Vikan - 17.01.1974, Qupperneq 4
byggja?
Viltu
Þarftu að bæta?
Iitaver
GRENSASVEG118,22,24
SÍMAR: 32266-30280-30480
PQsturinn
Gutta rosae
banvænt lyf
Póstinum varð laglega á i
messunni I- 50. tbl. slðasta árs.
Þar birtist spurning um þýðingu
latnesku orðanna gutta rosae, og
ég greip i algjöru grunieysi til fá-
tæklegrar latínukunnáttu minnar
og þýddi þessi orð beint sem
dropa rósarinnar og leyfði mér
siðan aö nota hugmyndaflugið og
gera dropa rósarinnar að rósa-
vini.
Það kom á daginn, að þetta var
heldur óheppilegt svar, þvi ein-
hver hugvitsmaðurinn hafði end-
ur fyrir löngu gefið sterkustu teg-
und af morfíni þetta fallega
nafn. Segja læknar, að 5 dropar
af gutta rosae mundu nægja til
þess að drepa mann.
Eitt dagblaðanna var ákaflega
hneykslað á þessu gálauslega
svari Póstsins og hafði eftir ein-
hverjum lækni, að það væri ein-
stakur bjálfaháttur aö birta
svona svar I blaði. En ég verð að
segja, að mér finnst það lika dá-
litiö varhugavert að gefa ban-
vænu lyfi svona hugljúft nafn,
sem ólæknisfróöir latinugránar
geta misskiiið svona herfilega.
Að lokum læt ég I Ijósi einlæga
ósk um það, að „cinstakur bjálfa-
háttur" minn dragi ekki dilk á
eftir sér, enda lyf þetta mjög tor-
fengið og sáralltil likindi til þess,
að leikmenn geti komið höndum
yfir það.
Hverjir verða fyrstir?
Heiðraði Póstur!
Fyrir u .þ .b. 10—12 árum, 1960 —
63, birtist i Póstinum visa urri vor-
ið. Visurnar voru raunar tvær og
birtust með nokkru millibili. Nú
langar mig ákaflega mikið að sjá
þessar visur aftur, einkum þá,
sem siðar birtist, þvi mig minnir
að hún væri betri. Þess vegna
skrifa ég þér þetta bréf, ef þú
vildir gera mér það ómak að leita
eftir visunum I gömlum blöðum
og birta aftur i Póstinum, seinni
vlsuna a.m.k.
Að svo mæltu vil ég þakka Vik-
unni mikið og gott efni. Hún er
gott blað, sem á engan sinn lika
hérlendis. Hún er i stöðugri fram-
för, full af skemmtilegum mynd-
um og ágætu lesefni, margvísleg-
um fróðleik. Að lokum langar mig
svo að spyrja, hvernig skriftin sé.
Þá langar mig einnig aö spyrja
þessarar fávislegu spurningar:
Hverjir geta skálað og fagnaö
nýja árinu fyrstir manna og hvers
vegna?
Með beztu kveðjum og fyrir-
fram þakklæti, lendi þetta ekki i
ruslakörfunni.
Gunnar
Ég verö að hryggja þig með
þvi, Gunnar, aö enginn hér á rit-
stjórn Vikunnar man cftir þess-
um visum, og ég hef þvi miður
ekki tima til að flctta mörgum ár-
göngum Vikunnar, þegar ekki er
nú einu sinni vist um árangur.
E.t.v. man einhver tryggur les-
andi Vikunnar eftir þessum vis-
um, og þá þægi ég upplýsingar
hans með þökkum. Skriftin þin er
ágæt og siðasta spurningin hreint
ekki fávfsleg, þvert á móti bráð-
skemmtileg. Svarið er það, að
þcir geta fyrstir fagnað nýju ári,
sem staddir eru á alþjóðlegu
dagalinunni á 180 gráöum vest-
lægrar lengdar, eða nokkurn veg-
inn úti á miðju Kyrrahafi. Þetta
upplýsti Þorsteinn Sæmundsson,
stjarnfræðingur, og þar meö, að
þcssi lína lægi yfir austasta hluta
Síberiu og Tongaeyjar i Kyrra-
hafi, svo að ef þig langar til að
vcrðá fyrstur, þá cr upplagt að
bregða sér til Tongaeyja og skála
við Ibúana þar um næstu áramót.
Þú hefur timann fyrir þér til að
undirbúa ferðina.
Flugnám
Kæri Póstur!
Ég hef mjög mikinn áhuga á
flugi og langar til að vita, hvar ég
gæti lært það. Hvað þarf maður
að vera gamall til að læra flug?
Svo eru allir svo forvitnir um,
hvort Pósturinn sé karlkyns eða
kvenkyns. Ég gizka á, að karl-
maður og kvenmaður skiptist á
aö svara bréfunum. Og svo þetta
venjulega, hvernig eiga krabbinn
(stelpa) og bogmaður (strákur)
saman? Hvernig er skriftin og
stafsetningin, og hvað heldurðu
aö ég sé gömul? Jæja, vertu sæll
(sæl), Póstur.
Kleppur
1 17. tbl. 1973 er að finna mjög
ýtarlegar upplýsingar um flug-
nám, sem ég fékk hjá flugskóla
Helga Jónssonar, og þangað get-
urðu snúið þér eða til Flugstöðv-
arinnar h.f. En til þess að geta
hafið flugnám, þarftu að vera
orðin 17 ára. Kynferði svara-
manns Póstsins er og verður
hcrnaðarleyndarmál ritstjórnar
Vikunnar.og lesendur verða bara
að sætta sig við það. Krabbi og
bogmaður eiga vel saman. Skrift-
in og stafsetningin væru betri, ef
þú flýttir þér minna. Vonandi ertu
oröin 17 ára. f
Útundan í bindindinu
Kæri Póstur!
Ég þakka þér fyrir gott lesefni
sérstaklega er sagan „Hver er
Laurel?” fin, og hana les ég allt-
af. En nú kemur það. Það er
þannig aö þegar ég er i partii með
krökkunum i minum bekk, eru
þau stundum að reykja, en það vil
ég ekki, og ég hef ekki heldur
4 VIKAN 3 . TBL.