Vikan - 19.10.1972, Blaðsíða 28
Hvorki þér né Ajax
þurfið sjálfvirka þvottavél
til að fá gegnhreinan, hvítan þvott
því Ajax er sjálft sjálfvirkt
Ajax er blandað efnakljúfum og því óháð orku þvottavéla
Með Ajax - efnakljúfum
verður Þvotturinn
gegnhreinn og
blæfallegur.
Ajax er gætt sjálfvirkri
Þvottaorku og hreinsimætti,
sem óhreinindin fá ekki staöizt.
Ajax er kjörefnið í stórÞvottinn - gerir
hverja flik leiftrandi hvíta. Ajax er
lika tilvalið í fínni Þvotta, t. d. orlon og
nælon, sem gulna Þá ekki. Ajax
er rétta efnið, ef leggja
Þarf í bleyti, og við forÞvott. Notið
Þá Ajax og horfið á
óhreinindin hverfa.
«r
DAGBOK ÚR
HVÍTA HÚSINU
Framhald af bls. 17
herbergi forsetans en þar hittast
iika forsetahjónin og drekka te
eöa kaffi á rúmstokknum og ráða
ráðum sinum um vini og
ástarævintýri dætranna. Ö, það
er fyndið” segir hún„,að geta
aldrei verið viss um, hvern
maður hittir i svefnherbergi
eiginmannsins. Hugsið ykkur
ofboð mitt, þegar ég kom inn i
herbergi mannsins i morgun og
fann Richard Nixon þar á rúm-
stokknum. Þeir voru að drekka
te, Lyndon i sinum röndóttu
náttfötum, Nixon óaðfinnanlega
klæddur, afslappaður og i góðu
skapi. Þeir virtust skemmta sér
vel báðir tveir.”
1 byrjun árs 1965 lýsir Lady
Bird þvi yfir, að nú verði þau bæði
hjónin að losa sig við nokkur kiló.
Þau hafa bætt á sig, siðan þau
komu i Hvita húsið, og einkum
Lyndon má ekki við þvi að vera of
þungur. Hjartað er ekki full-
komlega öruggt, vinnuálagið
gifurlegt, og nú verður hann i
ofanálag að fara i megrunarkúr.
Morgunverðurinn samanstendur
nú aðeins af appelsinusafa og
svörtu kaffi. Heilsa forsetans er
læknum áhyggjuefni, og þeir ráða
honum stranglega frá þvi að fara
að jarðarför Churchills.
Stærsti viðburðurinn i júni 1965
er vel heppnuð geimferð.
Geimförunum er boðið til dvalar i
Hvita húsinu, og nokkrum dögum
siðar, þegar forsetinn biður
geimfarana að fara fyrirvara-
laust til Parisar til að vera
viðstaddir mikla flugsýningu þar,
verða frúrnar þeirra að leita sér
að viðeigandi fatnaði *i skápum
forsetafrúarinnar og dætra
hennar, á meðan þvotta-
vél er sett I gang til að þvo
nærfötin af geimferðahjónunum.
Þegar timi gefst frá opinberum
heimsóknum, hádegisverðar— og
kvöldverðarboðum, opnunum á
sýningum og margskonar
velgerðarstarfsemi, hoppar
fjölskyldan upp i þyrlu, sem
flytur þau á búgarðinn i.Texas,
þar sem þau njóta útilifsins og
sa.mverustunda með
ættingjunum. L.B. Johnson er
fæddur þarna og uppalinn, og allt
umhverfis búgarðinn býr hans
frændalið, og samkvæmt
dagbókinni er það alltaf velkomið
til að njóta þess góða jnatar, sem
kokkurinn töfrar fram.
En friðsældin og einkalifið
veröur stöðugt fyrir árásum
fréttasnata, sem þyrstir i fréttir
af ástalifi dætranna. Var það satt,
að Luci hefði komið stormandi á
búgarðinn i Texas og beðið um
leyfi til að giftast? ,,Af fyrir-
sögnunum mætti ætla, að um fall
sovésku rikisstjórnarinnar væri
28 VIKAN 42. TBL.