Vikan


Vikan - 10.01.1974, Blaðsíða 47

Vikan - 10.01.1974, Blaðsíða 47
Einu sinni voru þeir erkióvinir, Tatarar og Rússar. Nú standa þeir hliö viö hliö og klæöast gömlum búningum. Fólkið á myndinni vinn- ur i bilasmiðju i Uljanovsk og skemmti þar, þegar greinarhöfund- ur heimsótti smiöjurnar. sem Lenin fæddist i og minnismerkið um hann. 1 Simbirsk, eins og borgin hét þá, fæddist Vladimir Iljitsch Uljanov þann 22. april 1870 en hann tók sér seinna baráttunafnih Lenin Borgin og önnur mannvirki hafa verið heitin eftir honum, skip, verksmiðjur, háskólar og aðrar menntastofnanir. Byltingarmaðurinn Lenin, heimspekingurinn Lenin, stjornsepk- ingurinn Lenin. Risastórar styttur úr granit og bronsi gnæfa af honum i hverri borg. ()g svo blasir við timburhús við kyrrláta götu, sem skugga af gömlum trjám ber á. l>ar eru öll algeng húsgögn, stór ofn, heklaðir dúkar á borðum, bókaskápar við veggina og á veggjunum hanga landakort l>egar gengið er gegnum herbergin finnst andrúmsloftið, sem rikti á heimilinu. Heimili. sem aldrei var rikt af veraldlegum auði, en þar sem mikið var lesið og kannski enn meira hugsaö Maö- ur sér fyrir sér föðurinn, skólamanninn og móðurina, menntaða konu, sem talaði þrjú tungumál reiprennandi, maður sér fyrir sér Vladimir litla, sem klippir brúður úr pappa til að nota i brúðuleikhúsið sitt. En svo leikur þessi öruggi heimur allt i einu á reiðiskjálfi. 8. mai 1887 er eldri bróðir Vladimirs, hljóðláti grasaíræðistúdentinn Alexander, hengdur fvrir að sýna Zarnum banatilræði. Hann hafði tekið þátt i að undir- búa tilræðið og tók á sig alla sökina. l>að er merkilegt, livað hús eins og þetta helur miklu meiri áhrif á mann en minnis- merki. Maðurinn, sem svndi okkur húsið, var •Joseph C.unter, leiðsögumaður þarna úh horginni. Hann er kennari i Uljanovsk og einn þeirra tveggja milljóna Sovétmanna, sem hafa þjóðernið ..þýzkur" skráð i per- sónuskilriki sin. Forfeður hans settust að við Volgu á dögum Katrinar miklu. beir fluttust þangað með hesta sina og kýr og námu land á bökkum hennar. Ibúum Uljanovsk hefur tekizt að byggja þar nútimaborg. sem svarar öllum kröfum samtimans, án þess að hreyfa við eða skemma dæmigerðan rússneskan borgarsvip staðarins, sem einkum birtist i útskornum lramhliðum timburhúsanna, görðunum, bak- görðunum og trjánum meðfram götunum. Um kvöldið heimsóttum við bilasmiðjurn- ar i Uljanovsk. Stúlkur i dökkbláum búning- um tóku á móti okkur og festu i barm okkar merki með vörumerki verksmiðjanna. Tón- list hljómaði, mikið var sungið. barna skemmti fólk, sem starfaði á daginn i verk- smiðjunni. Eftir skemmtiatriðin dönsuðum við pólska dansa. A siðasta degi ferðarinnar komum við til Kasan og þar var einn dagur lika allt of litið. bar höfðu gömlu hirðingjaflokkarnir aðset- ur. baðan lögðu Tatarar i hinar miklu ráns- ferðirsinar, sem urðu til þess að Rússar tóku að hertaka þá og selja mansali til Tyrklands. bessu hélt áfram unz Ivan grimmi braut mótspyrnu Tatara á bak aftur og lagði undir sig siðustu borgirnar við Volgu. Siðan hefur hún verið rússnesk á og Tatararnir látið litið á sér kræla. bó gekk Töturunum illa að sætta sig við að þurfa að beygja sig fyrir Katrinu miklu árið 1783, þvi að Kóraninn bannaði þeim að lúta konu. En Potemkin elskhugi Katrinar braut alla mótspyrnu þeirra a bak aftur með grimmdarlegum hætti og öðlaðist við það enn meiri áhrif á stjórn rikisins en hann hafði áð- ur haft. Kasan er nú höfuðborg sovétlýðveldisins Khasastan, þarhefur veriö háskóli siðan 1804 og i honum stunduðu nám bæði Lenin og Tol- stoi. Margs konar iðnaður er stundaður i borginni, sem hefur um það bil 850.000 ibúa, þar af um helming Tatara. 1 Kasan vildum við fá að sjá eitthvað sér- stakt tataristiskt. Intourist benti okkur á vcitingastað og tók frá handa okkur tvo miða. Við Tamara ætluðum ein þangað, þvi að ferðafélagarnir fóru að horfa á tékkneskan sirkus, sem var á ferö i borginni. A veitingastaðnúm sátu tatarar vinstra* megin við borðið okkar en Rússar hægra megin. bað var verið að fagna brúökaupi. Við sérstakt kall á brúðguminn að kyssa brúðina. Og það er kallað aftur og aftur svo að kossinn verður að minnsta kosti tiu min- útna langur. Maturinn er glóðarsteikt kjöt og borið fram með alls konar kálmeti og er framúrskarandi gómsætur. Hljómsveitin heldur áfram að leika, eitt- hvað sem virðist vera blanda af þjóðlegri tataramúsik og beat. Inn á milli hljóma dill- andi valsar og stöku sinnum eitthvað villt, sem engin leið virðist vera til að fylgja eftir á dansgólfi. Balalaika og rafmagnsgitararnir hljóma bara vel sáman. bað er etið, dansað, talað og dansað. Siðan er etið meira. Vitaskuld er lika drukkið og alls ekki svo litið. Rússi kemur og býður Tamöru að dansa við sig, hann er afar kurt- eis, hneigir sig fyrir mér og siðan fyrir henni. Músikin er létt og leikandi. Ungur Tatari kemur frá vinstri. Konan lians kemur með honum. Hann vill dansa við Tamöru, hún vill dansa við mig. Ég geri henni skiljanlegt, að ég telji öll tormerki á, að ég geti fylgt þessari fjörugu músik eftir. Hún segist ekki geta horft á gesti sitja allt kvöldið. Dansinn gengur eins og i sögu og viö höld- um áfram að dansa. Milli dansanna sezt vin- gjarnlegt fólk hjá okkur og segir hvert það er og hvað það gerir. Svo spyr það hvaðan við séum og hvað við gerum. Einn mannanna spyr: ,,Hvað er að fætinum á yður? Gerðist það i striðinu?" Ég svara: ,,Já, það var á Wolchovvigstöðvunum" . Hann kinkar kolli og svarar: ,,Mér léttir við að heyra, að það var sovézk kúla. en það minnkar ekki virðingu mina l'yrir yður". ,,Undarlegt", sagði ég, ,,þaö er eins og bjóðverjar og Rússar þurfi alltaf að elda grátt silfur saman”. „Undarlegt”, segir hann, ,,að yður skuli finnast það lika". 2. TBL. VIKAN 47

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.