Vikan


Vikan - 19.10.1972, Page 38

Vikan - 19.10.1972, Page 38
 ■ .’.ty Hsfl Sófasettiö Hertoginn er aíveg í sérflokki hvað verð og gæði snertir. Aðeins 59.240. Norsk einkaleyfisframleiðsla Liiii ci ai tSí Auðbrekku 63, Kópavogi, sími 41694 og var vani hans fyrrum, þvi aö hann var nú alveg ráöalaus: „Elsku Delphine! Hugsaöu um dætur þínar!” Þá sneri hiln sér aö þeim báöum meö innilegum fyrirlitn- ingarsvip. Hún æddi að stiganum og æpti um leiö til þeirra þessi orö, þrungin fyrir- litningu: „Þiö eruö báöir aumu vesalmennin og nlöingarnir!” Þeir voru nú einir og störöu hvor á annan um stund, báöir jafnhöggdofa og yfirbugaðir. Monsieur Poincot tók upp hatt sinn, sem haföi dottiö á gól.fiö, þurrkaöi rykiö af hnjám sér eftir hnéfall sitt á gólfinu. Slöan lyfti hann upp höndunum meö sorglegum tilburðum og sagöi, um leiö og hann hneigöi sig I kveöjuskyni fyrir Renoldi, sem var aö fylgja honum til dyra: „Viö erum báöir mjög ógæfusamir, Monsieur.” Slöan gekk hann þungum skrefum á brott. KONAN [ SNÖRUNNI Framhald af bls. 33 þá ekki, að hún var stödd hér um slóðir? — Alls ekki. Þessa nótt var ég einmitt I London. Ég hafði ekiö þangaö um morguninn áður og mælt mér mót viö ýmsa i húsinu minu þar, bæöi þá um daginn og morguninn eftir. Einn þeirra, sem kom til min, var einmitt vinur ungfrú Bartlett. Hann kom til mln um klukkan hálftíu um kvöldiö og minntist einmitt á hana. Hann hafði upprunalega kynnt okkur og vissi, að hún hafði dvalið hér um hrið. Hann kvaðst hafa séð hana fyrir nokkrum dögum og þá hefði hún látiö I ljós þá ósk að hitta mig aftur. Ég sagði honum, að gæti ég gert henni einhvern greiða, væri ég fús til þess, og hún þyrfti ekki annað en skrifa mér, þá gæti hún hitt mig annaðhvort hér eða i London. Hann kvað það hugsanlegt, að hann hitti hana strax þá um kvöldið, og skyldi hann þá skila þessu. En það næsta sem ég heyrði af henni, var lát hennar. — Hafið þér séð þennan vin hennar slðan hún dó? — Ónei, þaö hef ég nú ekki. Þetta er Sir Arthur Marshfield og hann dvelur lengst af á búgarði sinum I Somersetshire. Og þetta kvöld sagðist hann ætla heim að morgni og mundi ekki koma til London, fyrst um sinn. En ég man, að ég fór að hugsa um það, þegar hann var farinn, hvaða erindi ungfrú Bartlett gæti átt við mig, þannig aö hún vildi hitta mig aftur. Tilraunir þær, sem við gerðum saman, höfðu farið algjörlega út um þúfur, og mér datt i hug, að það hefði oröið henni vonbrigði. Og, okkar i milli sagt, þá fór hún héðan snögglega, svo ekki sé sagt i fússi. — Hún hefur kannski fundið til þess á eftir og ætlað að afsaka það við yður. Gæti það annars ekki verið hugsanleg ástæða til þess, aö hún var stödd hér i nágren- ninu, þetta kvöld? Það er vel hugsanlegt, að hún hafi ekki vitað, að þér voruð I London, og svo komið hingað i þeim tilgangi að hitta yður. — Það er sjálfsagt hugsanlegt, sagöi Partington dræmt. En þá hefði hún átt að koma alla leið hingað, og það hefði ég fengið að vita, daginn eftir, þegar ég kom heim. Systir min hafði hitt hana og sagt henni, að ég væri ekki heima. Og annaðer: að hafi hún raunverulega viljað hitta mig, þá heföi Sir Arthur getað sagt henni, þegar þau hittust, að ég mundi veröa i London þennan dag, þegar hann sjálfur var þá sammældur viö mig með hálfs mánaðar fyrirvara. En samt gerði hún enga tilraun til að hitta mig I London, að minnsta kosti ekki fyrir klukkan tiu þetta kvöld. Það er náttúrlega aðeins hugsanlegt, aö hún hafi þá komiö seinna. — Munduð þér táka móti fólki eftir þann tima? — Þvi ekki það. Ég tek móti vinum minum á hvaða tima sólarhringsins, sem er. En ég var ekki þarna i húsinu frá klukkan tiu til miðnættis. Ég verð að segja yður frá lifnaðarháttum minum i London, enda þótt þér þá munduð kalla mig sérvitran. Ég hef þar i þjónustu minni hjón, sem lita eftir húsinu. En eins og ég sagði yður áðan, hef ég næstum hlægilega óbeit á ókunnugu fólki, og til þess að losna við það meðan ég er þarna, hef ég gefið þeim skipanir um að útbúa kalda máltið handa mér og fara svo heim klukkan sex og koma ekki aftur fyrr en morguninn eftir klukkan niu, þegar ég þarf að fá morgim- matinn minn. Svona hef ég það þegar ég er nætursakir i húsinu. Þegar þau svo fara, snúa þau slökkvara i forstofunni og þá hringir bjalla inni hjá mér, ef einhver kemur og snertir dyrabjölluna. Þannig get ég sjálfur hleypt inn þeim sem koma. Þetta kvöld átti ég ekki von á neinum, eftir að Sir Arthur fór, svo að ég notaði tækifærið til aö fara i klúbbinn minn i Pall Mall. Um morguninn þegar ég kom til borgarinnar hafði ég komið i bókasafn og ætlað að ná i bók, sem ég svo gat ekki fengið fyrren seinna um daginn, og kom þvi þá svo fyrir, að hún yrði send i klúbbinn, en ekki heim til min, af þvi að það var skemmri leið. — Þegar Sir Arthur var farinn, mundi ég eftir þessari bók og á- kvað að sækja hana. Ég leigi 38 VIKAN 42. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.