Vikan


Vikan - 19.10.1972, Page 26

Vikan - 19.10.1972, Page 26
ÉG VIL AÐ HEIMILIÐ SÉ HANS GRIÐA STAÐUR vistlegar, húsgögnin nokkuð stór og þung i gömlum stil, pianó við einn vegginn og mikið af mynd- um, bæði ljósmyndum og málverkum. í stofunni hangir mynd, sem sonur þeirra hjóna, Guðbjartur, málaði skömmu áður en hann lézt árið 1967þá 19 ára gamall. Fjórar myndir eftir hann prýða veggi forstofunnar, og veggir gamia herbergisins hans eru þaktar teikningum og vatnslitamyndum, sem hann gerði. Hjónin hafa látið herbergið hans standa, eins og það var, r g þar rikir skemmti- legur andi skólapilts, sem hafði mörg áhugamál. Myndirnar eru með ýmsu móti og heita skemmti- legum nöfnum, eins og „Eftir höfðinu dansa limirnir”, „Fluga framtiðarinnar”, ”Sound of silence” o.fl. Guðbjartur var listhneigður, dundaði líka við að semja lög og ljóð, og ljóðin komu út eftir andlát hans i litilli bók, sem nefndist „Það var vor”. Á einum veggnum i herberginu hans hangir skjal, viðurkenning Félags islenzkra teiknara tii Bókaútgáfunnar Von fyrir listrænan og faglegan frágang þessarar bókar. Tvær dætur eiga þau hjónin. Kristrún, sem er kennari við Vesturbæ ja rskólann , býr skammt frá foreldrum sinum og er daglegur gestur á Aragötu 13. Yngri dóttirin, Dóra, býr enn i foreldrahúsum, starfar á skrif- stofu Rikisspitalanna. Það er auðheyrt, að dæturnar eru frú Dóru mikils virði. — Þetta er ekki orðið stórt heimili núna, en ég er aldrei i vandræðum með að eyða timanum. Heimilisstörfin eru alltaf söm við sig, þótt ekki séu börnin,og ef ég á fristund, þá les ég. Ég er eiginlega alæta á lesefni, les allt frá barnabókum og upp úr. Við höfum alltaf lesið mikið hér á heimilinu. Þegar börnin voru hér heima, sátum við iðulega á kvöldin og lásum öll. — Færðu gesti hingað heim i „Ég er aldrei i vandræðum meðað eyða timanum. Ef ég á fristund, þá ies ég”. sambandi við starf manns þins? — Yfirleittekki. Ég hef reynt að halda heimilinu alveg fyrir utan opinbert lif mannsins mins. Ölafur er ákaflega hægur maður og litið fyrir breytingar, og við höfum engu breytt hér, siðan við byggðum þetta hús árið 1952. Hér heima veit hann alltaf, hvað hann finnur. Að visu verður hann oft að vinna heima og þá ekki siður, meöan hann var prófessor. Hér sérðu skrifstofuna hans, borðið þakið pappirum, ég þori aldrei að hreyfa við neinu hér. — En varla fær hann frið fyrir simanum hér? —- Ekki aldeilis. En ég passa simann, og ég get alveg fundið út, hverjir þurfa raunverulega að ná tali af honum. Hingað hringja nefnilega ótrúlegustu mann- eskjur á ótrúlegustu timum. —- Truman sagði frú Johnson, forsetafrú Bandarikjanna, að hennar stærsta hlutverk i Hvita húsinu væri að vernda manninn sinn. Þú litur kannski svipuðum augum á þitt hlutverk i lifinu? — Það má kannski segja 26 VIKAN 42. TBL. .

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.