Vikan


Vikan - 10.01.1974, Page 16

Vikan - 10.01.1974, Page 16
að glæpakvendi. Heimspressan talaði um hana eins og barna- kaupmann, manneskju sem hugs- aði ekki um neitt annað en eigin ágóða og sem hafði, eftir þvi sem næst varð komizt, narrað börn frá mæðrum sinum. I meira en tvo mánuði faldi hún sig hjá góðri vinkonu sinni i Sviþjóð. Skyndilegur flóttinn frá Rio hafði tekið svo á taugar henn- ar, að hún gat ekki gefið sig fram við opinbera aðila og sagt allt af létta um starf sitt i Brasiliu. Blaðamönnum tókst þó að hafa uppi á henni og fengu að fara með henni i heimsókn til tveggja af þeim átján börnum, sem hún hafði komið á góð heimili i Sviþjóð. Börnin Karin Bork er dóttir fiskimanns i Skagen. Hún iærði tölvumötun. Fyrir fjórum árum fór hún til Brasiliu, þvi að kunningi hennar i Rio ætlaði að hjálpa henni að komast á skóla til að læra barna- kennslufræði. Hún var tvítug, þegar hún iaom til Rio og strax fyrsta daginn hafði almenn neyð, sem hvar- vetna blasti við i milljónabænum, gifurleg áhrif á hana. — Smám saman lærðist mér þó að hætta að láta það á mig fá, þó að fólk byggi á götunni, segir Karin, — en eymdin meðal litilla barna fékk mjög á mig og ég gat ekki horft aðgerðarlaus á hana. f námi sinu heimsótti Karin stór barnaheimili, þar sem hundruðum munaðarlausra barna hafði verið safnað saman og þau látin hirast þar við ömur- legar kringumstæður. — Ég veit ekki hvað eru mörg slik barnaheimili i Rio, segir Karin. — Ég fékk börnin á sex mismunandi heimilum og á hverju þeirra voru frá fjögur hundruð og upp i sex hundruð smábörn. Börnin voru látin vera i stórum tómum stofum. Eini út- búnaðurinn voru dýnur til að sofa á og tannburstar. Minnstu barn- anna var gætt af ellefu og tólf ára gömlum stúlkum, sem sjálfar hafa alizt upp á heimilunum. Börnin þjást ekki beinlinis af hungri, þeim er haldið lifandi, en þau vantar allt samband við fólk. 16 VIKAN 2.TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.