin klkti i fjósið og þáði siöan
veitingar, sem hin kunna sæmdarkona, Helga Magnúsdóttir, bar á borð
inni i bæ. Frú Penfield, sendiherrafrú, skammtar frú Johnson
rjómapönnuköku, og Helga á Biikastöðum horfir brosandi á.
42. TBL. VIKAN 17