Vikan - 10.01.1974, Blaðsíða 18
i'
i 1
Nú hlakkar í einhverri
Þær voru margar ungu stúlkurnar, sem
gátu ekki á heilum sér tekið, þegar það
fréttist að Presley væri kvæntur Pricillu
Beaulieu. Nú geta þær farið að anda létt-
ar, þvi að nú er hetjan skilin við konu sina.
En það virðist fara svo vel á með þeim
þarna á myndinni, sem var tekin þegar
endanlega hafði verið gengið frá skilnað-
inum, að kannski eru þau bara að skilja til
að komast betur frá skattinum.
Leikkonan leggur
fyrir sig Ijósmyndun
Gina Lollobrigida hefur leikið i yfir fimm-
tiu kvikmyndum og henni fannst timi til
kominn að reyna eitthvað nýtt. Hún ákvað
að reyna að taka ljósmyndir og árangur-
inn hefur þótt vera með ágætum. En hún
var hrædd við, að frægöin tefði eitthvað
fyrir sér við ljósmyndunina, svo að hún
bjó sig i dulargerfi, áður en húnlagðiaf
stað með myndavélina.
Fer hann að gifta sig?
be'tta er Karl Gústaf, nýi kóngurinn i
Sviþjóð. Hann er enn ókvæntur og Svíar
reyna að geta sér til um, hverja hann
muni velja og vonast til að hann ákveði
sig sem allra fyrst. Margar hafa verið til-
nefndar sem liklegar i drottningarsætið i
Stokkhólmi, en Karl Gústaf hefur ekkert
látið frá sér heyra enn sem komið er, sem
bendir til þess að hann hyggist ganga i
hjónaband á næstunni.
I festum
Það eru liðnar nokkrar vikur siðan hún
Anna prinsessa 1 Bretlandi gekk i heilagt
hjónaband. Þessi mynd var tekin af henni
meðan hún sat enn i festum og verður ekki
annað séð en fari vel á með henni og hund-
inum.